Skólablaðið - 01.05.1992, Side 33
SKÓLABLAÐIÐ 33
Skólastjórn:
Mætingamál nemenda
- eftir Guðjón R. Jónsson IV. U.
Askólafundi skömmu fyrir jól var undirrit-
aður kosinn skólastjórnarfulltrúi nem-
enda og fær því sjálfkrafa sæti í skóla-
stjórn. í skólastjórn eftir jól sitja, ásamt undirrituð-
um: rektor, konrektor, 2 fulltrúar kennara, þau
Birgir Guðjónsson og Ólöf Helga Guðmundsdótt-
ir, auk Dags Pálmars Eiríkssonar, annars fulltrúa
nemenda. í skólastjórn hafa verið haldnir 7 fundir
frá áramótum þegar þetta er skrifað. Aðalviðfangs-
efni stjórnarinnar það sem af er þessu misseri eru
mætingamál. Á fyrsta fundi, þann 8. janúar var
samþykkt að veita þeim nemendum, sem höfðu
sagt sig úr skóla vegna lélegrar mætingar á fyrra
misseri, skólavist að nýju. Pó var það skilyrði sett
að mæting þeirra yrði að vera óaðfinnanleg, eða
95% það sem eftir væri vetrar. Þetta var einungis
árétting á samþykkt frá því fyrir jól. Ég hef, ásamt
öðrum, gagnrýnt þessa samþykkt á þeirri forsendu
að hún hafi verið illa kynnt og að í skólareglum sé
ekki kveðið skýrt á um viðurlög við vítaverðri
óreglu í skólasókn og því hvernig menn skulu
áminntir. Vegna þessarar gagnrýni var konrektor
Elíasi Ólafssyni og Birgi Guðjónssyni falið að
semja nýjar reglur fyrir skólaárið 1992-1993. Voru
þær bornar undir skólafund fyrir stuttu og sam-
þykktar með smávægilegum breytingum.
Auk umræðna um mætingamál hefur skólastjórn
veitt 10 nemendum leyfi til að sleppa prófum á
grundvelli reglna um einkunnir og próf. Auk þess
hafa nokkrir nemendur fengið leyfi þar sem þeir
eru að keppa fyrir íslands hönd í íþróttum erlendis.
Höfundur er skólastjórnarfulltrúi.
Blekslettur
— möðkuð mysa —
Á upphafsárum Skólablaðsins tíðkaðist sá siður að skrifa
gagnrýni á félagslífið og skólann undir forskriftinni Blek-
slettur. Við skólblöðungar ákváðum að endurvekja þennan
sið.
Við Menntskælingar teljum okkur (með réttu),
öðrum skólum betri og merkilegri. Við virðumst
álíta að lífið sé stanslaust hopp og hí og hvergi
beri skugga á. En heimurinn er vondur og ekkert galla-
laust undir sólinni. Þegar skyggnst er bak við tjöldin kem-
ur margt ófagurt í ljós:
* Nýi myntsíminn í Kösu bilaði eftir að hafa hangið uppi
í eina viku!
* Nýi gólfdúkurinn á sama stað er þegar orðinn snjáður og
subbulegur eftir aðeins tæpan hálfan mánuð!
1 Kleinuhringirnir í Jörundi eru nær alltaf uppseldir og
enn bólar ekkert á „heita matnum í hádeginu“ sem lofað
var!
Söluturninn Guðjón er alltaf lokaður!
* Sófarnir í Kösu eru ljótir, illa lyktandi og oftar en ekki
blautir af einhverjum torkennilegum vökvum!
* Svörtu hringlaga borðin eru völt og óstöðug!
* Pepsí-sjálfsalinn „gleypir" í sífellu peninga viðskipta-
vina sinna og góðu gosdrykkirnir eru alltaf búnir og ekk-
ert eftir nema: malt, mix, póló, súkkó og sykurlaust
greip!
* Loftræstistokkarnir nýmáluðu eru jafnvel enn ósmekk-
legri en nokkru sinni fyrr!
* Félagsaðstaða nemenda er ekki þjófheld!
* Skólablaðið kemur aldrei út á réttum tíma!
* Skólatíðindi eru eins og þau eru!
* Ræðu- og spurningalið skólans hafa staðið sig afleitlega
og hvorugt komist lengra en í átta liða úrslit sinnar
keppni!
* Segulbandasafn og/eða tónlistarsmekkur leikfimikenn-
ara skólans er, ... all sérstakur!
* Ekkert mark er takandi á Sveinbjörgu.
* Skóflufélagið gróf sér sjö feta gröf í spurningakeppninni
og tapaði henni.
* Engin blöð eru í blaðagrindinni.
* Blaðagrindin er á gólfinu.
* Flygillinn felskist við hverja stillingu.
* Ræðupúltið sem Alþingi gaf Framtíðinni er í lamasessi.
* Ljúkum við hér Blekslettum, nóg að sinni, vondar
stundir.
Veruleikinn er fyrir fólk sem ræður ekki við vímuefni.