Verktækni - 15.08.1991, Page 27
orkulindanna
,,Um það mál er fyrst og fremst það
að segja að ég hef sannfæringu fyrir
því — og ég veit að viðsemjendur okk-
ar í Atlantsáls-verkefninu eru sama
sinnis — að þegar horft er til langs
tíma hefur ísland ótvíræða staðarkosti
fyrir álframleiðslu; tiltölulega ódýra
orku, auðvelda aðdrætti með sjóflutn-
ingum, heppilega legu gagnvart helstu
mörkuöum miðja vegu milli Evrópu
°g Ameríku. Auk þess býður landið
vel menntað starfsfólk, sem getur tek-
>st á við verkefni sem tengjast iðnað-
aruppbyggingu af þessu tagi. Þessi
grundvallaratriði og samkeppnis-
hæfni íslands í álframleiðslu munu
ráða því að það verður af þessu stóra
verkefni.
Fyrir lágu álverði nú eru tíma'
hundnar ástæður. í fyrsta lagi aftur-
hippur í efnahagsmálum heimsins og
óvenjulega djúp efnahagslægð á Vest-
urlöndum. í öðru lagi óvænt framboð
af áli frá Sovétríkjunum, sem nú reyna
að breyta öllu sem hönd á festir í pen-
inga og skeyta þá ekki um það hvað
hlutirnir raunverulega'kosta, enda er
bar ekki verðmyndunarkerfi sem segir
ntönnum það. Sovétmenn selja bara á
því verði, sem þeir geta fengið fyrir
framleiðsluna, þótt þeir séu með því
að sprengja botninn úr markaðnum
um sinn. En varabirgðir þeirra á áli eru
ekki óþrjótandi og fyrr eða síðar verða
beir að horfast í augu við það eins og
aðrar þjóðir hver raunverulegur
kostnaður við framleiðslu álsins er. Þá
er það talið alveg víst að mengunar-
vörnurn sé mjög lítið sinnt í verk-
snaiðjum þeirra; og það þurfi og rnuni
breytast með lýðræðislegri stjórnar-
báttum. Með því eykst kostnaðurinn
við framleiðsluna. Orkuverð í Sovét-
ríkjunum verður líka fyrr eða síðar að
tengjast orkuverði í heiminum.
Kostnaður við fjárfestingar, vextir og
annað, sem þeir hafa hingað til litið
framhjá, mun líka taka sinn réttmæta
skerf af framleiðslukostnaðinum og þá
rnun koma í ljós að álframleiðsla á
íslandi er mjög vel samkeppnisfær.
Verður nýcing orkulindanna sá varan-
legi grunnur sem velferðin mun hvíla
á? (Mynd: Hreinn Hreinsson.)
Það hlýtur líka að gerast á næstu
árurn, miðað við það að Sovétríkin og
ríki Austur'Evrópu haldi áfram að
freista þess að selja ál á svona lágu
verði, að ýmsar verksmiðjur á Vestur-
löndum hætti framleiðslu. Þessa sjást
reyndar þegar merki. Það þýðir á end-
anum takmörkun á framboði og
hækkun á verði og þess hefur þegar
aðeins gætt. Ég ætla samt ekki að spá
því að þetta él sé afstaðið en það styttir
upp um síðir.
Miðað við að við höldum okkar
striki, viðsemjendur okkar haldi sín-
um kjarki til framkvæmdanna og um-
fram allt að þeir fái hæfilega fyrir-
greiðslu á fjármagnsmarkaðnum fyrir
þetta fyrirtæki — þar eru að vísu blik-
ur á lofti um sinn vegna erfiðra að-
stæðna í efnahagsmálum heimsins og
áhættuvilji bankanna því rninni en
verið hefur — þá verður ákvörðun
tekin um álver á Keilisnesi. Það gæti
líka reynst jákvætt fyrir framtíð þeirr-
ar verksmiðju að aðdragandinn eigi
sér stað á svona erfiðleikaskeiði því þá
vinsast úr ýmsir keppinautar. Auk
þess verða tilboð í verkið væntanlega
10 -120 m ÞVERMAL, 5 - 60 m HÆÐ
ÍPRÓTTAHÚS, FÉLAGSHEIMILI, VATNSGEYMAR,
SEMENT-, SALT- OG AÐRAR PURREFNAGEYMSLUR.
FRYSTIHÚS OG ATVINNUHÚSNÆÐl.
STEYPTAR
HVELFINGAR
Stórir gólffletir
engar súlur
Ódýrar og
fljótbyggðar
Vatnsþéttar
- ódýr hitun
Hurðir og gluggar
eftir þörfum
TUMMEL BRIDGE ENGINEERING LTD
2 STEWART STREET MILNGAVIE GLASGOW. SCOTLAND, G62 6BW,
SÍMI 9044 41 956 1035, FAX 9044 41 956 5882
VERKTÆKNl 27