Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1999, Page 126
124 ÁrbókVFÍ/TFÍ 1998/99
Vöruinnflutningur: Vöruinnflutningur hefur vaxið að jafnaði um 12% á ári frá árinu 1993,
á sama tíma og einkaneysla hefur vaxið um 6% á ári. Vöxtur innflutnings náði hámarki á
árinu 1998 þegar hann nam 22%. Mikið var flutt inn af ljárfestingar- og rekstrarvörum til
stóriðju, en sá innflutningur skýrir engan veginn allan vöxt innflutnings á síðasta ári.
Innflutningur á ijárfestingarvörum jókst um 33% á árinu 1998. Þá bættist ný flugvél í
flugflota Flugleiða og ijárfesting í skipum jókst um 10% frá fyrra ári og nam því ijárfesting
í skipum og flugvélum nálægt 8 milljörðum króna. Töluverður hluti af innflutningi fjár-
festingarvara var til stóriðju, annars vegar til
byggingar álvers og hins vegar til fram-
kvæmda á vegum Landsvirkjunar, en þótt
tekið sé tillit til þessa innflutnings er aukning
í innflutningi á almennum ijárfestingarvörum
nálægt þriðjungi.
Aukning í innflutningi á rekstrarvörum
nam um 2214% á síðasta ári. Þar vó aukinn
innflutningur til stóriðju þungt, bæði vegna
stækkunar ISAL og álvers Norðuráls.
Innflutningur á almennum rekstrarvörum jókst
heldur minna eða um 15% og innflutningur á
olíu jókst um tæplega 4%.
I takt við aukningu einkaneyslu á árinu
1998, jókst innflutningur á neysluvörum tölu-
vert, eða um 17%. Stóran hlut þeirrar
aukningar má rekja til mikillar aukningar inn-
flutnings á bifreiðum, en innflutningur þeirra jókst um 27% á árinu 1998. Svipuð aukning
var í innflutningi á varanlegum neysluvörum eins og heimilistækjum, en innflutningur á
fatnaði jókst heldur minna, eða um 13% milli áranna 1997 og 1998. Þá jókst innflutningur
á mat og drykkjarföngum um 12% milli ára og athygli vekur að innflutningur á lyijum jókst
um 17%.
Þjónustujöfnuður: Þjónustutekjur og þjónustugjöld hafa vaxið hröðum skrefum á undan-
förnum árum og var vöxtur þeirra á bilinu 10-20% á árunum 1996-1998 og hafa útgjöldin
aukist heldur hraðar. Þjónustugjöld jukust um 21 <% á árinu 1998 á meðan þjónustutekjur
jukust um 1314% svo halli varð áþjónustujöfnuði sem nam tæplega 14 milljarði á árinu 1998.
Ferðaþjónusta: Alls komu rúmlega 232 þúsund erlendir ferðamenn til landsins í fyrra, en
það er 15,2% aukning frá árinu áður. Þetta er meiri aukning en sést hefur allan þennan
áratug. Gert er ráð fyrir að heildartekjur af erlendum ferðamönnum hafi numið 26,3
milljörðum króna árið 1998 og er það um 18% hækkun að raungildi milli ára sem er meiri
aukning en undanfarin ár.
Jöfnuður þáttatekna: Jöfnuður þáttatekna hefur verið neikvæður mörg undanfarin ár vegna
vaxtagreiðslna af erlendum skuldum þjóðarbúsins. Á árinu 1998 minnkaði hallinn töluvert
eða úr ríflega 10 milljörðum á árinu 1997 niður í tæplega 7 milljarða króna á árinu 1998.
Innflutningur vöru og þjónustu. Vísitala,
1990=100. Heimild: Þjóðhagsstofnun.