Verktækni - 15.08.1991, Qupperneq 10
Þversnið í gegnum Jan Mayen frá vestri til austurs. Þversniðið sýnir að undir ungum setlögum og u.þ.b. 55 milljón ára
gömlum hraunlögum eru eldri setlög sem að öllum líkindum hvíla á meginlandsskorpunni.
Orkustofnun tók að sér stóran hluta
úrvinnslu gagnanna og kom það sér
mjög vel fyrir stofnunina vegna þess
að sú vinna kom, að stórum hluta,
fótum undir þessa tegund af jarðkönn-
unartækni hérá landi. Reynslan, sem
fékkst í þessu verkefni, hefur síðan
komið okkur til góða við rannsóknir á
landgrunni Islands."
Við spyrjum Karl hvað hafi gerst á
sviði setlagarannsókna við Hatton-
Rockall síðan 1987. „Við unnum úr
gögnunum og lögðum á þau mat. Rík-
isstjórnir beggja landa fengu síðan
niðurstöðurnar sem ekki hafa verið
birtar. Þær eru leyndarmál einfaldlega
vegna þess að deilan um Hatton-
Rockall hefur ekki verið leyst og
vegna þess að það gæti verið efnahags-
lega hagkvæmt að gera frekari rann-
sóknir og vinnslu á svæðinu. Vissar
ábendingar komu fram í niðurstöðun-
um um setiagasvæðin, sem ekki var
vitað um áður, og þar gætu hugsan-
lega verið merkileg setlög. Ekki er
hægt að fullyrða neitt um það á þessu
stigi en óneitanlega eru skýrari ábend-
ingar fyrir hendi nú en nokkru sinni
fyrr.“ Karl bendir á að ekki hafi verið
framkvæmdar neinar nýjar rannsókn-
ir á svæðinu „en við höfum reynt að
hvetja til þess að þetta svæði verði
tekið inn í alþjóðlegt boranaverkefni í
Norður Atlantshafi sem verður sett á
Frumrannsóknir á setlögum á Jan Mayen svæðinu hafa ekki gefið beinar vísbend-
ingarum að olíu ímiklum mæli sé að finna þaren þóhafa fundist setlög sem þyrfti
að rannsaka nánar.
laggirnar fljótlega. Okkur finnst frek-
ari rannsóknir á svæðinu nauðsynleg-
ar frá vísindalegu sjónarmiði en ekki
endilega frá olíuleitarsjónarmiði“-
Þegar við spyrjum hvort yfirvöld hafi
haldið að sér höndum varðandi frekari
rannsóknir vegna deilna um yfirráð
yfir Hatton-Rockall telur Karl svo
vera. „Eins og mál standa nú er ekki
fyrirliggjandi neitt samkomulag á
milli þessara þjóða um yfirráð á svæð'
inu. Þegar lsland og Danmörk gerðu
sínar rannsóknir var það á hlutleysis-
grundvelli og miðuðu raniisóknirnar
að því að afla almennra upplýsinga um
jarðlagagerð svæðisins. Það er ljóst að
á meðan deilan um eignarréttinn á
svæðinu er óleyst er olíuiðnaðurinn,
fyrirtæki í einkaeigu, alls ekki tiÞ
búinn að leggja neitt fé til frekari
rannsókna.“
— Hvað er títt af rannsóknastarf-
inu við Jan Mayen?
„Það svæði var rannsakað sameig-
inlega af íslendingum og Norðmönn-
um,“ segir Karl, „á grundvelli sam-
komulags um skiptingu svæðisins með
landgrunnsmörkum. I þessu sanv
komulagi kemur meðal annars fram að
Norðmenn kosti rannsóknir á svæð-
inu en Islendingar taki vísindalegan
þátt í þeim. Tilgangur rannsóknanna
var í sjálfu sér nokkuð einfaldur eða sá
að sjá hvað væri að finna undir hafs-
botninum við Jan Mayen. Við fram-
kvæmdum endurkastsmælingar og
unnum síðan úr þeim. Þessar niður-
stöður voru boðnar til sölu olíufyrir-
tækjum, eins og tíðkast í Noregi þegar
um er að ræða ný svæði þar sem olíu er
10 VERKTÆKNI