Freyr - 01.12.2002, Blaðsíða 38
Kynbótasýnlngar 2002
Þátttaka
Metþátttaka var í kynbótasýn-
ingum á síðastliðnu ári en alls
voru metin 1285 hross. Sum voru
metin oftar en einu sinni en dóm-
ar voru alls 1643, þar af fullnað-
ardómar 1510. í 1. töflu sést þró-
un í þátttöku síðustu ár. Þar má
m.a. sjá að árin 1997, 1999 og
2001 erhlutdeild endurdæmdra
hrossa um 12%. Landsmótsárin
er hlutfallið eðlilega hærra þar,
sem öll hrossin sem koma fram á
landsmóti, koma a.m.k. tvisvar
fram á árinu en sé tekið tillit til
þess er hlutfall endursýndra
hrossa svipuð. Arið 2000 sker sig
þó verulega úr þar sem þriðjung-
ur var endurdæmdur innan ársins.
1 1. töflu má sjá þróunina í þátt-
tökunni hin seinni ár.
Fyrir hrossaræktarstarfið al-
mennt skiptir mjög miklu máli að
sem stærstur hluti úr hverjum ár-
gangi komi til dóms þannig að
upplýsingagrunnurinn sé sem
allra víðtækastur. Auðvitað er
ljóst að þau hross, sem koma til
dóms, eru aðeins hluti stofnsins
og allnokkuð valinn. I 2. töflu er
Óskráð (m.v.
foröagæslu)
1. mynd. Hlutdeild skráðra og
dæmdra hryssna í árgöngum 1992-
1996.
listað upp eftir árgöngum og kyni
þróun mála í þessum efnum. Ekki
er farið lengra en til 1996 enda er
eftir það farið að gæta þess veru-
lega að hross eru hreinlega ekki
komin enn til dóms.
Það er afar athyglivert hversu
stór hluti af skráðum hrossum
kemur til dóms, en þar eru auð-
vitað hryssumar mun marktækari
þar sem sárafáir geldingar eru
dæmdir af augljósum ástæðum. A
1. mynd er þetta ennþá skýrara
en þar em teknir saman hryssu-
árgangamir frá 1992-1996 og
skoðað hlutfall dæmdra út frá
skráðum hrossum og óskráðum.
Þama er því tekinn inn sá hluti úr
viðkomandi árgöngum sem sam-
kvæmt forðagæsluskýrslum er
óskráður í landinu. Þama kemur
hið óvænta í ljós, þ.e. hversu yf-
irgnæfandi hluti hrossastofnsins
er í raun og veru skráður í upp-
mnaættbók íslenska hestsins -
Feng. Einungis 9% fæddra hrossa
á þessu árabili er óskráður, þ.e.
ætt uppmni og aðrar gmnnupp-
lýsingar. Annað, sem er ánægju-
legt, er að rúmlega ljórðungur
allra fæddra hrossa er með dóm
sem þýðir að við höfúm gleggri
mynd af stofninum hvað dóms-
eiginleikana áhrærir en margur
hefði talið. Telja má að folalda-
fjöldi samkvæmt forðagæslu-
skýrslum sé nú til dags mjög ná-
lægt raunvemlegri tölu og því
gefi þetta rétta mynd.
Takmarkið er auðvitað að upp-
lýsingar liggi fyrir um sem
stærstan hluta stofnsins á hveij-
um tíma en auðvitað hlýtur samt
sem áður ákveðin síun að eiga
sér stað af hagkvæmnisástæðum
þannig að aldrei verður hægt að
ætlast til þess að öll hross komi
til dóms.
I 3. töflu er yfirlit um einstakar
sýningar ársins þar sem ffam
1. tafla. Þátttaka í kynbótasýninqum síðustu árin
1997 1998 1999 2000 2001 2002
Heildarfjöldi dóma 1429 1473 1134 1771 1226 1643
Fjöldi fullnaðardóma 1236 1304 979 1578 1049 1510
Hross fullnaðardæmd 1101 1108 878 1185 940 1285
Endursýnd innan ársins 12% 18% 12% 33% 12% 18%
2. tafla. Fjöldi skýrslufærðra hrossa og hlutdeild sýndra
í hverjum árgangi
1991 1992 1993 1994 1995 1996
Skráðar hryssur 3185 3478 3428 3251 3255 2965
-þar af með dóm 38% 36% 32% 27% 28% 22%
Skráðir hestar 3127 3122 3187 2940 3052 2834
- þar af með dóm 12% 14% 10% 14% 11% 13%
| 38-Freyr 10/2002