Freyr - 01.12.2002, Blaðsíða 19
og er einstakur í sinni röð fyrir
eitt hestakyn.
Upprunaland
ÍSLENSKA HESTSINS
Þótt það virðist liggja í augum
uppi að upprunaland íslenska
hestsins sé Island er ekki sjálf-
gefið að svo sé. Hlutverk upp-
runalands er að hafa forystu um
ræktunarmál kynsins og önnur
mál er snerta hestakynið beint.
Unnið hefur verið að því að fá
reglugerð þess efnis samda og
viðurkennda, fyrst á Islandi og
hjá FEIF og þar á eftir í stofnun-
um Evrópusambandsins. Slik
reglugerð var gefin út af land-
búnaðarráðuneytinu h'inn 7. ágúst
2001 en er nú á lokastigi í endur-
útgáfii. Astæður endurútgáfunnar
eru fyrst og fremst nýjar og al-
þjóðlega samræmdar reglur um
kynbótasýningar. Þegar þessi
endurútgefna reglugerð hefur
verið kynnt og samþykkt í
Brussel telst málið í höfn.
Eiðfaxi net ehf.
Eiðfaxi net var stofnað á síð-
ustu vikum ársins 2000. Ataks-
verkefhið lagði þar til 5 milljón
króna hlut í þeim tilgangi að aðal-
netgátt'fyrir íslenska hestinn verði
á íslandi. Að auki eiga þar hlut
Hestamiðstöð Islanrds og Eiðfaxi
ehf. Fyrirtækið er stofhað um rek-
stur fféttarásar og er ætlað að vera
aðalgátt íslenskra hesta-
áhugamanna, á Islandi sem er-
lendis. Þeim tilgangi skal ná með
því að bjóða upp á fjölbreytt af-
þreyingarefni, fféttir, ffæðslu og
ffóðleik, auk upplýsinga um þá
sem selja hross og þjónustu þeim
tengdum. Eiðfaxi net hefur náð
athyglisverðum árangri í aðsókn á
netinu og hefur lengst af verið á
meðal 10 af mest heimsóttu
heimasíðum á Islandi. Engu að
síður hefur Eiðfaxi net átt í rek-
strarörðugleikum sem fyrst og
ffemst stafa af því að tekjuöflun
hefur ekki gengið sem skyldi.
Rásin byggir tekjur sínar algerlega
á sölu auglýsinga en til þessa hefur
mátt lesa fféttir á www.eidfaxi.is
endurgjaldslaust. Verið er að
vinna að endurskipulagningu Eið-
faxa ehf. sem og Eiðfaxa nets og
birtast fféttir þar að lútandi í upp-
hafi árs 2003 ef að líkum lætur.
Landsmót ehf.
Átaksverkefnið stuðlaði að
stofhun Landsmóts ehf. á haust-
dögum 2000. Átaksverkefnið
lagði ffam stofnframlag og styrk
til starfsemi hins nýja félags í
formi vinnuffamlags starfsmanns.
Hafði hún umsjón með gerð
heimasíðu Landsmótsins og gerð
bæklings fyrir Landsmótið og var
það hugsað þar til starfsmaður
hefði verið ráðinn til þess. Verk-
efnisstjóri var svo ráðinn á haust-
dögum 2001 til Landsmótsins og
í framhaldi af því framkvæmda-
stjóri. Átaksverkefhið veitti
Landsmóti ehf. lán til að Lands-
mót ehf gæti gæti staðið straum
af útgjöldum til markaðssetningar
og ýmiss undirbúnings mótsins.
Lánið var vaxtalaust og var end-
urgreitt fyrir áramót 2002/2003.
Að auki kostaði Átaksverkefnið
vinnu markaðsmanns (sjá hér á
eftir) við ráðgjöf á síðustu metr-
unum við markaðssetningu
Landsmótsins sem og móttöku
Önnu Bretaprinsessu sem var sér-
stakur heiðursgestur Landsmóts-
ins 2002. Á haustdögum skipu-
lagði Átaksverkefnið svo
Málþing um málefni Landsmóts
sem bar yfirskriftina „Landsmót
2002, það sem vel var gert og
það sem betur mátti fara“. Öllum
aðilum sem að Landsmótshaldinu
komu var boðið til þátttöku;
mótshöldurum, blaðamönnum,
dómurum, fulltrúum keppenda og
fulltrúum áhorfenda. Er skemmst
frá því að segja að málþingið
tókst mjög vel og komu margir
áhugaverðar hugmyndir þar fram
sem geta komið næstu Lands-
mótshöldurum til góða og sparað
þeim að reka sig á sömu hlutina
enn og aftur. Almennt voru mál-
þingsgestir mjög ánægðir með
Landsmótið í heild sinni.
Markaðsmál
Á verkefnalista Átaksins er
einnig að samræma markaðsstarf
í Bandaríkjunum til að efla þar
einn mest vaxandi og nýjasta
markað fyrir íslenska hestinn er-
lendis. Starfsmaður verkefnisins
gerði frumkönnun á möguleikum
til aðgerða á þeim vettvangi og
átakið réð i framhaldi af því sér-
fræðing í ímyndar- og markaðs-
málum sér til fulltingis. Var hlut-
verk hans samkvæmt skriflegum
samningi að skrifa greinar í er-
lend hestatímarit, aðstoða við
markaðssetningu Landsmóts og
fleira í þeim dúr. Ekki er stjóm
Átaksins fullkomlega ánægð með
störf hans, að frátalinni vinnu
hans fyrir Landsmót ehf. (sjá hér
að framan), og er ffamhald á
vinnu hans í nánari skoðun.
Menntamál
Ekki er ofsagt að stærstur hluti
af vinnu starfsmanns Átaksverk-
efnisins hafi falist í vinnu við
menntamálin svokölluðu, eða
knapamerkjastiga. Því birtist hér
í blaðinu sérstök grein sem reifar
þau mál og kynnir.
Önnur verkefni
Að auki vann átaksverkefnið
að ýmsum öðmm verkefnum.
Hestavegabréf Meðal annarra
verkefna var fyrirferðarmikið
verkefni með umsjón með hönn-
un og útgáfu hestavegabréfs.
Vegabréfið er gert eftir reglugerð
Evrópusambandsins en í löndum
þess þarf hestavegabréf að fylgja
öllum hestum sem em þar á
Freyr 10/2002-19j