Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1999, Blaðsíða 363
Tækni- og vísindagreinar 361
Þjöppunarpróf: Hæsta þurr rúmþyngd á ljósu skeljaefni mældist 16,0 til 17,3 kN/m3 og
lægsta 12,9 til 14,0 kN/m3. I Standard Proctor-þjöppunarprófi mældist hæsta þurr rúmþyngd
13,9 til 15,2 kN/m3 við þjöppunarrakann 13,7%, þjöppunin samsvarar Dr um 40%. í
Modified Proctor-þjöppunarprófi mældist hæsta þurr rúmþyngd 14,5 til 15,7 kN/m3 við
þjöppunarraka um 14%, þjöppunin samsvarar Dr um 55%. Niðurbrot efna við þjöppun var
mæld með Bg-stuðlinum og mældist hann 2 til 3 eftir Standard og 9 til 12 eítir Modified
Proctor-þjöppun.
Hæsta þurr rúmþyngd á dökku skeljaefni mældist 19,6 kN/m3 og lægsta 16,8 kN/m3. í
Standard- og Modified Proctor-þjöppunarprófi mældist hæsta þurr rúmþyngd 18,7 kN/m3
við þjöppunarrakann 3,7%, þjöppunin samsvarar Dr um 70%. Niðurbrot efna við þjöppun
var mæld með Bg stuðlinum og mældist hann 3 eftir Standard og 7 eftir Modified Proctor-
þjöppun.
Burðarþolspróf: Burðargeta skeljaefnis fyrir hönnun vega var mæld með CBR-prófí eftir
þjöppun samkvæmt Standard- og Modilled Proctor-prófi. í báðum efnunum mældist CBR-
gildið 25% eftir Standard-þjöppun og 30% eftir Modified-þjöppun.
Lektarpróf: Lekt þjappaðs og óþjappaðs sýnis var mæld í Geonor lektartæki. Mældist lekt
þjappaðra og óþjappaðra sýna af báðum efnum um 10'2 cm/sek.
Sigpróf: Sigstuðlar þjappaðra og óþjappaðra sýna af báðum efnum mældust svipaðir.
Óþjappað sýni (Dr < 10%) mældist með M=100V0,1ct (MPa) og rs=1000. Þjappað sýni (Dr
50 til 60 %) mældist með M=300V0,lc (MPa) og rs=3000.
Skerstyrkur: Styrktarstuðlar þjappaðra og óþjappaðra sýna af báðum efnum mældust
svipaðir. Niðurstöður prófa sýndu að samloðun er engin og viðnámshorn mældist 35° á
óþjöppuðu efni en 40° á þjöppuðu.
Rannsóknir á staðnum
Rannsóknir á fyllingum voru eingöngu gerðar á ljósa skeljaefninu. Var mæld rúmþyngd,
bormótstaða, skerbylgjuhraði og burðarþol. Helstu niðurstöður mælinga eru:
Boranir: Borað var með snúnings-þrýstingsbor og CPT-bor fyrir og eftir völtun fyllingar á
tilraunasvæðinu við Kleppsbakka. Með CPT-borun er átt við Cone Penetration Test. Við
snúnings-þrýstingsborunina er mæld mótstaðan við að þrýsta niður stöng sem er 36 mm í
þvermál. Við CPT-borunina er mæld mótstaða við odd borsins, núningsmótstaða ofan við
hann og vatnsþrýstingur rétt ofan við oddinn. Borniðurstöðurnar sýna að ekki er um teljandi
þjöppun að ræða í skeljaefninu. Mældist qc (mótstaða á odd við CPT-borun) 2 til 3 MPa.
Rúmþyngd: Rúntþyngd var mæld með sandkeiluprófi og geislamæli. Mældist þurr
rúmþyngd í óþjappaðri fyllingu 14,5 kN/m3 til 15,0 kN/m3 sem samsvarar hlutfalls-
rúmþyngd Dr 20 til 35%. í þjappaðri fyllingu mældist þurr rúmþyngd 15,1 kN/m3 til 15,5
kN/m3 sem samsvarar hlutfallsrúmþyngd Dr 40 til 50%. Niðurstöður mælinga sýna að efnið
þjappast illa með titurvalta þó reynt sé að hafa efnið sem blautast við völtun.