Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.04.2001, Qupperneq 32

Freyr - 01.04.2001, Qupperneq 32
aðarþings skal kæra út af kosningu þingfulltrúa berast stjóm Bænda- samtakanna að minnsta kosti tveimur vikum áður en þingið er sett. Skilyrði er þó að kæra hafi áð- ur borist yfirkjörstjóm svo sem fyr- ir er mælt í samþykktum samtak- anna. Að öðrum kosti skal henni vísað frá. 3. grein Þegar kjörbréf hafa verið af- greidd og úrskurðuð skal kjósa for- seta þingsins og tvo varaforseta ásamt skrifurum. í forföllum for- seta ganga varaforsetar að öllu leyti í hans stað, eftir hans ákvörðun. 4. grein Að lokinni kosningu embættis- manna og almennum umræðum skulu kosnar starfsnefndir. Að jafnaði skulu eftirtaldar nefndir starfa: 1. Allsherjarnefnd. 2. Búfjárræktar- og fagráða- nefnd. 3. Félagsmálanefnd. 4. Fjárhagsnefnd. 5. Framleiðslu- og markaðs- nefnd. 6. Kjaranefnd. 7. Umhverfis- og jarðræktar- nefnd. Enginn þingfulltrúa má eiga sœti ífleiri en einni þessara nefnda. Heimilt er að kjósa aðrar nefndir til að kanna einstök mál eða mála- flokka, þá er einnig heimilt að sameina einstakar nefndir sé það talið henta. í hverri nefnd skulu sitja að lág- marki þrír þingfulltrúar. Formaður stjómar Bændasamtak- anna og forseti þingsins geta verið undanþegnir setu í starfsnefndum. Fulltrúar, sem óska eftir setu í einhverri sérstakri nefnd, komi þeim óskum á framfæri við stjóm a.m.k. viku fyrir Búnaðarþing. 5. grein Um frest til að skila málum fer eftir samþykktum samtakanna. Mál- um skal skila til stjómar Bœnda- samtakanna. Stjórn Bændasam- takanna getur með rökstuðningi endursent mál til frekari úr- vinnslu. Þá skal hlutaðeigandi hafa 14 daga frest til að gera úr- bætur. Þó getur þingið samþykkt að taka fyrir mál sem síðar koma fram. Mifla skal við að fundargögn berist fulltrúum eigi síðar en 10 dögum fyrir setningu þings. í þingbyrjun skal leggja fram skýrslu starfsmanna og ársreikn- inga Bændasamtakanna fyrir liðið ár. Á sama hátt skulu í þingbyrjun lögð fram þau mál sem borist hafa. Þau mál, sem liggja fyrir Alþingi er landbúnaðinn og bændastétt- ina varða, skulu lögð fyrir í þing- byrjun þyki ástæða til að fjalla um þau. 6. grein Á fyrsta fundi hverrar nefndar skal kosinn formaður og varafor- maður sem jafnframt er ritari. Eins fljótt og við verður komið skal forseti þingsins halda fund með formönnum allra nefnda og kynna þeim starfsáætlun þings- ins. Nefnd lætur uppi álit sitt og skal fjölrita það og útbýta því meðal þingfulltrúa áður en málið er tekið til umræðu á þinginu. Nefndarálit skal undirritað af nefndarmönnum og tilgreint hver sé framsögumað- ur. Nefnd getur lagt til, með rök- stuðningi, að mál, sem vísað er til hennar, verði tekin út af dagskrá þingsins og vísað til stjórnar Bændasamtakanna. Um slíka til- lögu fer atkvæðagreiðsla fram umræðulaust Stjóm Bændasamtakanna getur falið staifsmönnum samtakanna að aðstoða einstakar nefndir við störf þeirra. 7. grein Forseti stýrir umræðum á þing- inu og kosningum þeim er þar fara fram. Skal hann færa mælendaskrá og gefa þingfulltrúum og þeim öðr- um, er málfrelsi hafa, færi á að taka til máls í þeirri röð sem þeir beiðast þess. Þó má hann víkja frá þeirri reglu er sérstaklega stendur á. Nú vill forseti taka þátt í umræðum frekar en forsetastaða hans krefur, víkur hann þá úr forsetastól, en varaforseti tekur við fundarstjóm á meðan. Forseta er heimilt að tak- marka ræðutíma þingfulltrúa. 8. grein I upphafi hvers þingfundar skal útbýta dagskrá fundarins. Forseti getur tekið mál út af dagskrá og tekið ný mál á dagskrá er sérstak- lega stendur á. Þingfulltrúi getur, meðan á umræðum stendur, krafist þess að mál verði tekið út af dag- skrá. Um slíka tillögu fer atkvæða- greiðsla fram umræðulaust. 9. grein Stjórn Bændasamtakanna til- nefnir einn af starfsmönnum þeirra til þess að færa fundargerð þingsins undir stjóm forseta. Fundargerð síðasta fundar liggi frammi áður en nýr fundur er sett- ur. Skal hún í fundarbyrjun borin upp til samþykktar og síðan undir- rituð af forseta. Heimilt er þó, sé þess óskað, að fresta samþykkt fundargerðar til næsta fundar, telji forseti það réttmæta ósk. Jafn- framt er forseta heimilt að leita samþykkis á því að fundargerð sé send þingfulltrúum til staðfest- ingar. 10. grein Málum, sem lögð eru fram á þinginu, skal vísað til nefndar um- ræðulaust. Forseta er heimilt að leyfa flutningsmanni að reifa málið með stuttri ræðu. Eftir að nefndir hafa skilað áliti skulu fara fram tvær umræður um hvert mál. Heimilt er forseta að ákveða eina umræðu um einstök mál ef enginn mælir því gegn. Komi fram fyrirspurnir tií stjóm- ar eða starfsmanna Bændasamtak- anna má forseti ákveða eina um- 32 - FR€VR 3/2001

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.