blaðið - 13.10.2006, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006
blaðið
VEÐRIÐ I DAG
Sunnanátt
Suðaustan og sunnanátt 5 til 10 metrar
á sekúndu. Rigning eða súld með köflum
sunnanlands og vestan. Hiti 8 til 14 stig,
svalast norðvestantil.
ÁMORGUN
Skúrir Sunnanlands
Suðvestan og vestan 8 til 13
metrar á sekúndu og skúrir
sunnan- og vestanlands. Hiti 6 til
12 stig, hlýjast á Norðausturlandi.
Algarve 23 Glasgow 16 New York 9
Amsterdam 17 Hamborg 16 Orlando 18
Barcelona 23 Helsinki 11 Osló 12
Berlín 17 Kaupmannahöfn 14 Palma 23
Chicago 3 London 17 París 17
Dublin 15 Madrid 21 Stokkhólmur 12
Frankfurt 17 Montreal 3 Þórshöfn 12
Kína:
Horn óx
úr bólunni
Zhang Yuncai, 88 ára gamall
Kínverji, fann fyrir bólu á
hausnum þegar hann var í sturtu
í maímánuði síðastliðnum.
Fimm mánuðum síðar er bólan
orðin að æxli sem líkist horni og
hefur vaxið fimm sentimetra út
úr höfði mannsins.
Læknar á fimm sjúkrahúsum
í Kína hafa rannsakað hornið.
People’s Hospital í Zhengzhou
í Kína er síðasta sjúkrahúsið í
röðinni til að rannsaka mann-
inn og hefur stjórn spítalans
nú boðist til að greiða allan
sjúkrahúskostnað mannsins við
að fjarlægja æxlið.
Nauðgun í húsasundi:
Lögregla leitar
enn nauðgara
Lögreglan leitar vísbendinga
vegna nauðgunar sem framin
var aðfaranótt sunnudags þegar
tvítugri konu var nauðgað. Glæp-
urinn var framinn að húsabaki
Menntaskólans í Reykjavík, en
tveir menn réðust á konuna
og drógu hana þangað. Annar
þeirra nauðgaði henni á meðan
hinn hélt henni fastri. Hugsan-
lega náðist eitthvað af árásinni á
öryggismyndavél, en það er ekki
víst. Gerendurnir ganga enn
lausir.
Grunnskolaborn a Flateyri
bregða á leik Krakkarnir láta
ekki tungumálaörðugleika tru-
fla sig íleik. Hvít jörð blasti við
Vestfirðingum á miðvikudaginn.
: • V ' •*
Óvenjuleg staða í Grunnskóla Önundarfjarðar:
Tvítyngd börn túlka
fyrir kennara
■ Skilja hvorki né tala íslensku ■ Þörf á túlkum ■ 25 af 38 nemum nýbúar
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Gera á Grunnskóla Önundarfjarðar
að miðstöð fyrir nýbúafræðslu í
ísafjarðarbæ til að bregðast við alló-
venjulegri stöðu sem komin er upp í
skólanum. Tveir af hverjum þremur
nemendum þar eru af erlendu bergi
brotnir og þar af sjö sem tala hvorki
né skilja íslensku. Skólastjóri Grunn-
skóla Önundarfjarðar segir sam-
skipti nemenda og kennara ganga
vel fyrir sig þó stundum þurfi tví-
tyngd börn að túlka fyrir kennara.
Vantar mannskap
„Þetta er sérstök staða. Þegar
svona mikið af alveg mállausum
börnum kemur í skólann stöndum
við frammi fyrir því að eitthvað
verður að gera,” segir Skarphéðinn
Ólafsson, skólastjóri Grunnskóla
Önundarfjarðar. Alls stunda 38
nemendur nám í skólanum og þar
af 25 þar sem annað eða báðir for-
eldrarnir eru nýbúar.
I haust bættust svo fimm nýir
nemendur í hópinn sem allir eiga
pólska foreldra og tala hvorki né
skilja íslensku.
Skarphéðinn segir að þrátt fyrir
tungumálaörðugleika gangi sam-
skipti kennara og nemenda mjög vel.
„Þrátt fyrir allt gengur þetta mjög vel.
Þau börn sem eru tvítyngd hjálpa
okkur heilmikið í samskiptum en
það eru þau börn sem hafa fæðst
hér á landi eða komið hingað mjög
ung.“
Að sögn Skarphéðins fer kennslan
að mestu fram á íslensku og notast
er við túlk þegar þarf að hafa sam-
skipti við foreldra. Hann segir þó
nauðsynlegt að skólinn fái til sín
pólskumælandi kennara. „Við
þurfum meiri mannskap og þá helst
kennara sem talar pólsku og getur
kennt á báðum málum.“
Leggja áherslu á fræðslu
Kristín Ósk Jónasdóttir, grunn-
skólafulltrúi ísafjarðarbæjar, segir
ástandið mismunandi eftir skólum.
Hlutfall erlendra nemenda sé hæst
í Grunnskóla Önundarfjarðar og
næsthæst í Grunnskólanum á Suður-
eyri þar sem um 20% af nemendum
eru af erlendu bergi brotnir. „Það
kom hópur pólskra barna hingað
í haust sem var einn sá stærsti í
langan tíma. En þetta er þróun sem
hefur verið í gangi undanfarin ár.“
Samkvæmt Kristínu er nú verið
að vinna að því að gera Grunnskól-
ann í Önundarfirði að móðurskóla
nýbúafræðslu á svæðinu. Hún
reiknar með því að fyrsta skrefið i
þá átt verði tekið næsta haust. „Við
ætlum að leggja mikla áherslu á
þetta i vetur og fá til okkar sérfræð-
inga ásamt því að vera með nám-
skeiðahald fyrir kennara.“
Markmiðið verður að í Grunn-
skóla Önundarfjarðar muni starfa
sérfræðingar sem síðan geti miðlað
reynslu og aðstoðað aðra skóla á
svæðinu varðandi nýbúafræðslu.
Kristín treystir sér þó ekki til að
spá fyrir um hvort erlendum grunn-
skólabörnum komi til með að fjölga
enn frekar á svæðinu á næstu árum.
„Miðað við að búið er að opna landa-
mæri og verkafólki er frjálst að ferð-
ast milli landa í atvinnuleit má al-
veg reikna með meiri fjölgun frekar
en hitt.“
* 4
Hugo Chavez:
Ver stjórn
Morales
Hugo Chavez, forseti Venesú-
ela, heitir því að verja núverandi
ríkisstjórn Bólivíu verði gerð
tilraun til þess að steypa Evo
Morales af stóli forseta.
Chavez hefur margoft sakað
stjórnarandstöðuna í Bólivíu,
fjölmiðla landsins og banda-
rísk stjórnvöld um að reyna
að magna upp óánægjuraddir
meðal herforingja í landinu
og skipuleggja verkföll í þeim
tilgangi að auka líkurnar á
valdaráni.
Bandarísk stjórnvöld hafa ít-
rekað neitað þessum ásökunum
og segjast hvorki ætla að steypa
Morales né Chavez af stóli.
Fjármálaráðherra:
Árni víkur
ekki sæti
Arni Mathiesen fjármálaráð-
herra og starfsmenn í fjármála-
ráðuneytinu munu ekki víkja
sæti við
meðferð máls
erlýtur að
staðfestingu
samþykkta
Söfnunarsjóðs
lífeyrisréttinda
frá því fyrr
á þessu ári.
Öryrkjabanda-
lagið hafði áður krafist þ ess
að ráðherra, ráðuneytisstjóri
fjármálaráðuneytisins, sem er
formaður stjórnar Söfnunarsjóðs
lífeyrisréttinda, og aðrir starfs-
menn ráðuneytisins myndu
víkja sæti við meðferð málsins
hjá ráðuney tinu vegna vanhæfis.
^■11
ÍSLANDS
NAUT
Samfylking og Vinstri grænir:
Borgarstjóri rangtúlkar
Borgarstjórnarflokkur Sam-
fylkingarinnar sagði í gær borgar-
stjóra hafa villt gróflega um fyrir
borgarbúum er hann greindi frá
úttekt endurskoðunarsviðs KPMG
á fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar.
Sagði borgarstjóri niðurstöðuna
áfellisdóm yfir fjármálastjórn síð-
asta meirihluta. Eytt hefði verið um
efni fram árum saman og skuldum
safnað.
Samfylkingin vísar þessu á bug og
segir að við samanburð á hreinum
skuldum sveitarsjóða og veltufé frá
rekstri endurspeglist sterk fjárhags-
staða borgarinnar. Hvort tveggja sé
í skýrslunni en hvergi dregið fram.
Hreinar skuldir borgarsjóðs hafi
lækkað úr 15 milljörðum í 1,2 millj-
arða á 10 árum. Skuldaaukning í
samstæðu borgarinnar sé einkum
til komin vegna fjárfestinga fyrir-
tækja borgarinnar þar sem öruggar
framtíðartekjur og gríðarleg eigna-
myndun kemur á móti. Rangt sé að
telja ekki allar tekjur með, svo sem
fastar arðgreiðslur Orkuveitunnar
eða greiðslur vegna ábyrgða á skuld-
bindingum Landsvirkjunar.
Vinstri grænir benda á að eigin-
fjárhlutfall borgarinnar sé yfir 40
prósentum og að rekstrarniður-
staða fyrstu sex mánuði þessa árs sé
jákvæð um 8,6 milljarða. Ljóst sé af
úttektinni að reynt sé að draga fram
það sem er neikvætt.
Minnihlutinn borinn sökum
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sakaði
síðasta meirihluta um óráðsíu.