Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.02.1911, Qupperneq 5

Sameiningin - 01.02.1911, Qupperneq 5
357 mál sín, að verulega megi vel heita og því sjálfu til áncegju. Fullorðna fólkið yrði að sjálfsögðu í deild útaf fyrir sig í sunnudagsskólanum; biblíudeild mætti ef til vill nefna þann hóp. Kennslunni þar auðvitað ekki hagað alveg einsog í barna-deildunum — aðallega með samrœðum um eitthvað í biblíunni fyrirfram á- kveðið, sem allir hefði lesið og íhugað heima hjá sér. IJm fyrirkomulagið skal að öðru leyti ekki rœtt nú, nema aðeins geta þess, að þar sem svo stendr á, að fyr- irtceki þessu — biblíudeild fyrir fullorðið fólk, heyrandi til sunnudagsskólanum — verðr með hœgra móti haldið uppi á einhverjum öðrum degi vikunnar en sunnudeg- inum, þá sakar það ekki, svo framarlega sem ákveðn- um tíma í viku hverri er í raun og veru varið til þessa verks, livern dag sem vera skyldi. Biblíudeildina má eins fyrir því telja með sunnudagsskólanum. Vitanlega verðr ekki við því búizt, að allt fólk fullorðið geti á sama tíma sókt sunnudagsskóla eða sameiginlega í einum hóp unnið það verk sér til aukinn- ar þekkingar á guðs orði, sem biblíudeild hefir sett sér fyrir. En þeir, sem ekki geta verið þar með, eiga þess þó allir kost að bœta úr því að einhverju leyti — með reglubundnum lestri guðs orðs heima hjá sér í tóm- stundum, sem allir hafa. Biblíudeildin í gangi myndi gefa þeim til þess hvöt, og með því móti kœmist guðs orð aftr inn á heimili safnaðafólksins. En er ekld annar auðveldari og eðlilegri vegr til að ná takmarki því, sem hér er að stefnt? Sá vegr, að unginennin héldi eftir ferminguna áfram í sunnudagSr skólanum og yxi þar upp þangað til úr þeim væri orðin deild fullorðins fólks. Og innan ekki allmargra ára væri svo allt fólkið, sem í söfnuðinum hefði upp alizt, orðið að biblíudeild. — í fljótu bragði sýnist þetta á- kjósanlegasti vegrinn. En reynsla iiðinna ára í sögu kirkjulífs Vestr-Islendinga hefir sannfœrt oss — ætti að hafa sannfœrt alla — um, að vegr þessi er ófœr. Ungmennin vilja eðlilega feta í fótspor feðra og mœðra, og annars fullorðins fólks. Hví ekki að temja sér háttu

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.