Skólablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 34
34 SKÓLABLAÐIÐ
Eric Clapton nefnist maður. Hann fæddist þann 30.
marz 1945 í smábænum Ripley skammt frá Lund-
únum og ólst þar upp hjá ömmu sinni og afa.
Fljótlega tók að bera á brennandi tónlistaráhuga hjá hon-
um og fór þessi strákpjakkur í taugarnar á flestum á heim-
ili sínu þegar hann fiktaði dag- og næturlangt í ævafornu
barrokkorgeli aldraðrar ömmu sinnar. Ekki lagaðist
heimilisfriðurinn þegar einhverjum óvini fjölskyldunnar
datt það óþverrabragð í hug að gefa Eric litla rafmagnsgít-
ar, öllum til mikillar armæðu. Kvað svo rammt að þessum
óþægindum að hann var síðar sendur í listaskóla, King-
ston College of Art en eins og oft er um sanna listamenn
entist hann þar stutt. Lundúnalífið heillaði Clapton svo
hann ákvað að kasta frekara námi fyrir róða og leggjast í
bóhemalíferni.
„Ekki lagaðist heimilisfriðurinn
þegar einhverjum óvini fjölskyld-
unnar datt það óþverrabragð í
hug að gefa Eric litla rafmagns-
gítar."
Á sama tíma fór blústónlistin að vekja áhuga hans og
hóf hann því að leika undir hjá blússöngvara á kaffi- og
öldurhúsum borgarinnar og fluttu þeir lög eftir ýmsa
þekkta blúsara; Big Bill Broonzy, Ramblin’ Jack Elliott
og Blind Boy Fuller. Það samstarf entist ekki lengi því
Clapton byrjaði nú í ýmsum hljómsveitum sem höfðu
sprottið upp í kjölfar bítlabylgjunnar. Urðu fæstar þeirra
frægar og munu nöfn eins og The Roosters og Casey Jones
and the Engineers því væntanlega segja ykkur lítið. Einni
hljómsveit hans tókst þó að vekja einhverjar vinsældir en
það voru The Yardbirds. Sömdu þeir fá lög upp á eigin
spýtur en tóku þess í stað gömul lög eftir hina og þessa
hljómlistarmenn og settu þau í nýjan búning. Þóttu þeir
vægast sagt hrútlélegir nema hvað Clapton átti ágætis
spretti í gítarleik sínum. Fór svo að lokum að Clapton
hætti í hljómsveitinni vegna þess hve iðnaðarlegar og yfir-
borðskenndar tónsmíðar Yardbirds voru orðnar, ólíkt
þeim ryþmablús sem þeir áður höfðu leikið. Þess má geta
í framhjáhlaupi að tveir aðrir frægir gítarleikarar stigu sín
fyrstu spor á hinni hálu braut rokkhljómlistarinnar með
The Yardbirds en það voru þeir Jeff Beck og Jimmy Page,
að vísu hvor á sínum tíma.
Draumur Claptons um að leika hreina blústónlist rættist
þó fljótlega þegar John Mayall bauð honum sæti í hljóm-
sveit sinni John Mayalls Bluesbreakers, en Mayall er al-
mennt talinn faðir brezkrar blústónlistar. Ásamt þeim
“Ég skaut skerfarann en ég skaut ekki fulltrúann." stað-
hæfði ungur maður fyrir einum átján árum. Upp frá því og
jafnvel löngu áður hefur heimsbyggðin tæpast haldið vatni
yfir þessu ungmenni. En hver er þessi maður? Hver er
maðurinn með Fenderinn. Hver skaut skerfarann en ekki
fulltrúann? Úr þessum spurningum og ýmsum öðrum hef-
ur nú undirritaður af fremsta megni reynt að greiða og
birtist þrotlaus rannsóknarblaðamennskan hér í þessu
merkisriti.
ERIC
CLAPTON
Ég drep ykkur ef þið segið frá þessu en ég hef alltaf verið soldið „svag“ fyrir Eric Clapton. - Guðni Guðmundsson.