Verktækni - 15.08.1991, Blaðsíða 13
jarðgasið. Við þetta minnkar mengun
töluvert."
ER vetnisfram-
leiðsla á íslandi
Raunhæfur kostur?
Þjóðverjar og Kanadamenn eru
■iteð tilraunaverkefni í gangi í sam-
bandi við vetnisframleiðslu. Ætlunin
er að reisa 100 M W vetnisverksmiðju í
Kanada og flytja vetnið með tankskipi
til Þýskalands. „Menn hinda miklar
v°nir við þetta verkefni,11 segir Run-
ólfur. „Ef það tekst þá fylgja fleiri á
eftir og vetnisframleiðsla í heiminum
mun stóraukast."
— Hvernig stendur þetta verkefni
núna?
i.Það er framkvæmt í fjórum hlut-
Urn. Forhagkvæmniskönnun lauk í
tnars árið 1987 og forkönnun hefur
nýlega verið lokið og verkfræðivinn-
an á að hefjast fljótlega. Og þegar
henni er lokið er ekkert eftir nema að
koma verksmiðjunni í gagnið. Þeir
reikna með því að verksmiðjan geti
tekið til starfa einhvern tímann á ár-
unum 1995-2000. Fjármögnunin er
ennþá vandamál. Kostnaðaráætlunin
fyrir allt verkefnið hljóðar upp á 500
milljónir ECU, eða um 36 milljarða
íslenskra króna. Þetta á því töluvert
langt í land.“
Þjóðverjar hafa áhuga á því að frarn-
leiða vetni hér á landi til útflutnings.
En er vetnisframleiðsla raunhæfur
kostur fyrir okkur?
„Já, það sem við eigum að gera núna
er að athuga hvað það kostar okkur að
framleiða vetni hér til útflutnings til
Evrópu.“
— Viðættumaðbyrjaforkannanir
strax?
„Já. Við sitjum hér með verklegu
þekkinguna."
— Gætum við nýtt okkur vetni
sem eldsneyti hér innanlands?
„Já, en vetnið er miklu vandmeð-
farnara en bensín. Það er í eðli sínu
lofttegund og því verður aldrei eins
%Sarnafil
Þ a k d ú k u r meö ábyrqö
Sarnafil er þakefnið sem
hundruð íslendinga eiga
yfir höfði sér og treysta
fullkomlega.
Sarnafil er vatnsvarnar-
lag á þökum og þak-
svölum um land allt
Sarnafil dúkinn leggjum
viðfyrir þig í öllum
veðrum, sumar og vetur
facitún hf
Sími 621 370
* Geta íslencU
ingar framleitt
vetni til
útflutnings?
auðvelt að nota það sem eldsneyti.
Kæling vetnis til að gera það fljótandi
er erfið. Tæknin er samt vel þekkt.
Þegar fljótandi vetni er notað sem
eldsneyti verður að einangra eldsneyt-
isgeymana mjög vel. Einfaldast er að
binda vetnið í svokallaða „málm-
svampa" eða „hydríð“ en þeir eru
þungir og taka töluvert rými. Það eru
miklar rannsóknir í gangi sem miða að
því að íinna málmsvampa, sem geta
bundið í sér meira vetni. Það sem er
nærtækast núna er vetnisnotkun í
flugsamgöngum og í stórum bílum.“
VERKTÆKNl 13