Verktækni - 15.08.1991, Page 12
VETNI
VERKTÆKNI ræðir við Braga
Amason, prófessor við Háskóla Is-
Iands, og Runólf Þórðarson, verk-
fræðing hjá Áburðarverksmiðju
Ríkisins, um möguleika Islend-
inga í vetnisframleiðslu til útflutn-
ings og notkunar innanlands.
Vetnisframleiðsla er engin fjar-
lægur draumur á íslandi. Áburðar-
verksmiðja Ríkisins í Gufunesi
hefur í fjörutíu ár framleitt tölu-
vert magn af vetni með rafgrein-
ingu á vatni og er vetnið notað til
ammoníakframleiðslu. Aðferðin
sem notuð er hérlendis byggist á
því að raforka er notuð til að kljúfa
vatn í fmmefni sín, vetni og súr-
efni.
Vetnisverksmiðjan í Gufunesi
er lítil miðað við þær verksmiðjur
sem nauðsynlegt væri að reisa ef
Islendingar færu út í stórfellda
vetnisframleiðslu. Verksmiðjan
framleiðir um 2000 tonn af vetni á
áriog raforkuþörf hennarer um 13
MW.
BRENNSLA VETNIS
VELDUR EKKI
UMHVERFISSKAÐA
Runólfur Þórðarson, verkfræðingur
og framleiðslustjóri Áburðarverk-
smiðjunnnar, er mikill áhugamaður
um vetnisframleiðslu á íslandi. „Við
höfum sérstöðu í Evrópu hvað snertir
reynslu af því að framleiða vetni með
rafgreiningu," segir hann. „Norð-
menn gera dálítið af því að rafgreina
vatn til vetnisframleiðslu en stærsta
vetnisverksmiðja í heiminum er við
Aswan stífluna, sunnarlega í Egypta-
landi. Þar er vetnið einnig notað til að
framleiða ammoníak til áburðarfram-
leiðslu. Þá framleiða Kanadamenn
vetni með rafgreiningu. Við vorum
upphaflega með kanadíska rafgreina
hérna. Síðan á árinu 1969 höfum við
verið með rafgreina frá Norsk Hydro.
Rafgreinarnir eru endurbættir á 7 ára
fresti því það skiptir miklu máli að
orkunýtingin sé sem mest. Vetnis-
framleiðsla með rafgreiningu gengur
út á það að fá sem mest vetni fyrir
hverja kílówattstund af rafmagni."
Runólfur spáir því að ekki líði á
löngu þangað til olía verði orðin það
dýr að vetnið verði samkeppnisfært
við hana sem eldsneyti. „Ég tel einnig
afar mikilvægt að brennsla á vetni
veldur ekki skaða á umhverfinu eins
og óhreint eldsneyti eins og olía ger-
ir.“
Runólfur segir að vetnisframleiðsla
sé ákaflega þrifaleg og hljóðlát
verksmiðjustarfsemi. „Vetnið veldur
einungis vatnsgufumengun. Og þegar
rætt er um kostnað við vetnisfram-
leiðslu vil ég einnig taka með í reikn-
inginn að þar sem vetni er framleitt
með endurnýjanlegum orkugjöfum
* Er mögulegt
að nota vetni
sem eldsneyti
fyrir íslenska
fiskiskipa-
flotann?
eins og vatnsaflsrafmagni eða jarð'
varma er ekki verið að ganga á auð'
lindir jarðarinnar. Ef litið er á þetta
tvennt; mengun og auðlindasóun þá
er vetni tvímælalaust betri kostur en
olía.“
Runólfur segir að Þjóðverjar hafí
einsett sér að minnka koldíoxíðmeng' i
un í andrúmsloftinu urn 10% fyrir
aldamót. “Þeir ætla sér að blanda
vetni í jarðgasið sem er notað til eld'
unar og upphitunar. Gaskerfið er
þegar til staðar og það er mjög hentug
lausn að blanda vetnisgasi saman við
Bragi Árnason prófessor við Háskóla Islands. (Mynd: Hreinn Hreinsson).
12 VERKTÆKNI