Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.02.1911, Qupperneq 23

Sameiningin - 01.02.1911, Qupperneq 23
375 þess, hve mjög tæring brei'ðist út; meira en fjórði partr allrar brjálsemi af völdum þess. 2. Hinar freku kröfur Benhadads knýja Samaríumenn til mót- spyrnu. — Menn sjá nú, hvað áfengisofnnautnin hefir i för með sér, og gjöra samtök gegn henni. Bindindisfélög. Ungt fólk kristið sjálfkjörið framarlega í fylking (sbr. 14. \\). Áfengis-löggjöf. Drykkjumönnum ekki framar trúað fyrir eimlestum. 3. Spámaðr drottins hvetr Akab. — Fyrir guðlega hvöt og fulltingi verðr baráttuna að heyja gegn áfengisbölinu. Guð vill það, og mannkærleikr á að knýja kristna menn til að taka höndúm saman um að leysa fjölda manna undan hryllilegustu ánauð, og mannkynið allt undan sárasta böli. Ef þeir reynast trúir, þá er sigrinn vís. Lexía 26. Marz 1911: Yfirlit—Minnistexti: Sæl er sú þjóðl, sem á drotíin aff guffi ('Sálm. 144, 15E Les: 1. Kon. 12—22; 2. Kon. 1—4; 2. Kron. 14—17. Rifjið upp allar lexíurnar. Þær ná yfir fyrstu 80 árin eftir skifting ríkisins. í báðum ríkjum var sterk tilhneiging til hjáguða- dýrkunar, sem spámenn drottins voru að berjast á móti. Þær sýna, hvernig guðhræðslan er hinn eini áreiðanlegi gæfuvegr þjóða og einstaklinga, en guðleysi leiðir alltaf til óláns fOrðskv. 14, 34A Lexía 2. Apríl 1911: Elísa læknar Naaman hinn sýrlenzka —2 Kon. 5. 1. En Naaman, hershöfðingi Sýrlands-konungs, var í miklum metum hjá herra sínum og i hávegum hafðr, því að undir forustu hans hafði drottinn veitt Sýrlendingum sigr; maðrinn var mesti kappi, en líkþrár 2. En Sýrlendingar höfðu farið herför í riðlum og haft burt af ísraelslandi unga stúlku; þjónaði hún konu Naam- ans. 3. Hún sagði við húsmóður sína: Eg vildi óska^ að húsbóndi minn væri kominn til spámannsins í Samaríu; hann myndi losa hann við líkþrána. 4. Þá fór Naaman og sagði herra sínum frá á þessa leið: Svo og svo hefir stúlkan frá ísraelslandi talað. 5. Þá mælti Sýrlands-konungr: Far þú; eg skal senda ísraels-konungi bréf. Lagði hann þá á stað og tók sér tíu,talentur silfrs og sex þúsund sikla gulls og tíu alklæðnaði. 6. Hann fœrði ísraels-konungi bréfið, er var á þessa leið: Þegar bréf þetta kemr þér í hendr, þá skalt þú vita, að eg hefi sent til þín Naaman, þjón minn, og skalt þú losa hann við Iikþrá ,hans. 7. En er ísraels-konungr hafði lesið bréfið, reif hann klæði sín og mælti: Er eg þá guð, er deytt geti og lifgað? fyrst hann gjörir mér orð um að losa mann við líkþrá hans. Megið þér þar sjá og skynja, að hann leitar saka við mig. 8. En er Elísa, guðsmaðrinn, frétti, að Israels-konungr hefði rifið klæði sín, sendi hann til konungs og lét segja honum: Hví rífr

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.