Freyr

Årgang

Freyr - 01.04.2001, Side 35

Freyr - 01.04.2001, Side 35
Samband garðyrkjubænda hefur ákveðið að leggja umtalsverða upp- hæð til byggingarinnar, en ljóst er að ef ríkissjóður tryggir ekki það mót- framlag, sem til þarf, verður bygg- ingin seint eða aldrei að vemleika. Samþykkt samhljóða. Frumvarp til laga um búfjárhald, forðagæslu o.fl. Búnaðarþing 2001 hefur fengið til umsagnar drög að frumvarpi til laga um búfjárhald, forðagæslu o.fl. Lagðar em til ýmsar veigamiklar breytingar á gildandi lögum.Þingið styður það markmið laganna að koma í veg fyrir slæma meðferð á búfé, en leggur áherslu á að eftirlitið verði framkvæmt með sem skilvirkustum og ódýmstum hætti. Búnaðarþing bendir á eftirtalin atriði sem nauðsyn ber til að endurskoða eða breyta við endanlegan frágang frumvarpsins. 3. gr. Eftirfarandi hugtök verði skil- greind svo: Umráðamaður búfjár er eigandi búfjár eða aðili sem er ábyrgur fyrir fóðrun eða aðbúnaði samkvæmt gildum samningi við eiganda. Hagaganga er það, þegar eigandi búfjár kemur því í haga til annars aðila og gerir um það samning. 5. gr. Setningin „I samþykktum sveit- arstjórna um búfjárhald verði felld út. 7. gr. Vörsluskylda á graðhestum mið- ist við 12 mánaða aldur. Við fram- kvæmd á sölu graðhesta í óskilum sé vísað til laga um nauðungarsölu. 8. gr. Kveða þarf skýrt á um viðhalds- skyldu girðinga á friðuðum svæð- um. 9. gr. í samræmi við lög um afréttar- málefni, fjallskil og fleira, þar sem fjallað er um hliðstæð atriði, er eðlilegt til samræmis að miðað sé við tveggja sólarhringa frest. 10. gr. Það er skoðun þingsins að forða- gæsla og búfjáreftirlit sé að veruleg- um hluta opinbert eftirlit fremur en þjónusta við bændur. Þingið leggst gegn hugmyndum um gjaldtöku vegna hins almenna hluta eftirlitsins, þ.e. reglulegt eftirlit og umsýsla varðandi þá sem rækja skyldur sínar varðandi þá þætti sem lögin kveða á um. Þann þátt í framkvæmdinni verður að meta og er eðlilegt að hann sé greiddur af opinberu fé. 11. gr. Hugmyndir eru í vinnslu um skyldumerkingar búfjár. Þá myndast gagnagrunnar sem veita nákvæmar upplýsingar um búfjárfjölda á hverjum tíma. Eðlilegt er að hafa hliðsjón af þessu og kreíjast ekki upplýsingaöflunar íyrir þætti sem þegar eru fyrir hendi.Sama gæti gilt um fleiri þætti sem upplýsinga er aflað um í framtíðinni 12. gr. Niður falli setningarhlutinn; „ sem ekki starfrækja ...Bændasam- tökum íslands." í beinu framhaldi komi „Bændasamtök íslands skulu“ í stað „Þau skulu“. Lokamálsgreinin ..Búfjáreigandi ber ...laganna." falli út. 14. gr. Síðasta setning breytist og verði; Umráðamaður lands er ábyrgur fyrir því að fullnægjandi upplýs- ingar séu fyrir hendi um fjölda bú- fjár í hagagöngu og eigendur þess. Bent er á nauðsyn þess að útbúin sé handbók fyrir búljáreftirlitsmenn. Samþykkt samhljóða. Stefnumörkun um réttindi og skyldur landnotenda og búfjáreigenda Búnaðarþing 2001 felur stjóm Bændasamtaka íslands að hlutast til um að fram fari heildarstefnu- mörkun um allt það er lýtur að vörsluskyldu búfjár, lausagöngu búfjár og skyldu landeigenda til að reisa girðingar og kosta þær. Auk þess hvemig með skuli fara þegar land er tekið til samfélagslegra nota, s.s. undir vegi. Samþykkt samhljóða. Framleiðslu- og markaðsnefnd Reglugerð nr. 539/2000 um dýralyf Búnaðarþing 2001 mótmælir því að reglur um afhendingu sýklalyfja skuli vera þrengri hér á landi en í nágrannalöndunum. Núgildandi reglur hafa í för með sér óhóflegan kostnað fyrir bændur og gerir þeim örðugt að sinna eðlilegri dýravemd. Þingið felur stjórn BI að reyna til þrautar að fá fram rýmkun á 17. gr. reglugerðar nr. 539/2000 þess efnis að umráðamenn dýra hafi leyfi til að hafa sýklalyf og önnur bráðalyf undir höndum til notkunar í bráða- tilfellum. Einnig sé leitað eftir breytingu á 9. gr. sömu reglugerðar um að dýralæknum verði heimilt að ávísa til bænda lyfjum til fyrir- byggjandi aðgerða svo sem með selen þar sem selenskortur er viður- kennt vandamál í búfé. Notkun þeirra sé bundin skráningarskyldu og samráði við dýralækni. Samþykkt samhljóða. Lög um dýrasjúkdóma fóðureftirlit og varnir gegn því að smitsjúkdómar berist til landsins 1. ályktun Búnaðarþing 2001 leggur til að breytingar á lögum um dýrasjúk- dóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993 verði samþykktar eins og þær liggja fyrir Alþingi. 2. ályktun Búnaðarþing 2001 skorar á stjómvöld að stórefla Aðfangaeftir- FR€VR 3/2001 - 35

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.