Unga Ísland - 01.03.1944, Blaðsíða 11
UNQA ISLAND
XXXIX. ÁRG. 3 —4. HEFTI.
ísland frjálst
í.
Þegar landnámsmennirnir komu hingað
til Islands á síðari hluta 9. aldar og fyrri
hluta 10. aldar. þá komu þeir að óbyggðu
landi.Þeir gátu slegið eign sinni á land-
svæðin að vild án þess að neitt væri frá
neinum tekið og hafið nýtt líf í nýju landi.
Margir þeirra voru landflótta menn frá
Noregi eða norrænir menn frá Bretlands-
eyjum, sem þar höfðu leitað sér bólfestu,
en ekki náð að festa rætur. Þeir, sem voru,
landflótta, höfðu yfirgefið land sitt af því,
að þeir vildu ekki lúta stjórn þess kon-
ungs, sem brotizt hafði til valda í heima-
landinu, enda krafðist hann þess að fá
meira vald yfir þeim en þeir gátu fellt sig
við og heimtaði af þeim skatt. Sumir þeirra
liófu baráttu gegn þessum konungi, en
urðu að láta undan síga. Hann var ofjarl
þeirra og annað hvort urðu þeir að fara
úr landi, eða hann hlaut að hafa ráð þeirra
í hendi sér.
Þetta var aðalástæðan fyrir því, hversu
ört ísland byggðist. Og það voru hraustir
menn og hugprúðir, sem héldu skipum sín-
um hingað, lengst norður og vestur í haf.
Landrýmið og frelsið lokkaði þá. en hug-
myndir manna um þjóðfélag, jafnvel <ætt-
jörð og þjóðerni voru aðrar og óákveðn-
Jón Sigurðsson, forseti.
Sómi íslands, sverð þess og skjöldur.
v________________._____________________y
ari þá en nú. Eigi að síður töldu þeir sig
flestir til sömu þjóðar, tunga, trú og siðir
tengdu þá saman. Þeir voru norrænir menn
eins fyrir það. þó að þeir flyttust til ís-
lands og það var ekki fyrr en löngu síðar,
að íbúar landsins tóku að telja sig sérstaka
UNGA ÍSLAND
23