blaðið - 17.08.2006, Page 16
blaði
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árog dagurehf.
SigurðurG.Guðjónsson
Sigurjón M. Egilsson
Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Janus Sigurjónsson
Fangar eru líka fólk
Blaðið hefur sagt fréttir af yfirfullum fangelsum. Þar hefur komið fram
að fangelsin eru ekki bara yfirfull, sum standast ekki kröfur og við þau hafa
verið gerðar alvarlegar athugasemdir. Svo bág er staðan að fangelsismála-
stjóri, sem virðist vera hinn vænsti embættismaður, hefur sagt að hann vilji
ekki bera ábyrgð á því hvernig komið er og hyggist láta af embætti.
Ábyrgðin er ekki bara fangelsismálastjóra. í áraraðir hefur verið beðið
eftir nýju fangelsi. Það hefur hins vegar verið sett til hliðar af nokkrum
dómsmálaráðherrum. Þeir virðast eiga það sameiginlegt að hafa sett lausnir
á bráðum vanda í bið, kannski þar sem fangar eru ekki í uppáhaldi hjá
okkur hinum og mæta ekki sama skilningi og aðrir. Það er samt skylda
samfélagsins að búa að öllum með sæmilegum hætti, líka þeim sem hafa
brotið gegn okkur hinum. Öllum samfélögum fylgir margbreytileiki, jafnt
jákvæður sem neikvæður. Það er hrein og klár skylda okkar að búa betur að
refsiföngum en við gerum nú. Dómsmálaráðherra verður að láta til sín taka
og þoka brýnu máli áfram. Sú staðreynd ein, að ekki er pláss í fangelsum
fyrir fleiri, dugar til að viðurkenna neyðarástand. Við bætist að þau okkar
sem brjóta af sér verða að bíða mánuðum saman frá því að dómur er kveð-
inn þar til unnt er að hefja afplánun. Það er ósanngjarnt og eykur jafnvel á
refsinguna, langt umfram það sem dómarar hafa ákveðið.
Svo margir eru vistaðir í gæsluvarðhaldi að ekki er unnt að koma fleiri
föngum að. Það er afleitt og ekki síður sú staðreynd að við beitum gæslu-
varðhaldi af meiri hörku en flestar nálægar þjóðir. Það er ekki bara að við
höfum þröng og yfirfull fangelsi, sem jafnvel eru ekki samboðin einum né
neinum, heldur höfum við farið þá leið að beita einangrun af meiri fanta-
skap en aðrar þjóðir.
Það er ekki til sóma að bæta ekki úr og það er ekki hægt að ár eftir ár sé
jafn sjálfsagt mál og nýtt fangelsi látið mæta afgangi. Auk þess hefur verið
bent á að það kostar mikið að hafa gæsluvarðhaldsfangelsi á Litla-Hrauni,
fjarri lögreglu, fjarri dómsölum og fjarri lögmönnum. Ferðir fram og til
baka kosta peninga og tíma. Rök um peninga eru oftast einföldust og mæta
mestum skilningi, jafnvel þau duga ekki hér.
Erfiðara er að beita rökum um heill og hag fárra, ekki síst þegar talað er
um fanga. Vissulega er staða þeirra slæm og á kannski að vera það. Það er
slæmt að vera sviptur frelsi og bara þess vegna er hægt að segja að staða fang-
ans sé slæm, en það er ekki okkar að auka á raunir þeirra og aðstandenda
með því að búa að föngum einsog við gerum. Hver og einn sem kemur úr af-
plánun sem betri maður, tekur virkan þátt í samfélaginu, snýst frá fyrri nið-
urlægingu, öðlast frið og hamingu er meira virði fyrir okkur öll en svo að
við getum sæst á að aðbúnaður fanga sé með þeim hætti að úr fangelsum sé
nánast engin von að komi betri einstaklingar en fóru inn. Ef í útreikningana
sem ráða frestun úrlausna ár eftir ár hefur gleymst að setja inn sálarheill,
lífsgleði og það að gera vafasaman mann góðan, er best að reikna upp á nýtt.
Fangar eru nefnilega líka fólk.
Sigurjón M. Egilsson.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Slmbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiöja Morgunblaösins Dreifing: (slandspóstur
SKOTVEIÐI
MIÐVIKUDAGINN 23. ÁGÚST
blaðió
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Katrín L. Rúnarsdóttir • Sími 510 3727 • Gsm 856 4250 • kata@bladid.net
Magnús Gauti Hauksson • Sími 510 3723 • Gsm 6912209 • maggi@bladid.net
16 I ÁLIT
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 blaðið
írtEMM...FVWiefi!FFfí>í
AvM 06 T\VfíM. ÉO Vtvp
ftGr tllT>F£Í íflTC Á
s ap &nm 5WW. jf
Oryggisæði
Mér skilst að ég fái ekki hafa með
mér bók að lesa í flugvélinni næst
þegar ég heimsæki Bandaríkin,
hvað þá fartölvuna eða iPod spil-
arann minn. Og ekki heldur vatn
að drekka. En fæ þó blessunarlega
að bera peningana mína í glærum
plastpoka og hugsanlega lyf líka ef
mikið liggur við. Mögulega fæ ég
eitthvað að lesa um borð. Breska
lögreglan kom að sögn í veg fyrir að
hryðjuverkamenn myndu sprengja
tug flugvéla yfir Atlantshafi nú á
dögunum og það hefur haft þessi
áhrif á flugsamgöngur. Eftir hryðju-
verkaárásirnar n. september 2001
var verulega hert á öryggiskröfum
á flugvöllum með tilheyrandi óhag-
ræði, en eftir að fréttirnar bárust
frá Englandi í síðustu viku hefur
öryggisviðbúnaðurinn verið aukinn
svo mjög að flugsamgöngur á Vestur-
löndum eru við það að lamast. I Eng-
landi hefur þriðja hverju flugi verið
frestað undanfarna viku, biðtími á
flugvöllum hefur margfalldast og
allt er gengið úr skorðum. Nú er sagt
að þessi aukni viðbúnaður verði jafn-
vel varanlegur.
Sigur óttans
Svo virðist því sem hryðjuverka-
mönnunum þurfi ekki einu sinni
að takast að fremja ódæðisverk sín
til að lama jafnmikilvæga innviði
Vesturlanda og flugsamgöngur eru.
Óttinn einn hefur orðið til þess að
öryggisæði hefur runnið á stjórn-
völd á Vesturlöndum sem hafa upp
á eigin spýtur heft ferðafrelsi borg-
ara sinna með framangreindum
aðgerðum. Ástæðan fyrir þessum
óhemju öryggisviðbúnaði er að
sögn sú að koma í veg fyrir frekari
hryðjuverk í flugi. Sem betur fer
urðu hryðjuverkaárásirnar á lest-
arstöðvum í Madríd 11. mars 2003
ekki til þess að komið væri á sein-
virkri öryggisgæslu við alla braut-
arpalla. Og enn geta menn ferðast
með skipum og rútum án þess að
fara í gegnum vopnaleit. Samt er
hægt að vinna umtalsverð voða-
verk með slíkum samgöngutækjum
og mun auðveldara að koma því við
enda öryggisgæsla lítil. Því hlýtur
sú spurning að vakna hvers vegna
hryðjuverkamenn sprengja ekki
lestar, strætisvagna og skip i meira
mæli?
Táknmynd á flugi
Kannski erþað ekki eyðileggingin
sjálf sem mestu skiptir fyrir hryðju-
verkamenn heldur miklu frekar að
geta sýnt fram á að þeir hafi mátt
til að vinna bug á öryggisviðbúnaði
Vesturlanda. Þannig er flugið orðið
að táknmynd fyrir hryðjuverka-
ógnina. Það er orðinn táknrænn
sigur fyrir hryðjuverkamenn að
geta grandað vestrænni flugvél. Ef
enginn öryggisviðbúnaður væri, þá
væri á engu að vinna bug. Einmitt
þess vegna telja ógnarverkamenn
svo miklu meiri ávinning í að
sprengja upp flugvél heldur en lest
eða strætisvagn.
Upp úr miðri tuttugustu öld var í
tisku meðal hryðjuverkamanna að
ræna flugvélum og hóta að myrða
bæði farþega og áhöfn yrði kröfum
þeirra ekki mætt. Það var ekki fyrr
en vestræn stjórnvöld tóku upp þá
einörðu stefnu að neita alfarið að
semja við hryðjuverkamenn að voða-
verkamönnum lærðist að þýðing-
arlaust er að ræna flugvélum. Það
sama á við nú. Ef Vesturlandabúar
eru staðfastir í að láta hryðjuverka-
menn ekki breyta lifnaðarháttum
sínum, líka hvað flugsamgöngur
varðar, þá munu hryðjuverkamenn-
irnir sjá að gagnslaust er að sprengja
upp flugvélar. En láti menn hins
vegar hryðjuverkaógnina verða til
að hefta ferðafrelsi Vesturlandabúa
er það eins og að semja við hryðju-
verkamenn og verður aðeins til að
magna ógnina enn frekar.
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
Klippt & skorið
Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra
hafa sent Þorgeiri Pálssyni, flug-
málastjóra, bréf þar sem þau lýsa
yfir áhyggjum vegna breytinga á vaktkerfum
flugumferðarstjóra og vara sérstaklega við
slæmum afleiðingum, sem
þær geti haft á „heilsu og
félagslíf starfsmanna." Nú
skal ekki fullyrt hér hvort
það er rétt athugað hjá
þeim að félagslíf flugum-
ferðarstjóra sé í stórhættu
vegna þessa, enda sjálfsagt æskilegt að það
sé ekki of fjörugt. En áhyggjur af heilsu flug-
umferðarstjóra eru vissulega á rökum reistar
í Ijósi þess dularfulla faraldurs, sem herjað
hefur á flugumferðarstjóra að undanförnu.
Er raunar með ólíkindum að Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunin hafi ekki gert rannsókn á honum,
en veikindin leggjast einungis á flugumferð-
arstjóra og greinast ekki með hefðbundnum
aðferðum læknisfræðínnar.
Frá Kúbu berast þær fregnir að Fídel
Kastró sé ódauður enn, en nokkur vafi
lék á hvort hann væri
enn þessa heims eftir óvænt
veikindi. En varla kemur það
mörgum á óvart að heilsan
sé tekin að gefa sig hjá hinum
áttræða einræðisherra, en
enginn núlifandi einræðisherra heimsins hefur
setið jafnlengi, í 46 ár. En Kastró þarf samt að
sitja á valdastóli í þrjú ár enn til þess að slá við
Kim II Sung i Norður-Kóreu, en hann lést árið
1994 ogerenndauður.
#
hætt er að segja að hann hafi vakið
athygli, fréttaflutningur Berlingske
Tidende um óvenjulegar hækkanir
á gengi allra skráðra félaga sem FL Group
hefur fjárfest í, kortéri fyrir hálfsársuppgjör FL
Group, en gengið lækkaði lóðbeint aftur eftir
uppgjör. Lét blaðið að því liggja að FL Group
hafi hækkað gengið með handafli. Hér er um
alvarlegar ásakanir að ræða, en þeim mun
sérkennilegra er hvernig Fréttablaðið tekur
á málinu. Þar mátti í gær lesa álit Hannesar
Smárasonar á málinu, sem telur fréttina hið
versta níð og rakti það helst
til fyrirhugaðrar samkeppni
Nyhedsavisen við Berling, en
veruleg eignavensl eru á milli
FL Group og Dagsbrúnar, sem
á bæði Fréttablaðið og Nyheds-
avisen. En hið merkilega er að hvergi er minnst
á hina efnislegu umfjöllun, sem vekur þessi
sterku viðbrögð.
andres.magnusson@bladid.net