Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1999, Blaðsíða 227
Kynning fyrirtækja og stofnana 225
Söfnun dagblaða/tímarita og drykkjarferna 1998
Alls söfnuðust 1.792.155 kg af dagblöðum og fernum sem skiptist þannig á milli söfnunar-
staða:
Sveitarfélag í búafjöldi Kg. kg/íbúa Breyting
Reykjavík 108.362 1.190.760 (1.044.655) 10,99 (9,79) 13,99%
Uafnarfjörður 18.597 172.280 (158.720) 9,26 ( 8,72) 8,54 %
Kópavogur 21.376 180.58 (186.150) 8,40 (9,40) - 3,00 %
Garðabær 7.885 92.505 ( 91.755) 11,73 ( 11,70) 0,80 %
Seltjarnarnes 4.683 74.750 (70.180) 15,96 ( 15,21) 6,51 %
Mosfellsbær 5.496 18.660 (48.175) 3,40 (9,24) -61,26%
Bessastaðahreppur 1.418 30.090 (22.185) 21,22 ( 16,37) 35,63 %
Samtals 1.792.155 10,68
Fernur til útflutnings 37.000
Lager um áramót 18.000
Frá endurvinnslustöðvunum bárust 607 tonn.
Alls bárust tii Sorpu 4.142 tonn af dagblöðum og tímaritum og 55 tonn af ferniim til
endurvinnslu.
Söfnun drykkjarumbúða úr pappír
Eins og sjá má í töflunni hér að ofan koma drykkjarfernur einnig til endurvinnslu. Gerður
var samningur við Norsk Returkartong A/S um móttöku á drykkjarumbúðum úr pappír til
endurvinnslu og skipuleg móttaka hófst í febrúar 1997. Þar með varð til skilgreindur
endurvinnslufarvegur fyrir þann úrgangstlokk. Mjólkursamsalan kostaði upphafskynningu
málsins, sem var eina skipulagða kynningarátak ársins.
Undirbúningur málsins var að nokkru í höndum þróunardeildar, þar á meðal verulega við
innsöfnun. Ákveðið var að nýta reynslu frá Noregi við innsöfnun. Aðferðin byggist á því að
nota blaðagámana til að safna inn umbúðum. Dagblöð og tímarit fara laus í gámana en fern-
urnar eru settar tugum saman í plastpoka, bundið fyrir og settar í sama gám. Breyta þurfti
lúgum á gámunum svo að pokar kæmust inn. Ef fólk fylgir fyrirmælum er vinnan við að
hirða pokana úr blöðunum ekki mjög mikil. Aðferðafræðin kemur í veg fyrir tvöloldun á
gámaljölda.
Rannsóknarverkefnið „Hvað er í húsasorpinu?"
Síendurteknar spurningar víðs vegar að um innihald húsasorpsins leiddu til þess að l'arið var
út í að rannsaka innihald frá nokkrum sorphirðubílum. Starfið var unnið á nokkrum vikum
en skoðað var sorp úr 10-12 bílum frá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu.
Meðfylgjandi tafla er niðurstaða úr verkefninu, sýnin voru tekin í júlí og ágúst 1999 og það
sem helst má lesa úr niðurstöðunum er: