Freyr - 01.05.2002, Blaðsíða 52
NAUT TIL NOTKUNAR VEGNA AFKVÆMAPRÓFANA
Úði 01004
Fæddur 5. mars 2001 á félagsbúinu
í Ytri-Skógum, Austur-Eyjafjalla-
hreppi.
Faðir: Klerkur 93021
Móðurætt:
M. Hvítkolla 290,
fædd 13. ágúst 1997
Mf. Búi 89017
Mm. Bjartleit 228
Mff. Tvistur 81026
Mfm. 330, Þorvaldseyri
Mmf. Gyrðir 86980
Mmm. Húfa 192
Lýsing:
Dökkkollóttur, húfóttur með leista á
fótum, smáhnýflóttur. Sver haus. Jöfii
yfirlína. Útlögur og boldýpt í góðu
meðallagi. Malir breiðar og sterklegar
en hallandi og fótstaða góð. Hnellinn
gripur með góða holdfýllingu.
Umsögn:
Úði var 72 kg að þyngd við 60 daga
aldur en ársgamall var hann orðinn
340 kg. Vöxtur hans á þessu aldurs-
bili var því að jafnaði 879 g á dag.
Umsögn um móður:
í árslok 2001 var Hvítkolla 290 bú-
inn að mjólka í 2,2 ár, að jafnaði
6740 kg af mjólk á ári með 3,44%
prótein sem gefur 232 kg af mjólk-
urpróteini. Fituhlutfall 3,64% sem
gerir 245 kg af mjólkurfitu. Sam-
anlagt magn verðefna 477 kg á ári
að jafnaði.
Nafn Kynbótamat Útlitsdómur
ognr. móður Mjólk Fita % Prótein Heiid % Frumu- tala Stig alls Júgur Spenar Mjöltun Skap- gerð
Hvítko 290 Ial21 103 111 124 94 83 17 16 18 4
Kolskeggur 01006
Fæddur 23. mars 2001 hjá Eggert
og Páli, Kirkjulæk, Fljótshlíð.
Faðir: Snarfari 93018
Móðurætt:
M. Huppa241,
fædd 29. mars 1997
Mf. Búi 89017
Mm. Aska 152
Mff. Tvistur 81026
Mfm. 330, Þorvaldseyri
Mmf. Dálkur 80014
Mmm. Dúfa 107
Lýsing:
Dökkkolóttur, smáhnýflóttur. Svip-
frítt höfuð. Nokkuð jöfn yfírlína.
Sæmilega boldjúpur en ekki út-
lögumikill. Malir örlítið hallandi og
aðeins þaklaga. Fótstaða rétt og
sterkleg. I meðallagi holdfylltur.
Umsögn:
Kolskeggur var 65,8 kg að þyngd tveg-
gja mánaða en var fluttur að Hvanneyri
áður en hann náði eins árs aldri. Vöxtur
á Uppeldisstöðinni frá tveggja mánaða
aldri var 886 g á dag að meðaltali
Umsögn um móður:
Huppa 241 var búin að mjólka í árs-
lok 2001 í 2,2 ár, að jafnaði 8454
kg af mjólk á ári. Próteinhlutfall
mældist 3,25% sem gefur 274 kg af
mjólkurpróteini. Fituprósenta
3,39% sem gefur 286 kg af mjólk-
urfitu. Samanlagt magn verðefna
því 560 kg á ári að meðaltali.
Nafn Kynbótamat Útiitsdómur
og nr. móður Mjólk Fita Prótein Heild % % Fmmu- tala Stig alls Júgur Spenar Mjöltun Skap- gerð
Huppa 241 137 88 92 130 89 83 16 17 19 5