Freyr - 01.05.2002, Blaðsíða 39
gegnum skepnuna, flæðið í gegn-
um meltingarveginn verður meira
og einkum er það meltanleiki
trénis sem fellur fyrir vikið. Söx-
un gróffóðurs og kjamfóður-
blöndunin hefur hins vegar að
einhverju marki jákvæð áhrif á
meltanleika trénisins. Það vegur
þó ekki alveg upp á móti fallinu
sem verður vegna aukins áts og
afurða og má ætla að heildarfóð-
umýtingin sé um 2-3% lakari á
heilfóðri í samanburði við hefð-
bundna fóðmn.
í Bandaríkjunum er talið að
minna fari til spillis af fóðri þeg-
ar um heilfóðrun er að ræða. Þó
getur þurft að henda miklu fóðri
i kringum blöndunina og á fóður-
göngum þegar heilfóðrið er í
blautara lagi. Reynsla hérlendis
bendir til þess að gróffóðrið nýt-
ist betur þegar það er saxað og
blandað áður en það er gefið.
Gróffóðrið er ákaflega breyti-
legt og skiptir miklu máli að upp-
lýsingar um það séu réttar. Það
varðar einkum fóðurgildi, efna-
innihald og þurrefni en sýnatakan
verður að vera vel skipulögð til
að fá sem best yfirlit yfir þessi
atriði.
Áhrif heilfóðrunar
Á VAMBARSTARFSEMI
Þegar kúm er gefið kjamfóður
fellur sýmstigið í vömbinni.
Fallið verður þeim mun meira
sem skammturinn er stærri. Lágt
sýmstig hefúr neikvæð áhrif á
meltanleika trénis og átlystin
minnkar. Alvarlegar afleiðingar
þessa em m.a. súrdoði. Við heil-
fóðmn fæst meira jafnvægi í
vambarstarfseminni. Með því að
gefa kjamfóður í bland við hæfi-
lega saxað gróffóður verður sým-
stigsfallið vægara. Þannig má
jafnframt vera meira af auðleyst-
um kolvetnum í fóðrinu og gera
það með þeim hætti enn orkurík-
ara.
Fóðurvagn af sömu gerð og notaður var i tilrauninni á Hvanneyri.
Rokgjamar fitusýmr í vömb
skipa stóran sess við framleiðslu
næringarefha í mjólk. Rétt sam-
sett heilfóður getur haft jákvæð
áhrif á myndun og samsetningu
þeirra á þann hátt að mjólkin
verður efiiameiri, einkum á það
við um fitu.
Áhrif heilfóðrunar
Á AFURÐIR OG HEILSU
Eins og fram hefur komið sýna
flestar tilraunir aukið át kúnna
þegar þeim er gefið heilfóður.
Eðlilega eykst þá nyt þeirra og
efnainnihald mjólkurinnar. Með-
altal fjögurra tilrauna sýndu 10%
aukningu í nyt, 13% aukningu í
fitu og 3% aukningu í próteini.
Viðbótin er einkum bundin við
þijár fyrstu vikur mjaltaskeiðsins.
Reynsla í Bandaríkjunum styður
þessar tilraunir þar sem kúabúin
með heilfóðmn em gjaman á
toppafurðalista. Þetta er þó mis-
jafnt eftir ríkjum.
Almennt er álitið að minna sé
um framleiðslutengda sjúkdóma,
s.s. súrdoða, súra vömb og al-
genga efnaskiptasjúkdóma, á bú-
um sem stunda heilfóðmn. Um-
fangsmikil dönsk tilraun hefur
sýnt fram á heilbrigðari kýr sem
fá heilfóður, óháð kjamfóðurhlut-
falli í skammtinum. Þá em vís-
bendingar um að fijósemin aukist
við fóðmn á heilfóðri. Fyrir vik-
ið á lyfja- og dýralæknakostnaður
að verða minni, auk þess sem öll
fjósverk verða líkamlega léttari.
Hreinleiki og öryggi hráefnis-
ins skiptir miklu máli við
heilfóðran. Komi upp eitmn í
hráefhi, sem síðan er blandað í
heilfóður, er voðinn vís; út-
breiðsla smits getur farið hratt og
víða um fjósið.
Tilraun með blandað og
SAXAÐ FÓÐUR Á HVANNEYRI
Hér á eftir verður kynnt tilraun
með blöndun og söxun fóðurs
sem framkvæmd var á Hvanneyri
haustið 2000.
Tilraunin sjálf stóð í níu vikur
og var henni skipt í þijú þriggja
vikna tímabil. Aðlögunartímabil
tilraunar var tvær vikur. í til-
rauninni vom kelfdar kvígur, ný-
bomar fyrsta kálfs kvígur og
Freyr 4/2002 - 39 |