Verktækni - 15.08.1991, Qupperneq 51

Verktækni - 15.08.1991, Qupperneq 51
(Gvendarbrunnarvatn) í hlutföllum einn á móti tveim. Loks var Gvendarbrunnavatnið prófað eitt sér. Niðurstöð- Ur urðu þær að þvottur með hreinu hitaveituvatni reyndist í öllum tilvikum betri og mælingar með litamæli gáfu að nteðaltali 1,5% meira ljósendurkast í þeim tilvikum. Hins vegar var það nokkuð óvænt að finna að umrædd blanda af Litaveituvatni og Gvendarbrunnavatni reyndist lakari en hreint Gvendarbrunnavatn. Þá voru gerðar tvær prófanir á ullarprjóni og sambæri- legri óhreinkun með málningarefnum og áður. Þvottur rneð hreinu hitaveituvatni reyndist þar 2,6% stigum bjart- ari en með Gvendarbrunnavatni en blandan 0,5% stigum síðri. Nú voru gerðar þrjár prófanir með hvítt ullarprjón, sem var snjáð vegna vinnslu. Þvottur með hreinu hitaveitu- vatni reyndist þar 0,6% stigum betri en með Gvendar- Lrunnavatni en blandan var 0,7% stigum lakari. Þannig fékkst sú samhljóða niðurstaða að hitaveituvatn- ið í Reykjavík hefði merkjanlega yfirburði til þvotta saman- borið við upphitað vatnsveituvatn, en að blanda þessara tegunda vatns væri síðri til þvotta en þetta vatn hvort í sínu lagi. Ennfremur fór fram prófun á mýkt þvegna efnisins. Svo reyndist að mýktin fylgdi sömu röð og mældur árangur þvottarins. Þannig að prjónaefni þvegin með hreinu hita- veituvatni voru mýkst, en síst þau er voru þvegin með blöndunni, utan þess sem óþvegið efni var síst að þessu leyti. Nú var hafist handa með prófanir á vatni í Hveragerði, þar sem hveravatnið er mun styrkara að efnainnihaldi en hitaveituvatnið í Reykjavík. Niðurstaða tveggja prófana sem gerðar voru í Hveragerði var sú, að þvottur með hvera- vatninu væri 1,6% stigum bjartari en með vatnsveituvatni þar á staðnum. Mýkt væri einnig meiri í því hveravatns- þvegna. Þannig sýna niðurstöður sambærilegra prófana að þar sem 0,6% stigum bjartari þvottur fæst með hitaveitu- vatni í Reykjavík fæst 1,6% stigum bjartari þvottur í Hveragerði. Niðurstöður þessara handvirku prófana með þvott með lauga- og hveravatni eru þannig jarðhitavatninu mjög í hag. Að sjálfsögðu tengist slíkt efnasamsetningu vatnsins og þar er um mikinn mun að ræða, samanber töflu 1. Aðaleinkenni jarðhitavatnsins borið saman við ferskt Vatn er að það fyrrnefnda hefir jafnan hærra innihald kísils (SiOz) og venjulega nokkurt súlfíðinnihald (H2S). Enn- fremur er jarðhitavatn oft mýkra (minna Ca + Mg) en ferskt vatn. En hvað veldur þeim mismun í þvottaeigin- leikum sem fram kemur? Hér er ekki um mikinn mun að ræða varðandi herkju því allt þetta vatn má teljast mjúkt vatn. Það er því nánast útilokað að það valdi þeim mismun sem fram kemur. Súlfíðinnihald jarðhitavatnsins hefir komið til álita í bessu sambandi. Vitað er að brennisteinn var notaður við bvott á ull hér fyrrum. Vænta má að hann hafi þá valdið °xun og því verkað líkt og milt bleikiefni. Súlfíð er hins Vegar lægra oxunarstig brennisteins, en um er að ræða í föstum brennisteini, og er því ekki sennilegt að það verki SAMI A IIII #*ipip ASEA BROWN BOVERI TÍÐNIBREYTAR SAMI MICROSTAR 0,45-3 KW SAMI MINISTAR 3-5,5 KW • JOHAN RÖNNING HF Sundaborg 15 • 91-814000 VERKTÆKNI 51

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.