Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2002, Blaðsíða 44

Freyr - 01.05.2002, Blaðsíða 44
mjög gott og þeim virtist líða vel enda alltaf hreinir og þurrir. Vinnuálag við hirðingu var ekki mikið en jókst með aldri kálf- anna. Rétt er að mæla með því að menn reyni að koma hálmstíum þannig fyrir að hægt sé að moka út úr þeim með vélum. Miklu máli skiptir að hálmurinn sé vel þurr en mikill breytileiki er í þurrefnishlutfalli hálms sem er á boðstólum. Eftir því sem hálmur- inn er blautari þarf oftar að bæta í stíumar og bæði kostnaður við hálminn og vinnuálag eykst. Hálmnotkun og þar með kostnað- ur eykst mjög hratt þegar kálfam- ir hafa náð þriggja mánaða aldri. Hérlendis vantar rannsóknir á hálmnotkun kálfa eldri en ljög- urra mánaða og því er erfitt að fullyrða nokkuð um kostnað við að hafa svo gamla kálfa á hálmi. Hcimildir Friend, T.H. og Dellmeier, G.R., 1988. Common practices and prob- lems related to artificially rearing calves: an ethological analysis. Applied Animal Behaviour Science, 20: 47-62. Hansen, K., 1996. Dybstroelse til kvier, opsamling af al godning i stoelsesmátten. Forskningsrapport nr. 52 fra Statens Husdyrbmgsforsog: 36 s. Landbrugets rádgivningscenter, 2001. Indretning af stalde til kvæg. Tværfaglig rapport. 3. útg. 114 s. Moli Hertar reglur um flutnlng búflár Vísindanefnd ESB um dýra- vernd mælir með hertum reglum um flutninga á búfé um langa vegu. í nýrri skýrslu leggur nefndin til breytingar á hámarks flutningatíma og rými á flutninga- tækjum. Auk þess er lögð áhersla á varúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir dreifingu smitsjúkdóma við flutningana. Þeir sem styðja umhverfis- vænni landbúnaði innan ESB hafa af siðferðilegum ástæðum lengi talað fyrir breytingum í lög- um um langflutninga á búfé, en fyrir daufum eyrum hingað til. Viðhorfin hafa þó smám saman verið að breytast. Siðasti gin- og klaufaveikifar- aldur hafði einnig sín áhrif, en hinn stórfelldi "búfjártúrismi” á meginlandi Evrópu er talinn ein meginástæða þess að faraldur búfjársjúkdóma getur breiðst þar út með eldingarhraða. Landbúnaðarráðherrar ESB hafa lýst áhyggjum sínum af þessu máli. Einkum var farið að gagnrýna langa flutninga á búfé fram og aftur um Evrópu þegar áðurnefndur faraldur kom upp fyrir tveimur árum. Núverandi reglur ESB um flutninga á búfé, sem eru frá árinu 1995, mæla fyrir um það að hámarkstími flutninga sé 8 klst. í raun eru reglurnar hins vegar svo götótt- ar að unnt er að sniðganga þær á ýmsan hátt. Ef flutningatækið uppfyllir ákveðin skilyrði er t.d. leyfilegt að flytja nautgripi og sauðfé allt upp í 28 klst., með eins tíma hvíld eftir 14 tíma flutning. Grísi má flytja i 24 klst. án hlés ef þeir hafa aðgang að vatni á leiðinni. Flutningar búfjár eru deiluefni innan ESB þar sem siðferðileg sjónarmið og hagkvæmi takast á. Skilyrðislaus regla um átta tíma flutning að hámarki er ekki í augsýn, en þó má búast við því að hert verði á ýmsum ákvæðum í þessu sambandi. í fyrrnefndri skýrslu eru t.d. gerðar meiri kröfur til ökumanna, farartækja og um meiri hlé á ferðalögum þannig að búfé fái hvíld. Skortur á eftirliti og um- hirðu með búfénu er talinn eiga þátt í því valdi því gripunum skaða við flutninginn. Hross, grísi, kálfa og lömb má í hæsta lagi flytja 8 klst. I einu og eftir það skulu skepnurnar fá 6 tíma hvíld. Eftir það má flytja búféð I hæsta lagi í átta klst. Fullorðið fé og nautgripi má flytja í 12 tíma í einu, eftir það er sex tíma hvíld áður en það er aftur flutt í 12 tíma. Þá eru gerðar kröfur um rými fyrir gripina. Þannig verða naut- gripir að hafa a.m.k. 20 cm rými fyrir ofan höfuð í eðlilegri stöðu. Þá eru gerðar kröfur um ein- angrun flutningarýmisins, bæði til að forðast hita og kulda. Mælt er með að flytja búfé með járn- brautarvögnum. Eitt mesta vandamálið í þessu sambandi er að þeim reglum, sem þó gilda, er illa fylgst með. Harkaleg meðferð á gripum, flutningar allt upp í 70 klst. og léleg loftræsting er ekki óvana- leg. Embættismannaráð ESB mun nú taka skýrsluna til meðferðar og setja nýjar reglur um flutning dýra í framhaldi af því. (Landsbygdens Folk nr. 15/2002). j 44 - Freyr 4/2002
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.