Freyr - 01.05.2002, Page 2
Altalað á kaffistofunni
Af elturefnanámskelðl
Hinn 30. nóvember 1987 var haldið eitur-
efnanámskeið í Borgarnesi fyrir garð-
yrkjumenn í Borgarfírði. Fyrirlesarar voru
Hjalti Lúðvíksson, sem þá starfaði hjá Sölufé-
lagi garðyrkjumanna, Jakob Kristinsson, sér-
fræðingur í eiturefnafræði hjá Háskóla Islands,
Víðir Kristjánsson hjá Vinnueftirliti ríkisins og
Halldór Sverrisson og Sigurgeir Olafsson hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Þórður
Þórðarson, garðyrkjubóndi í Reit, í Reykholts-
dal, var greinilega þreyttur að sitja undir löng-
um erindum og fylgdist félagi hans, Sigfús
Jónsson í Skrúð, með honum og setti saman
eftirfarandi vísur:
Sigurgeir rabbar um ránmaur og lýs,
já, rétt er nú málin að kryjja.
Það þarf allt að drepa, um það er haim vís,
en Þórð minn er farið að syjja.
Víðir hann útlistar alls konar dót
sem öiyggi má okkur skapa.
Hann þruglar um slysin og þau eru Ijót
en Þórður erfarinn að gapa.
Halldór vill upptendra brennisteinsbál
og bendir á ahnœtti þvotta.
Hann veit allt uin þess konar þrifnaðarmál
en Þórður erfarinn að dotta.
Jakob af innsœi upplýsir það
að eitranir framkalli dofa.
Þá á til lœknis að þjóta af stað
en Þórður erfarinn að sofa.
Hjalti með verkfæri, vélar og hjól
sem vafalaust eru til bóta.
Þetta eru allt saman þörfustu tól
en Þórður erfarinn að hrjóta.
Hér verður pöddunum illrœmdu eytt
með eitri, það skilur hver sauður.
Nú legg ég við hlustir en heyri ekki neitt.
Eg held bara að Þórður sé dauður.
(Heimildarmaður: Sigurgeir Olafsson).
Molar
Lágt verð á svína-
KJÖTI í BANDARÍKJUNUM
Verð á svínakjöti í Bandaríkj-
unum féll um u.þ.b. 25% í apríl-
mánuði sl. og er nú sannanlega
undir framleiðslukostnaði. Mark-
aðsfræðingar telja ástæðuna
vera þá annars vegar að fram-
boð á fuglakjöti hafi vaxið í
Bandaríkjunum og hins vegar að
dregið hafi út útflutningi á svína-
kjöti.
Vaxandi framboð á fuglakjöti
stafar aftur af banni á innflutningi
á fuglakjöti frá Bandaríkjunum til
Rússlands, sem þó er talið að
verði aðeins tímabundið. Af því
hefur leitt það að mikið af ódýru
fuglakjöti hefur farið í kjötvinnslu
á kostnað svinakjöts.
Þá hefur útflutningur á svínakjöti
frá Bandaríkjunum mætt harðari
samkeppni frá öðrum löndum,
ekki síst frá Danmörku, eftir að
vandamál vegna gin- og klaufa-
veikinnar i Evrópu eru yfirstaðin.
(Landsbladet nr. 16/2002).
Kattamatur frádrátt-
ARBÆR TIL SKATTS
Hæstiréttur í Danmörku hefur
falist á kröfu bónda um að draga
kattamat frá skattskyldum tekj-
um. Bóndinn, Karl Anker Svend-
sen á Borgundarhólmi, er með
20 ketti sem hann heldur til að
veiða rottur á bænum. Þar sem
rottueitur er frádráttarbært til
skatts taldi hann að kattamatur
væri það einnig, þar sem hann
notaði ekki rottueitur.
Bæði skattstofan, áfrýjunar-
nefnd í skattamálum, Yfirskatta-
rétturinn (Landsskatteretten) og
héraðsdómur (0stre Landsrett)
höfnuðu kröfum bóndans, en
Hæstiréttur féllst á þær.
Þetta mál minnir á árangurs-
lausa baráttu íslenskra bænda
um að fá að færa fæði smala-
hunda sem frádráttarlið á land-
búnaðarframtali.
(Landsbladet nr. 16/2002).
[ 2 - Freyr 4/2002