Freyr

Volume

Freyr - 01.04.2001, Page 34

Freyr - 01.04.2001, Page 34
Nefndin skili áliti fyrir næsta búnaðarþing. Greinargerð: A: Starfsemi samtaka eins og Bændasamtaka íslands þarf í raun að vera í stöðugri endurskipulagn- ingu og þróun á öllum sviðum. Það er okkur nauðsynlegt að hafa þessa starfsemi sem markvissasta og ódýr- asta þannig að hún skili okkur sem mestum ávinningi á hverjum tíma. B: Fyrir þinginu liggur nú erindi Svínaræktarfélags Islands um nýt- ingu búnaðargjalds. Þingið vísar erindinu til nefndar sem skipuð verður samkvæmt þessari ályktun. Þingið leggur áherslu á að búnað- arsamböndin reyni eftir föngum að koma til móts við þau sjónarmið sem lýst er í erindinu Samþykkt samhljóða. Tilraunainnflutningur á NRF-fósturvísum Búnaðarþing 2001 ályktar eftir- farandi um tilraunainnflutning á NRF-fósturvísum: 1. Verkefninu verði frestað eftir að töku fósturvísa í Noregi lýkur. 2. Nefnd sú, sem umsækjendur og landbúnaðaiTáðherra hafa skip- að sameiginlega leggi frarn áætlun um framkvæmd saman- burðartilraunarinnar. Sú áætlun liggi fyrir í síðasta lagi 20. júní nk. 3. Fyrir aðalfund LK, sem haldinn verður í ágúst nk., leiti stjórnir BÍ og LK samráðs um undirbún- ing að almenmi atkvæðagreiðslu meðal kúabænda. I þeirri at- kvæðagreiðslu verði spurt hvort sá sem atkvæði greiðir vilji að sú tilraun fari fram sem gert er grein fyrir í lið 2. Svari meirihluti já, fer verkefnið af stað. Svari meirihluti nei, verður hætt við verkefnið. Ikynningu fyrir atkvæðagreiðsl- una verði leitast við að sem flest sjónarmið, er málið varða, komi fram. 4. Um framkvæmd atkvæða- greiðslu skv. lið 3 verði horft til framkvæmdar á atkvæða- greiðslu um samning um starfs- skilyrði mjólkurframleiðslunnar. Kjörskrá verði unnin svo vel sem kostur er og vandað til kynningar á atkvæðagreiðsl- unni. 5. Búnaðarþing 2001 samþykkirað erfðaefni úr NRF-kyninu verði ekki tekið í notkun hjá bændum fyrr en að undangenginni at- kvæðagreiðslu þar um meðal kúabænda að tilraun lokinni. Samþykkt með öllum þorra atkvœða. Framlög samkvæmt búnaðarsamningi Búnaðarþing 2001 leggur áherslu á að þegar í stað verði lokið þeirri endurskoðun búnaðarsamnings sem fara átti fram á síðasta ári. Þingið ítrekar fyrri ályktun sína um framlög til leiðbeingastarfsemi, og búfjárræktar og hækkun á rekstrarframlögum til kúasæðinga. Til viðbótar fyrri tillögum leggur þingið til að í 11. gr. gildandi bún- aðarsamnings verði eftirfarandi liðum bætt við undir verkefnaflokk 2: Gardínubúnaður í gróðurhús, 40% af kostnaði, þó að hámarki kr. 800.000 Rúlluborð, 40% af kostnaði, þó að hámarki kr. 600.000 I báðum tilvikum er um að ræða nýja tækni í gróðurhúsum sem á að auka hagkvæmni í framleiðslu. Við verkefnaflokk 6 verði bætt heimild til að styrkja varanlegar vatnsveitur í bithaga búfjár, 40% af kostnaði, þó að hámarki kr. 75.000. Samþykkt samliljóða. Efling Landbúnaðar- háskólans á Hvanneyri Búnaðarþing 2001 skorar á stjórnvöld að efla Landbúnaðarhá- skólann á Hvanneyri þannig að hann geti með sóma sinnt lög- bundnu hlutverki sínu: a. að veita fræðslu, hagnýta starfs- menntun og háskólamenntun studda rannsóknum fyrir sam- keppnishæfan og fjölþættan landbúnað sem byggist á sjálf- bærri nýtingu náttúruauðlinda landsins, b. að veita endurmenntun á þeim námssviðum sem lög um búnað- arfræðslu taka til. Samþykkt samhljóða. Bygging Garðyrkju- miðstöðvar íslands Búnaðarþing 2001 skorar á land- búnaðarráðherra að tryggja nægj- anlegt fjármagn á fjárlögum næstu ára til að ljúka byggingu Garð- yrkjumiðstöðvar íslands að Reykj- um í Ölfusi. Greinargerð: Garðyrkjumiðstöð íslands varð formlega að veruleika þann 28. október 2000 þegar forsvarsaðilar Bændasamtaka íslands, Sambands garðyrkjubænda og Garðyrkjuskóla ríkisins skrifuðu undir samkomulag um Garðyrkjumiðstöð að Reykjum í Ölfusi. Við það tækifæri staðfesti landbúnaðarráðheiTa samkomulag- ið með undirskrift sinni. Garðyrkjumiðstöðin hefur því tekið til starfa í 1. áfanga, sem er til bráðabrigða, þar sem til stendur að byggja 225 fm viðbyggingu, að grunnfleti, á tveimur hæðum við núverandi aðalbyggingu Garð- yrkjuskólans. Þegar endanleg bygging verður tilbúin verður þar fullbúin aðstaða fyrir landsráðunauta Bændasamtaka Islands, starfsmann Sambands garð- yrkjubænda, tilraunastjóra Garð- yrkjuskóla ríkisins, skólameistara, yfirkennara og fleiri starfsmenn skólans. Sameiginleg móttaka og skrifstofa verður í byggingunni. Bókasafn verður á neðri hæð hússins auk fyrirlestrasalar. 34 - FR€VR 3/2001

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.