blaðið - 13.10.2006, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 13.OKTÓBER2006
blaöiö
INNLENT
ÞJÓFNAÐUR
Óheppinn ferðamaður
Feröamaður lenti í þeirri ógæfu aö finna ekki
veskið sitt þegar hann ætlaöi að borga reikning-
inn á veitingahúsi í Reykjavík. Maöurinn haföi
skilið eftir úlpu í fatahenginu en einhver óprútt-
inn haföi stolið henni ásamt veskinu hans.
SAMKEPPNISMÁL
Samruni heimilaður
Samruni Exista og VÍS hefur veriö heimilaður af Samkeppn-
iseftirlitinu. í ákvörðuninni segir að eftir athugun bendi
ekkert til þess að samlegðaráhrif þessa samruna skapi
aðgangshindranir að viðkomandi mörkuðum né að sam-
keppnisleg staða keppinauta skerðist við samrunann.
UTANRÍKISMÁL
Geir fundar með Lugar
Geir H. Haarde ræddi varnarmál og framtíðarsamskipti islands
og Bandaríkjanna á fundi með Richard G. Lugar formanni utan-
ríkisnefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings. Geir gerði Lugar
grein fyrir samkomulagi landanna um varnarmál og fór þaðan í
John Hopkins háskóla og flutti ræðu um samskipti ríkjanna.
w
Hryðjuverkaréttarhöld í Bretlandi:
Undirbjó árásir
Dhiren Barot, 34 ára gamall Breti,
játaði fyrir rétti að hafa skipulagt
röð hryðjuverka í Bretlandi og
Bandaríkjunum. Hann hugðist
nota geislavirka sprengju í einni
árásinni.
Barot segist hafa ætlað að
sprengja upp kauphöllina í New
York, höfuðstöðvar Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins í Washington auk árása á
samgöngukerfi Lundúnaborgar.
Áætlanir Barots virðast ekki
hafa verið langt á veg komnar og
sækjandi málsins viðurkennir
að hann hafi hvorki tryggt sér fé
til aðgerðanna né hafi neinar vís-
bendingar um að hann haft efni til
sprengjugerðar.
Barot var handtekinn af breskum
yfirvöldum fyrir tveimur árum í
Wall Street Barot ætlaði að
sprengja upp kauphöllina.
kjölfar þess að bandarísk stjórnvöld
lýstu því yfir að veruleg hætta væri
á hryðjuverkaárás í landinu. Við-
vörunin var gefin út stuttu fyrir for-
setakosningarnar í landinu og voru
stjórnvöld af sumum sökuð um að
ala á ótta til þess að tryggja George
Bush forseta sigur.
Fagleg ræsting
fyrirtækja
er bæöi betri og ódýrari
'j. 1
Hreint:
Auðbrekku 8, 200 Kópavogi, sími S54 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is
Rjúpnaveiðimenn athugið
Þjóögaröurinn á Þíngvöllum starfar á grundvelli laga nr.
47/2004. Mörk þjóögarðsins skv. 1 .gr eru sýnd á
meðfylgjandi korti.
Lögregla undir vopnum:
Meiri hætta á að
gripið verði til vopna
■ Byssur fyrir löggur ■ Vopnum sjaldan beitt ■ Hætta á slysum
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Ef lögreglan byrjar að nota vopn er
líklegra að vopnum verði beitt gegn
henni en ella. Þetta er mat Helga
Gunnlaugssonar, afbrotafræðings
og prófessors í félagsfræði við Há-
skóla fslands.
Starfshópur um tækja- og bún-
aðarmál lögreglunnar hefur lagt
til að lögregluliðin í landinu fái að
minnsta kosti tvær skammbyssur á
hverja aðallögreglustöð.
„Það er spurning hvaða vanda
aukinn vopnabúnaður lög-
reglu eigi að leysa. Auð-
vitað verður lögreglan
á hverjum tíma að
endurskoða starf
sitt í breyttu um-
hverfi. En einstök
dæmi um vopna-
burð almennings
mega ekki vera
grundvöllur fyrir
róttækum breyt-
ingum,” segir
Helgi. Hann
bendir á að störf
lögreglunnar felist
mest í almennum
samskiptum við borg-
arana auk þess sem
öryggi hér sé meira en
gengur og gerist erlendis.
„íslendingar eru almennt
mjög öruggir í sínu byggðar-
lagi og í sínu hverfi. Ef eitfhvað
Einstök dæmi
ekkigrund-
völlur róttækra
breytinga
Helgi Gunnlaugsson
afbrotafræðingur
er virðist öryggi okkar vera meira
en annars staðar. Það er helst á
ákveðnum tímum sólarhringsins
W
‘^nanrwi
Er mataræöiö
óreglulegt?
LGG+ er fyrirbyggjondi vörnf
Skyndibitafæði, sætindi, óreglulegar
máltiöir - allt þetta dregur úr innri
styrk, vetdur þróttleysi, kemur
melting unni ú r lagi ogstuðlaraö
vantfðan. Regluieg neysla LGG+
vinnur gegn þessum áhrifum
ogftýtirfyrir þk'l aðjafnvaegi
náist á ný, Dagleg
neysla þess tryggir
fulla vrirkni.
sem menn hika við að vera á ferli
á ákveðnum stöðum,” tekur Helgi
fram.
Hann bendir á að í Bandaríkj-
unum sé lögreglan vopnum búin og
þar drepi lögreglumenn fleiri borg-
ara en öfugt. „Það hefur reyndar
dregið úr vopnaviðskiptum lög-
reglu og borgara í Bandaríkjunum
að undanförnu sem hafa dauðsföll í
för með sér en hættan á mistökum
og slysum er alltaf fyrir hendi. Það
eru mörg dæmi sem sýna það. Ef lög-
reglan hér byrjar að nota vopn er
líklegra að vopnum verði beitt
gegn henni. Það er nefni-
lega hætta á að einhverjir
borgaranna vopnbúist
þálíka.”
Að sögn Helga
er vopnaburður
lögreglunnar al-
mennt heldur
* meiri í Evrópu
* enhérenþareru
einnig sérsveitir
a eins og hér.
„Kannski er
brottför hersins
einhver aflvaki
á bak við þessar
tillögur um auk-
inn vopnabúnað
lögreglunnar. Það
þarf að ræða hvort
lögreglan eigi að taka
að sér eitthvert nýtt hlut-
verk. Þetta þarf að vera uppi
á borðinu.”
IKEA opnar stærstu verslun landsins:
Sólin byrjaði að skína
Samkvæmt H.grein reglugeröar nr. 848/2005 um
þjóögarðinn á Þingvöllum er öll skotveiöl bönnuö innan
marka þjóögarösins.
Nánari upplýsingar og hnitsett kort má fmna á heimasiöu
þjóögarðsins www.thingvellir.is
„Þetta hefur farið afskaplega vel
af stað. Sólin byrjaði að skína þegar
við opnuðum og þetta hefur gengið
eins og best verður á kosið,“ segir
Þórarinn Ævarsson, framkvæmda-
stjóri IKEA á íslandi. Fyrirtækið
opnaði í gær stærstu verslun lands-
ins í Garðabæ.
Verslunin er 20.600 fermetrar
að stærð og hefur sölurýmið rúm-
lega tvöfaldast frá því sem áður
var. „Gamla húsnæðið var fyrir
löngu orðið allt of lítið. Nýja versl-
unarrýmið er helmingi stærra og
þetta er vonandi passlega stórt. Við
IKEA stækkar Við nýju verslunina eru um 850 bílastæöi
höfum verið að fá tæplega tvær millj- að koma sex sinnum á ári til okkar,
ónir manna í heimsókn á hverju ári. en heimsóknunum fjölgar vonandi
Hver Islendingur var að meðaltali með nýju búðinni," segir Þórarinn.