Skólablaðið - 01.05.1992, Side 29
SKÓLABLAÐIÐ 29
Bal aux Violons
Þrefalt „Magister optimus“ hljómaði virðulega yfir sal-
inn þegar við Ragnheiður Briem og Kristín Kaaber
birtumst. Ég get stært mig af því að hafa setið kvöldverð-
arboð sænsku konungshjónanna (að vísu ásamt 150
öðrum!) þar sem koma hvers og eins var kynnt af siða-
meistaranum með miklum tilburðum og serimóníum, og
ég get fullvissað ykkur um að Þórmundur Jónatansson var
í engu eftirbátur hins sænska kollega síns við konunglegu
hirðina i Stokkhólmi.
Ljúfir fiðlutónar umvöfðu okkur í fölgulri birtu íþöku-
salarins, og gráu hversdagslegu súlurnar sem maður svo
oft rakst í á fullri ferð í tjúttinu hér forðum daga á skóla-
böllunum veittu nú salnum konunglega reisn. Háir vel
fylltir bókaskáparnir báru með sér andblæ liðinna alda rétt
eins og þeir innihéldu ekkert annað en gömlu fallegu
bækurnar hans Steingríms Thorsteinssonar. Og inn sveif
svo æskan svo yndisleg að vanda, skrýdd fegurstu
djásnum. Silkið og siffonið féll mjúklega að meyjakropp-
unum sem sumir hverjir voru að stíga sín fyrstu skref í svo
efnismiklum skrúða. Gult, rautt, gyllt og blátt satínið
gljáði í mjúkri birtunni. Hér og hvar glitti í ber bök og
sitthvað fleira en allt þó af smekkvísi útstúderað. Nokkur
hikandi skref og skósíðir pilsfaldarnir sveifluðust léttilega
yfir trégólfið og spengilegir piltarnir spönnuðu mittin í
sveiflunum. Það var enskur vals og Vínarvals, polki og
Fyllt í eyðurnar.
amerískur foxtrott. Og þeir sem háþróaðastir voru lögðu
til atlögu við sjálfan menúettinn. Ekki veit ég hvort það
var sérhæft afbrigði a la Haukur en svo mikið er víst að
tókst bara ágætlega. Danskortin sveifluðust á úlnliðum
yngismeyjanna og breiðar herðar herranna voru óspart
notaðar til ífyllingar þeirra. Og það var eins gott að bless-
aðir kavalerarnir lægu ekki á liði sínu-ef einhverjum hefði
nú dottið það í hug-því kvennamergðin var slík að þeir
urðu að hafa sig alla við til þess að ná að sveifla þeim
öllum. Tvær og hálf á mann, sagði einhver! Þó mátti nátt-
úrlega sjá einn og einn sem valdi að sinna einni dömu
framar og hvað með það. Það er þetta með sexapílið og
ástina sem má aldrei vanta.
En þeim var engin vorkunn að standa í stórræðum þetta
kvöldið piltunum okkar enda nutu þeir hverrar mínútu ef
marka mátti svip þeirra. Siðameistaranum, sem ef til vill
átti metið, tókst að fylla síðustu línu tvö danskort, sem út-
Ekki gera eins og mamma þín segir þér, Jens. - Karíus og Baktus.