Verktækni - 15.08.1991, Page 23

Verktækni - 15.08.1991, Page 23
innbyggt eins og er í flestum rafbílum nú til dags. Þá hafði þessi bíll fjóra gíra en að mínu mati þarf aðeins tvo gfra.“ -Var bíllinn nógu kraftmikill? „Já, það var mjög góður kraftur í honutn og gott viðbragð. Ég ók þess- um bíl á milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur og var aldrei til trafala í umferðinni. Hann var líka óhemju duglegur í snjó, einhver sá besti sem ég hef keyrt í vondri færð.“ -Hvað með hljóðið í honum. Heyrðist mikið í honum? „Það heyrðist dálítið baul í honum Pegar maður tók af stað vegna þess að þaó var rafeindastýring í honum. En á miklum hraða heyrðist aðeins þessi venjulegi hvinur frá dekkjum og vind- mótstöðu. Rafbílar eru orðnir mun Hljóðlátari núna. Það var dálítið skrít- 'ð að keyra þennan bíl vegna þess að þegar maður stöðvaði hann var allt stopp. í rafbílum er ekkert sem heitir hægagangur. Maður sleppir bara drifpedalanum og þá heyrist klikk í rofanum og bíllinn stöðvast." kraftmiklir Rafmagnsbílar Gísli segist hafa komið þessum bíl upp í 80 km hraða á klukkustund. „Ég spái því að rafmagnsbíllinn eigi fram- tíðina fyrir sér.“ Sú spá er að öllum líkindum rétt. Töluverður skriður er kominn á hönn- un og framleiðslu rafbíla. Mengun frá útblæstri bifreiða svo og hækkandi olíuverð hafa gert það að verkum að bifreiðaframleiðendur hafa í síaukn- um mæli einbeitt sér að hönnun raf- bíla. Nýjar mengunarreglur í Kali- fomíu, sem er eitt fjölmennasta ríki Bandaríkjanna, kveða á um að 2% allra bíla verði útblásturslausir árið 1998. Allt bendir til þess að önnur ríki Bandaríkjanna taki einnig upp svip- aðar mengunarreglur. 1 Bandaríkjun' um er bifreiðaeign mjög almenn og því má búast við því að framleiðendur bifreiða muni leggja kapp á að hanna fullkomna rafmagnsbíla. General Motors hefur þegar hann- að rafmagnsbíl til fjöldaframleiðslu sem hefur hlotið nafnið Impact. Þessi bifreið nær 100 km hraða á rúmum átta sekúndum og fer auðveldlega upp í 160 km hraða á klukkustund. Impact er búinn 32 blýsýru-rafgeymum. Eini gallinn við þessa geyma er sá að þá þarf að hlaða oft og lengi í hvert sinn. Ending þeirra er einnig frekar lítil og verður að skipta um rafgeyma eftir 40.000 kílómetra akstur. Aðrir bifreiðaframleiðendur hafa einnig verið að gera markvissar til- raunir með rafmagnsbifreiðar. Nissan hefur hannað tilraunabifreið er kallast FEV og rafmagnsbíll frá BMW, er kallast El, vakti mikla athygli á bíla- sýningunni í Frankfurt. Þá hefur Volkswagen þróað lítinn rafmagnsbíl í samvinnu við svissneska úraframleið- andann Swatch. RAFGEYMAR ÚR ÁLI Rafgeymamir eru ennþá vandamál sem bílaframleiðendur eiga eftir að leysa. Gísli segir að töluverðar blikur séu á lofti í þeim efnum. „Miklar rann- sóknir eiga sér stað í sambandi við hönnun á rafgeymum,“ segir hann. „Það nýjasta er svokölluð ál-loft raf- hlaða. Hún virkar eins og álfram- leiðsla aftur á bak. Það er meiri orka í einu kílói af áli heldur en í einu kílói af bensíni. Ál-loft rafhlaðan er búin til úr álplötum og þeim er síðan brennt með vatni. Það er hægt að aka hæfi' lega stórum bíl tvö til þrjú þúsund kílómetra á einni álhleðslu. Vatni væri bætt á geyminn eftir 500 km akstur. Og eini úrgangurinn sem myndaðist væri súrál sem færi aftur í álverið. ALCAN, sem er stærsti ál- framleiðandi íheiminum, hefur rann- sakað þennan geymi töluvert. Sér- —til fyrirmyndar í framkvæmdum Sími 91-641340 Byggingarfyrirtækið Álftárós annast jöfnum höndum byggingu skrifstofu-, iðnaðar- og íbúðarhúsnæðis. Álftárós hefur jafnframt sérhæft sig i byggingu hagkvæmra sérbýlishúsa og leggur megináherslu á hagræðingu og fagmennsku frá upphafi til enda. VERKTÆKNI 23 p&ó/sIa

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.