Freyr - 01.12.2002, Blaðsíða 16
Hestamlðstöð íslands 2002
Að venju hafa verkefni
Hestamiðstöðvar íslands
verið margbreytileg. I upphafi
ársins stóð Hestamiðstöðin fyr-
ir ráðstefnu um íslenska hest-
inn og hlutverk hans í menn-
ingu þjóðarinnar og bar hún
nafnið „Hálft er líf á hestbaki“.
Ráðstefnan var vel sótt og þótti
takast vel.
Mótakerfi hestamanna hefur
verið í smíðum á árinu 2002 og
hefúr Hestamiðstöð íslands Qár-
magnað þá framkvæmd, en verk-
efnið er unnið í samvinnu við
Landssamband hestamannafé-
laga. Að auki hefur Hestamið-
stöðin staðið fyrir prófunum á
kerfinu og skrifaður hefúr verið
leiðarvísir fyrir framtíðar notend-
ur kerfisins. Mótafengur er nú
tilbúinn til notkunar og verða öll
hestamannamót sumarsins færð í
þetta kerfi. Bændasamtök Is-
lands sáu um forritun kerfisins.
A vormánuðum gerði Hesta-
miðstöð Islands úttekt á undir-
burði í hesthúsum í þeim tilgangi
að athuga hvort hagkvæmt væri
að vinna mó sem undirburð hér á
landi en mór er talin sérlega
heppilegur sem undirburður í
hesthúsum, bæði útfrá heilsu og
þrifnaði hestanna sem og kostn-
aði og endumýtingarmöguleik-
um. Uttektin leiddi í ljós að
markaður fyrir undirburð væri
það lítill að ólíklegt væri að
vinnsla á mó gæti staðið undir
sér. Hægt væri þó að nýta aðrar
tegundir af undirburði, sem fram-
leiddur er úr hráefni sem til fellur
á Islandi, svo sem hálmi og dag-
blaðapappír en við Tækniskóla
Islands er nú verið að rannsaka
eiginleika dagblaðapappírs sem
undirburðar.
I haust náðist langþráður áfan-
gi, þegar kennsla i reiðmennsku
hófst við Fjölbrautarskóla Norð-
urlands vestra. Námið byggir á
fimm stiga knapakerfi sem hann-
að hefúr verið í samræmi við
reglur Félags tamningamanna en
námsefnisgerð var í höndum
Ataks í hestamennsku. Tíu nem-
endur hófu nám á brautinni og
höfðu átta þeirra lokið fyrstu
þremur stigum kerftsins nú um
áramótin, en kennsla á ljórða
stigi hefst nú á vorönninni. Hér
er um að ræða tilraunaverkefni
sem Hestamiðstöðin styrkir á
margvíslegan hátt, en vonast er
til að verði að bjóða uppá nám í
reiðmennsku við fleiri framhalds-
skóla í framtíðinni.
Hugmyndir um heildstætt reið-
leiðakerfi og Ijármögnun þess
voru til umræðu á haustdögum. I
tilefni af þessu gerði Hestamið-
stöð Islands grófa arðsemisúttekt
á slíkri framkvæmd, þjóðhagslega
séð. Uttektin sýndi ffarn á 17-
43% arðsemi af lagningu kerfisins
miðað við stofnkostnað upp á 1,5
milljarða kr. Sem dæmi má nefna
að áætluð arðsemi af Sundabraut í
Reykjavík er 14% og af Siglu-
íjarðargöngum um 14,6%.
Rannsóknarverkefni um gæði í
hestatengdri ferðaþjónustu var
haldið áfram og eru væntanlegar
niðurstöður úr því verkefni með
vorinu. Hólaskóli hefur haft um-
sjón með framkvæmd verksins.
Þróun á hestasýningum á Vind-
eimamelum er eitt af þeim verk-
efnum sem Hestamiðstöðin átti
að koma að samkvæmt viðskipta-
áætlun. Sýningamar hafa reynd-
ar verið fluttar frá Vindheima-
melum frá því að viðskiptaáætl-
unin var skrifuð, en Hestamið-
stöðin hefúr sýnt mikinn vilja á
að koma að þessu máli. Ákveðið
var í lok ársins 2002 að kaupa
sýningamar af eigendum þeirra
og þróa þær í nýju fyrirtæki sem
stæði að rekstri á þeim. Kaupin
gengu í gegn i desember og er nú
unnið að því að stofna fyrirtæki
um reksturinn. Sýningamar
verða að mestu með óbreyttu
sniði í ár en reiknað er með að
töluverðar breytingar verði á
þeim í framtíðinni.
Breytingar hafa orðið á rekstri
Hestamiðstöðvarinnar, en Þor-
steinn T. Broddason lét af störf-
um sem framkvæmdastjóri stofn-
unarinnar um áramót og mun
snúa sér að öðrum verkefnum.
Hann mun þó vinna áfram að
nokkmm verkefnum sem hann
hefur haft umsjón með fyrir
Hestamiðstöðina
Styrkir
Á árinu 2002 veitti Hestamið-
stöð Islands eftirfarandi styrki:
Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir
vegna ferðar á
* FEIF Youth Cup í Svíþjóð
kr. 30.000
* Landslið LH vegna þátttöku í
keppni á norðurlandamóti ís-
lenskra hesta
kr. 300.000
* Sögusetur íslenska hestsins
kr. 3.000.000
Framhald á bls. 12
I 16-Freyr 10/2002