Verktækni - 15.08.1991, Page 54

Verktækni - 15.08.1991, Page 54
og hin síðari 24--25. nóv. sama ár. í fyrri keyrslunni í tilr. nr. 19, var hlutfallslegt ljósendurkast að meðaltali 5,4% stigum hærra en í samsvarandi keyrslu á venjulegan hátt daginn eftir. Ennfremur var ullin mýkri í silikat keyrslunni. 1 seinni keyrslunni, tilr. nr. 20, var ljósendurkast að meðal- tali 6,8% stigum meira með silikatkeyrslunni. Þeir ullarballar sem fengust við silikatkeyrslurnar voru merktir sérstaklega og metnir af sérþjálfuðu starfsliði Ála- foss hf. Samkvæmt upplýsingum Guðjóns Hjartarsonar, verksmiðjustjóra á Álafossi, var mat starfsfólksins það, að ullin væri bjartari en venja var til. Varðandi mýkt var niðurstaða sú að 70% töldu ullina mýkri en venja var til. Loks skal á það bent að í verksmiðjunni er venjulegur þvottur þveginn með upphituðu fersku vatni með kísil- styrkingu. Að vísu er nokkurt hveravatn með gufunni sem notuð er, en það verður fyrir svo mikilli þynningu að kísilaukning þvottavatnsins mundi mest geta orðið 60 mg/1, svo það er lítið í þessu skyni. UMFJÖLLUN OG ÁLYKTANIR Hér að framan hefir verið gerð grein fyrir áhrifum jarð- hitavatns í þá veru að auka þvottahæfni vatns og valda bjartari áferð á þeim hvítu efnum sem þvegin voru. Prófun fór fram bæði á baðmullar- og ullarefnum og kom það sama fram í öllum tilvikum. Ennfremur benda athuganir þessar til að hið háa kísilinnihald jarðhitavatnsins sé meginorsök þessa, enda hefur verið sýnt fram á hliðstæð áhrif kfsilinni- halds með því að auka kísil í fersku þvottavatni. Að öðru jöfnu virðist þvottavirkni vatnsins aukast við hækkun kísilinnihalds í allt að 300 mg/1 en lítið eftir það. Hins vegar eru greinilega frávik frá þeirri reglu sem skipta miklu máli. í tilraununum með vatn frá Hitaveitu Reykjavíkur kom fram, að þvottur var síðri með blöndu af ferskvatni (Gvendarbrunnavatni) og Hitaveituvatni. Hér er bending um það, að útfellingar, sem geta orðið við blöndun þessara vatnstegunda, geti haft neikvæð áhrif þannig að slíkt vegi upp á móti áhrifum ákveðins kísilinnihalds. Vísað er þó til að slíkra útfellinga er engu sfður að vænta við blöndun ferskvatns og hveravatns í Hveragerði, en þar varsýnt fram á að mikil aukning kísilmagns í ferskvatni hefði samt já- Tafla I. Jarðhitavatn og fcrskt vatn í Reykjavík og Hvcragcrði1) Jaröhitavatn Ferskt vatn Hitav.R. HveragerÖi Gvendarbr. Vatnsv.Hverag Hitast., °C 93 . 4 6 pH/”C 9,93/21 - 9,05/23 7,33/20 Kísill, SÍO2, mg/kg 110 242 12,9 25,5 Natríum, Na+, ' 61 149 11,5 17,6 Kalíum, K+, ' 1,7 11,4 11,5 17,6 Kalsíum, Ca++ 1,5 1,7 4,0 9,9 Magncsíum, Mg++, 0,003 0,0 1,0 3,2 Karbónat sem C02, 22 418 23 43 Súlfat, S04 -, ' 21 39,4 3,2 7,6 Súlfí6 sem H2S, ' 0,42 46 0,0 <0,05 Klóríö, Cl', 29 126 8,4 13,1 Flúoríö, F", ' 1.0 1,62 0,72 0,09 Uppl.saml. 285 701 104 116 U Hrefna Kristmannsdóttir kvæð áhrif. Má ef til vill álykta, að hin neikvæðu áhrif blöndunar séu fyrir hendi í báðum tilvikum, en að eftir að vissum þröskuldi sé náð, séu áhrif aukins kísils jákvæð. Almennt séð er talið að kísill, sem íblöndun þvottaefnis, hafi eftirfarandi áhrif: (1) Kísill (bætt í sem natrium silikati) lækkar yfirborðs' spennu og auðveldar þannig vætingu efnanna. (2) Mælingar sýna eindregið meiri vætingu með silikati en samanburðarefnum, svo sem sóta, fosfati eða vítissóta. (3) Kísill (silikat) heldur sýrustigi (pH) stöðugra en nokkurt sambærilegt efni. (4) Siliköt auka floteiginleika óhreininda í vatninu. (5) Blöndun silikata í þvottaefni er að jafnaði virkari til þvotta en önnur uppistöðuefni af sama tagi. (6) Talið er að efni þvegin með silikötum geti varist óhreinindum betur en annars væri. (7) Bjartari áferð er talin nást með kísil (silikötum) en með hliðstæðum stilliefnum fyrir sýrustig, svo sem sóta og vítissóta. Svo segir viðvíkjandi lituðum efnurn í þvotti f riti James G. Vail, 1952: „Siliköt í þvottaefnum auka ekki leysanleika litarefna sem er ein ástæða til þess að tær og björt áferð næst þegar þvegið er með silikat efnablöndum. Siliköt reynast líka vel með vissum litarefnum, sem eru notuð til að draga úr gulum litum, með bláum blæ eða með litlausum glitefnum sem gefa ljósan blæ með gliti sínu. Ennfremur breyta siliköt litrófi ýmissa efna.“ í inngangi þessarar greinar var getið um nokkrar stað- hæfingar sem taldar hafa verið gilda um þvott með jarð- hitavatni. Fyrst skulum við skoða staðhæfingar um að hægt sé að ná sambærilegum árangri í þvotti með öðru móti en að nota jarðhitavatn. Því má ekki alveg eins bæta kísil út i ferskt vatn eða auka við hann í þvottaefnum til að ná sama árangri. Jú, við höfum séð slíkt bera árangur, en það virðist næsta ósennilegt að hægt sé að finna ferskvatn sem ekki ylli einhverjum útfellingum og þá hætt við að árangur yrði rýrari. Hinar staðhæfingarnar vörðuðu einkanlega litblæ, bæði að því er varðaði kínversku teppin og íslandskortið. Við 54 VERKTÆKNI

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.