blaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 38

blaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 blaðið Stjörnurnar eru bara manneskj- ur eins og við hin,“ segir Karl Berndsen hár- greiðslumeistari, förðunarmeist- ari, búðareigandi og margt fleira. Hann hefur unnið við það síðustu mánuði að greiða stúlkunum í Sug- ababes. „Þetta eru bara ungar stúlkur sem hafa heilan her af fólki til að þjóna þeim, gera þær sætar og vernda þær allan sólarhringinn. Það er ótrúleg lífsreynsla að fá að vera með í þessu liði og ég tel mig vera mjög heppinn að fá að vinna með þessum hæfileikaríku stúlk- um,“ segir Karl. „Ég lærði hárgreiðslu fyrir mörg- um árum á Salon Veh, eftir það fór ég til London og lærði förðun. Svo kom ég heim og átti Kompaníið en eftir að ég seldi það er ég búinn að vera á milli íslands og London, og það eru orðin nokkur ár sem ég hef verið á þessu flakki. 1 dag er ég mik- ið hérna heim því ég á verslunina Næs Connection með systur minni og mági en svo er ég líka mjög mik- ið úti í London. Ég er með umboðs- skrifstofu í London sem finnur handa mér störf við hárgreiðslu úti, hún kom mér einmitt í samband við Sugababes," segir Karl. Ofurskvísurog prímadonnur „Þær eru frábærar, stelpurnar í Sug- ababes, og ég er búinn að fá tækifæri til þess að ferðast mikið með þeim. Þetta eru auðvitað bara venjulegar stelpur um tvítugt og þær vilja fá að lifa sínu lífi. Ég man sérstaklega eftir einu atviki þar sem við áttum að mæta eitthvert klukkan fimm en ein þeirra lét eitthvað bíða eftir sér. Klukkan átta vorum við enn að bíða en þá hafði stúlkan ákveðið að fara í bíó og við þurftum bara að bíða á meðan. Þegar hún loksins kom svo út í bíl þurftum við að drífa okkur alveg ótrúlega mikið og ég hafði klukkutíma til þess að græja hárið á þeim öllum og svo þurfti að gera allt hitt líka, mála sig, klæða sig og allt. Þetta var ekkert lítil pressa því þær vilja að sjálfsögðu alltaf líta óaðfinnanlega út og kröfurnar eru ekkert minni þó að tíminn sé lítill," segir Karl. Slúður úr bransanum „Það er alltaf eitthvert slúður í þessum bransa. Sugababes-stelp- urnar eru samt tiltölulega stilltar og svo lærir maður það líka að þegja um þessi mál, svona til þess að halda vinnunni. Ég get samt sagt frá því að þessar tvær nýju, Heidi Range og Amelle Berrabah, sem hafa ekki verið frá byrjun í bandinu eru báðar á föstu. Keisha Buchanan sem er sú eina sem hefur verið frá byrjun er ekki á föstu en er að hitta þekktan tónlistarmann. Meira má ég ekki segja, maður vill ekki hætta á það að missa vinnuna,“ segir Karl. Fullt af frægum gellum „Ég hef aðvitað unnið við það að greiða fleirum en Sugababes. Um tíma vann ég mikið við það að greiða á tískusýningum og þá vann maður auðvitað með öllum þessum frægu módelum, Kate Moss og fleir- um. Svo hef ég haft hendur í hári The Orson, Alice Evans, Gary Kemp, Jerry Hall, Björk, Rupert Everett, Martin Amis, Eagle Eye Cherry og Elle Macpherson. Það merkilegasta er nú samt að þetta er allt venjulegt fólk og maður kemst ekkert áfram nema koma fram við það eins og manneskjur, þó þetta séu stórstjörn- ur. Maður verður eiginlega svona hálfdofinn fyrir því að þetta séu stjörnur. Um leið og maður hefur unnið með þessum eða hinum er maður strax farinn að huga að þvi að stíga næsta skref og mann lang- ar að vinna með einhverjum sem er enn stærri,“ segir Karl. „Eina stjarnan sem ég hef unnið með og mér hefur virkilega fund- ið mikið til koma að fá að hitta er Jerry Hall. Hún er eitthvað eldri en ég og ég hef horft á hana síðan ég var krakki. Ég var mjög stressaður þegar ég var að fara að hitta hana og sérstaklega kannski af því að ég stama. Mér finnst oft erfitt að kynna mig, en það gerði það bara að verkum að ég kom eiginlega betur út en ég átti von á. Ég varð eiginlega bara að þöglu týpunni og það kom kannski út eins og ég væri pínulítið merkilegur með mig. Þetta var samt alveg að hitta í mark- ið hjá Jerry Hall og hún hrósaði mér mikið þegar ég var búinn að greiða henni. Aftur á móti rak hún förðun- arfræðinginn sem var síblaðrandi út, því hann var svo yfirgnæfandi,“ segir Karl. Harður bransi og mikil samkeppni „Ég er náttúrlega búinn að vera mjög lengi í þessu harki en ég hef þurft að leggja mjög hart að mér. Það er ekkert sjálfsagt að fá tæki- færi til að vinna með stjörnum á borð við Sugababes. Það eru mörg þúsund manns sem bíða eftir því að þú klikkir svo að þeir geti fengið starfið þitt. Flestir sem eru í þessum bransa eiga þá ósk heitasta að fá að vinna með fræga fólkinu og fá tæki- færi til þess að greiða þeim á hverj- um degi. Það eru margir sem bítast um hverja stöðu og maður þarf að leggja sig allan fram. Ég hef komist áfram á einskærri þolinmæði og eljusemi en ég mundi ekki mæla með þessu við nokkurn mann svona eftir á að hyggjasegir Karl. Gott jafnvægi „Það er frábært að geta verið í þess- um harða bransa og geta svo skropp- ið heim til íslands öðru hvoru og ve- senast í búðinni minni. Við kaupum fötin úti, þau eru flutt heim og ég kem heim og mynda þau og sé um markaðsmálin, auglýsingar og svona en svo sér systir mín um að selja þau í búðinni okkar í Hæðarsmára 4. Það er gaman að vesenast í þessum tísku- heimi og ég hef í raun komið að flest- um hliðum þessa geira,“ segir Karl. kristin@bladid.net Karl Berndsen hefur greitf Kate Mossr Elle Macpherson og Sugababes: viðtal

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.