Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1999, Blaðsíða 274
272 Árbók VFÍ/TFÍ1998/99
Lokaorð
Hér hefur verið farið yfir helstu kosti sem bjóðast til uppbyggingar aðgangsneta, en lítið
ijallað um hagkvæmni einstakra kosta enda er hún misjöfn eftir því hvaða aðili á í hlut, eftir
því hvar á landi menn eru staddir og eftir þeim búnaði sem þegar er til staðar. DSL-tæknin
er ein merkasta nýjungin á sviði aðgangsneta sem komið hefur fram um árabil enda gerir
hún kleift að nýta þá geysilegu fjárfestingu sem liggur í koparstrengjum víða um heim.
Landssíminn mun bjóða viðskiptavinum sínum þessa þjónustu nú í lok ársins 1999.
Þjónustan verður fyrst boðin á höfuðborgarsvæðinu. I ráði er að bjóða þrjá mismunandi
hraðaflokka með tengihraða frá 256 kb/s upp í 1,5 Mb/s. Með þessu móti er þeim þjónað
sem helst nota sambandið til að tengjast Internetinu og jafnframt þeim sem þurfa t.d.
hraðvirkt samband milli heimilis síns og vinnustaðar. Þar með eru komin skilyrði til
ijarvinnu þar sem starfsmaður finnur lítinn mun á tengihraða heima hjá sér eða á vinnustað.
Tilvitnanir
[1 ] http://www.intel.com/intel/museum/25anniv/hof/moore.htm
[2] C. Eldering, J.A. Eisenach, M.L.Sylla, Is There a Moores's Law for Bandwidthl, IEEE
Communications Magazine, October 1999.
[3] Leif Aarthun Ims, Introduction to BroadbandAccess Networks, Telekktronik 2/3 1999, bls. 2-22,
Telenor R&D, Kjellar Noregi
[4] Agne Nordbotten, Satellite networks and stratospheric platforms, Telekktronik 2/3 1999,
bls. 107-112, Telenor R&D, Kjellar Noregi
[5] http://www.teledesic.com
[6] http://www.skybridgesatellite.com
[7] http://web.skystation.com/
[10] EURESCOM Verkefni EU-P614 - Implementation Strategies for Advanced Access Networks,
Deliverable 4, Opportunities for Broadband Radio Technologies in the Access Network,
maí 1998, sjá http://www.eurescom.de
[11] R.H. Rækken, S.W. Svaet, Mobile Broadband Access, Telekktronik 2/3 1999, bls. 96-106,
Telenor R&D, Kjellar Noregi
[12] EURESCOM Verkefni EU-P614 - Implementation Strategies for Advanced Access Networks,
Deliverable 7, Enabling technologies for Broadband Access Inffastructures, apríl 1998, sjá
http://www.eurescom.de
Sæmundur E. Þorsteinsson
forstöðumaður rannsóknardeildar Landssímans