Skólablaðið - 01.05.1992, Page 35
SKÓLABLAÐIÐ 35
hljóðritaði hann eina stóra plötu árið 1966 og nefndist hún
Bluesbreakers-John Mayall with Eric Clapton. Á henni
söng hann í fyrsta sinn aðalrödd, í stuttri látlausri útgáfu
af Ramblin’on my mind eftir Robert Johnson og einnig
bregður fyrir ágætum gítarleik kappans í fjölmörgum lög-
um eins og gamla Billy Myles laginu HAVE YOU EVER
LOVED A WOMAN. Með útgáfu þessarar plötu varð
Clapton fyrst frægur fyrir alvöru og um Lundúnaborg fór
að bera á veggjakroti á borð við Clapton is God.
Clapton var þó ekki alls kostar ánægður með störfin í
hljómsveitinni. Honum þótti nóg um þann stranga aga og
formfestu sem ríkti hjá John Mayall og tók sér því frí eftir
útgáfu stóru plötunnar sem hann nýtti í spilamennsku með
bassaleikara Bluesbreakers, Jack Bruce að nafni. Clapton
heillaðist af töfrandi bassaleik Bruce, en hann hafði einnig
leikið jazz um langt skeið, og gátu þeir spilað tímunum
saman í eldheitum spuna og algerlega lausir við alla form-
festu blústónlistarinnar. Skömmu síðar slóst trommu-
leikarinn Ginger Baker í hópinn og úr varð tríóið Cream.
Urðu þeir geysivinsælir og var greinilegt að tónlist þeirra
sem almennt var skilgreind sem rock n’ roll jazz féll pupul-
inum vel í geð. Kom fyrsta stóra plata þeirra út í desem-
ber 1966 og bar hún heitið Fresh Cream. Vakti hún all-
nokkra athygli en telst hún ekki mikil miðað við þær vin-
sældir sem næsta plata þeirra naut og jafnframt sú vinsæl-
asta, Disraeli Gears en var hún gefin út í apríl 1966. Á
henni eru fjölmörg lög sem allir ættu að kannast við eins
og Strange Brew, Tales of Brave Ulysses og Sunshine of
Your Love. Wheels of Fire heitir þriðja plata þeirra og er
hún að hálfu tekin upp í hljóðveri og að hálfu á tónleikum
í Fillmore East árið 1968. Kennir þar ýmissa grasa en bera
þar sennilega hæst lögin White Room og Crossroads en í
því síðarnefnda sýnir Clapton hreint ótrúlegan gítarleik.
Svo virðist sem hinar skömmu og geysilegu vinsældir
Cream hafi sett mark sitt á meðlimi hjómsveitarinnar því
vegna mikilla samstarfsörðugleika lagði Cream upp laup-
anna 1968 og af því tilefni gáfu þeir út plötuna Goodbye.
Nutu þeir þar aðstoðar bítilssins George Harrisons sem
lék á gítar og söng. Varð aðeins eitt lag plötunnar vinsælt
en það var kvæðið Badge.
Skömmu síðar fór Clapton að spila með Steve Winwood
þáverandi hljómborðsleikara og söngvara Traffic. Varð
það úr að hljómsveitin Blind Faith var stofnuð. Lék
Ginger Baker á trommur og bassaleikaranum Rick Grech
datt til hugar að leika á bassa. Miklar vonir voru bundnar
við hljómsveitina enda skipuð einvala liði og oft nefnd
fyrsta súpergrúppan. Af ástæðum lagðist hljómsveitin
skömmu síðar niður en tókst þeim að gera sagnfræðilega
leif fyrir heiminn með útgáfu plötu samnefnda hljómsveit-
inni og er fátt út á hana að setja.
Eftir að Blind Faith hætti tók furðulegur tími við hjá
Clapton. Hann fór í hljómleikaferð með bræðrunum Del-
aney og Bonnie Bramlett og lék með þeim á plötu. Varð
það samstarf kveikjan að fyrstu sólóplötu hans og bar hún
einfaldlega heitið Eric Clapton. Þar samdi eða endur-
samdi Clapton öll lögin, ellefu að tölu og voru sum hver
hin áheyrilegustu. Núna taldi hann sig loksins vera tilbú-
inn að setja saman sína eigin hljómsveit.
Ofbeldiskvikmyndir eru huggun hinna valdalausu. - Breitenstein.