Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1950, Qupperneq 22

Skátablaðið - 01.12.1950, Qupperneq 22
Aðalhliðið á Gilwell Park. um, sem framleiddir eru, og lét fara vel um sig, rétt eins og heima hjá sér, ef ekki betur. Nóg var af innlendum og erlendum tímaritum til þess að lesa, og svo voru flug- freyjurnar, ég segi aftur: blessaðar, því þær eiga það sannarlega skilið, alltaf að koma til manns til þess að gefa manni að borða, eða aðeins til þess að spyrja hvernig líðan væri. Með öðrum orðum, að fljúga er, eins og stúlkurnar segja stundum, alveg draumur. Það var nú eitthvað annað en þegar ég þurfti að kúldrast niðri í lest á strandferða- skipinu Esju á leið til Noregs árið 1946. Þá lá maður á liálmdýnu á rniðju lestar- gólfinu í svefnpoká og í þokkabót svo sjó- veikur, að ég var í heila viku að jafna mig eftir volkið, en það er nú önnur saga. Við svifum létt á vegurn vindanna ofar skýjum, í sólskini og svölum vindi og skemmtum okkur við að virða fyrir okkur margbreytilega skýjaflóka, sem svifu eða lágu fyrir fótum okkar, og voru á meistara- legan hátt sí og æ að breyta um svip og lög- un. Eftir 6 stunda flug var svo lent á Nort- holt flugvellinum. Sá flugvöllur var byggður um 1940 ef ég man rétt, og kom rnikið við sögu, þegar loftorustan um England var háð. Var þá þessi flugvöllur ein aðalbæki- stöð orustuflugvéla. — Þarna stigum við út úr flugvélinni, og við beðin að fara inn í eina aðalbygginguna, sem þarna er til þess að láta athuga vegabréf og farangur og tók það nokkurn tíma. Að því loknu var farið upp í sérstaka bíla, sem fluttu okkur til að- alstöðva flugfélagsins B. E. A. inni í Lond- on, en þangað var hálfrar stundar akstur. Er nú þangað kom var okkur afhentur farangur okkar og hélt hver sína leið, nerna ég. Eg beið þarna í afgreiðslunni eftir ein- hverjum, sem átti að taka á móti mér. Er ég hafði beðið í klukkutíma og orðinn úr- kula vonar um að nokkur kæmi, áræddi ég að biðja stúlku, sem þarna vann, að hjálpa mér. Hún hringdi á skrifstofu enska skáta- sambandsins, en þar eð sunnudagur var, var skrifstofan lokuð. Þá hefur hún fengið ein- hverjar upplýsingar, því að hún hringdi strax í annað númer. Er hún hafði lokið samtalinu, sagði hún mér, að ég væri beð- inn afsökunar á þessum mistökum, sem stöf- uðu af því, að skeyti sem átti að vera komið til þeirra, viðvíkjandi komu minni, hafði enn ekki borizt þeim í hendur. Sagði hún mér ennfremur, að ég ætti að fara á Viktor- íustöðina, taka þar strætisvagn númer 38 og fara með honum til Chingford. Þar mundi svo skáti taka á móti mér og koma mér til Gilwell, en Gilwell er hálfa aðra rnílu frá Chingford, sem er ein af útborg- um London. Ég þakkaði svo stúlkunni fyrir hjálpina, því ég veit ekki livernig farið hefði fvrir mér, ef þessi stúlka hefði ekki verið svona einstaklega hjálpsöm og alúðleg. En svona eru allar enskar skrifstofustúlkur og af- greiðslustúlkur undantekningarlaust. Ég get ekki annað en minnzt á þetta, því að maður á öðru að venjast hér heima. Ég fór nú eftir þeim leiðbeiningum sem ég hafði fengið og eftir þriggja kortéra 102 SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.