Freyr - 01.05.2002, Blaðsíða 50
Árið 2001, ár búflðrslúkdðma f ESB
r
Arsins 2001 verður minnst í
ESB sem árs búfjársjúk-
dómanna. Upp í hugann koma
myndir af skjögrandi kúm, ör-
væntingafullum eigendum kjöt-
verslana, sem stóðu tómar,
snarkandi eldar þar sem verið
var að brenna skrokka af kúm
og kindum og dýr sem sætt
höfðu slæmri meðferð í flutn-
ingum og á uppboðsmörkuð-
um.
Kúariðukreppa 1
Aður sögðu menn að ESB yrði
aldrei samt eftir mars 1996 er
fyrsta áfallið varð þegar tengsl
fundust milli kúariðu og Creutz-
feld Jakobs veiki í mönnum.
Auk Bretlands (en þar hafa nú
komið upp yfir 200 þúsund kúa-
riðutilfelli), þá urðu m.a. Sviss,
Irland og Portúgal þama fyrri
miklu áfalli.
Hinar pólitísku afleiðingar urðu
miklar. Þing ESB kom á fót eft-
irlitsstofhun með neytenda- og
matvælaöryggismálum, SANCO.
Eftir dioxínhneykslið sumarið
1999 gaf embættismannaráð ESB
út hvítbók um matvælaöryggi
sem kom út snemma árs 2000.
Yfir 80 tillögur í þeirri bók er nú
verið að framkvæma, m.a. ný
matvælalöggjöf og ný heilbrigð-
islöggjöf.
Kúariðukreppa II
Kreppumar á 10. áratugnum
urðu þó eins og stormur í vatns-
glasi miðað við kúariðukreppuna
sem hófst í nóvember 2000 og
stóð mestallt árið 2001 og kom
við flest lönd sambandsins. Veik-
in var þá á dagskrá nær allra
funda í ráðherraráði ESB. Að-
ferð til skyndiprófana á búfé, sem
fundin var upp, gerði það kleift
að prófa mikinn fjölda gripa.
Mest var áfallið í Þýskalandi þar
sem yfirvöld veittu almenningi
falskt öryggi með þvi að fúllyrða
að landið væri laust við kúariðu,
sem reyndist svo ekki standast.
Neysla nautakjöts dróst saman
um 70% og ráðherrar urðu að
segja af sér. Arið 2001 fúndust
123 kúariðutilfelli í Þýskalandi.
Frakkland varð einnig fyrir
miklu áfalli þegar í ljós kom að
kjöt frá smituðu býli hafði komist
í smásöluverslanir. Þar í landi
fundust 450 kúariðutilfelli á
tímabilinu 1999-2001.
Síðan hefur veikin fundist í
hverju landinu eftir öðra, m.a. í
Finnlandi og Austurríki í desem-
ber 2001 sem voru talin í lítilli
áhættu um að veikin kæmi þar
upp. Jafnvel í Japan hafa þrjú
fundist tilfelli.
Ymsar varúðarráðstafanir hafa
verið gerðar til að koma í veg
fyrir dreifíngu sjúkdómsins. Frá
ársbyrjun 2001 er t.d. bannað að
nota kjöt- og beinamjöl í fóður
dýra í kjöt- og mjólkurfram-
leiðslu. Gengið er æ harðar
eftir því að fjarlægja þá vefí
sem einkum eru taldir dreifa
smiti, svo sem mænuna, og
tekin var upp rannsókn á öllu
kjöti af nautgripum 30 mánaða
og yngri.
Sjaldan er ein báran stök
A sama tíma og kúariðutilfell-
um fór fækkandi í Bretlandi en
fjölgandi í öðmm löndum ESB
þá kom upp gin- og klaufaveiki í
Norður-Englandi hinn 20. febrúar
árið 2001. Liklegast er talið, en
ekki sannað, að veikin hafí borist
með matarúrgangi sem gefinn var
svínum. Svínin smituðu síðan
sauðfé sem dreifði smitinu með
örskotshraða á búfjármörkuðuni
og með flutningum um landið áð-
ur en ljóst var að sjúkdómurinn
haföi komið upp í landinu. Þann-
ig er talið að 43 býli hafi þegar
verið smituð hinn 20. febrúar.
Alls kom smitið upp á 2030
býlum, síðast hinn 30. september
209I.
Ahættan varðandi dreifingu
gin- og klaufaveikinnar varð aug-
ljós þegar veikin barst til Frakk-
lands með flutningi á sauðfé
þangað. Þar smituðust kálfar
sem verið var að flytja til Hol-
lands.
Aður en það gerðist höfðu
dýravemdarsamtök sýnt skelfí-
legar myndir af flutningi búfjár á
óásættanlegan hátt og misþyrm-
ing þess á mörkuðum. Sjónarmið
dýravemdar um að draga úr við-
skiptum með lifandi búfé hafa nú
fengið aukinn byr í seglin.
Þá vakti aflífún og brennsla á
bæði sjúku og heilbrigðum
skepnum mikil viðbrögð almenn-
ings og kröfúr komu upp um að
leyfa bólusetningu gegn gin- og
klaufaveiki sem á hinn bóginn er
talin geta valdið því að veikin
geti dulist lengur.
A ráðstefnu í Bmssel í desem-
ber sl. um gin- og klaufaveiki var
samþykkt að auka þurfi eftirlit
þannig að smitaðar hjarðir fínnist
fljótt. Þá var talið nauðsynlegt
að styðja lönd þar sem veikin er
landlæg við að berjast gegn
henni. Þá var samþykkt að virða
meira sjónarmið dýravemdar og
kanna betur félagsleg og hag-
ffæðileg áhrif sjúkdómsfaraldra á
borð við gin- og klaufaveiki.
Síðasta orðið hefur ekki verið
sagt í ESB, hvorki varðandi kúa-
riðu, gin- og klaufaveiki né bú-
fjárflutninga.
(Intemationella Perspektiv
nr. 1/2002).
| 50 - Freyr 4/2002