blaðið - 13.10.2006, Qupperneq 6
Þegar taka þarf til nesti í skólann á hverjum degi
skiptir miklu að það sé hollt og gott án þess að verða
leiðigjarnt. Notaðu gæðaáleggið frá SS til að gera
nestið fjölbreytt og gott. Flatbrauð og SS hangiálegg
er sígilt og sívinsælt í nestisboxið. Þú þekkir SS álegg
águlu umbúðunum.
V' * - :-X. . : ■ j
. ~-J -\/ "
-S. í
FÖSTUDAGUR 13.OKTÓBER 2006
blaAift
INNLENT
LAUGARDALSVÖLLUR
Vallargestir sektaðir
Fjörutíu vallargestir á landsleik íslendinga og Svía í knattspyrnu á miðvikudags-
kvöld voru sektaðir fyrir að leggja ólöglega. Umræddir lögðu bílum sínum á
gangstéttum við Reykjaveg sem er bannað enda gildir þar bann við stöðvun eða
lagningu ökutækja. Lögreglan taldi þó vel á annað hundrað ónotaðra þílastæða
beint fyrir framan völlinn á sama tíma og verið var að setja sektarmiða á bílana.
Reknir eftir 30 ára starf
Fjölmennur mótmælafundur Nýverið var
þremur starfsmönnum Alcan sagt upp störfum
án nokkurra skýringa. Efnt var til fundar um
uppsagnirnar i gær og var heitt i sumum.
Blaðið laugardaginn 7. október
Starfsmenn Alcan ósáttir vegna uppsagna:
Reka þá sem þeim
finnst óþægilegir
■ Engar skýringar gefnar ■ Vísum gagnrýni alfarið á bug
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
.Yfirmenn fyrirtækisins hafa ekki
gefið neinar skýringar en hins vegar
gefið ýmislegt í skyn. Þeir hafa látið
eins og það sé starfsmönnunum
fyrir bestu að ástæður séu ekki upp
gefnar og það sé af tillitsemi við þá
að engar skýringar fáist. Við mót-
mælum því harðlega,“ segir Gylfi
Ingvarsson, trúnaðarmaður starfs-
manna Alcan.
Þremur starfsmönnum Alcan var
sagt upp eftir rúmlega þrjátíu ára
starf hjá fyrirtækinu. Gylfi bendir á
að frá því að kjarasamningar voru
undirritaðir í mars 2005 hafi níu
starfsmönnum verið sagt upp án
sýnilegrar ástæðu. Gylfi segir mik-
inn ugg ríkja meðal starfsmanna.
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Alcan, áttar sig ekki á þeirri
gagnrýni að fyrirtækið vilji ekki
tjá sig um uppsagnirnar á þeim for-
sendum að það sé starfsmönnum
fyrir bestu. „Okkar stefna er sú að
ræða ekki málefni einstakra starfs-
manna og þrátt fyrir stóryrtar yfirlýs-
ingar þá brey tum við ekki út af þeirri
stefnu,“ segir Hrannar.
Ekki haegt að verja sig
Sigurður P. Sigurðsson, fyrrver-
andi starfsmaður Alcan, tekur undir
orð Gylfa og er verulega ósáttur með
að raunverulegar skýringar á upp-
sögn sinni komi ekki fram.
„Handbendi stjórnenda fyrirtækis-
ins stunda það að láta sögu kvisast
út um að hinir og þessir starfsmenn
séu ekki að standa sig. Þeir sem
lenda í skotlínunni geta aldrei varið
sig,“ segir Sigurður. „Ég veit að mér
var sagt upp störfum vegna þess að
ég var að berjast fyrir réttindum
mínum og annarra. Yfirmenn fyrir-
tækisins hafa viljað losna við mig út
afþví.“
Hrannar vísar þessari gagnrýni al-
farið á bug.
Nefnd til að klekkja á starfsfólki
Hans Hafsteinsson, fyrrverandi
starfsmaður Alcan, er einn þeirra
starfsmanna sem nýverið var sagt
upp störfum. „Eineltisnefnd Alcan
er notuð til að losna við starfsmenn
sem fyrir einhverra hluta sakir þykja
óþægilegir fyrir fyrirtækið. Þegar
ábending kemur til nefndarinnar á
viðkomandi nánast enga möguleika
á því að losna undan málinu og er
rekinn undantekningarlaust,“ segir
Hans.„Eina alvöru eineltismálið
sem hefur komið fyrir nefndina var
þaggað niður af æðstu yfirmönnum
fyrirtækisins. Nefndin er tól í
höndum yfirmanna til að klekkja á
starfsfólki.“
Við munum
ekki láta draga
okkur út í þessa
. umræðu
Hrannar Pétursson
upplýsingafulltrúi Alcan
Engar skýringar
enýmislegt
gefið ískyn
Gylfi Ingvarsson trúnaðarmaður
starfsmanna Alcan
Eineltisnefnd
notuðtllað
flæma burt
starfsmenn
Hans Hafsteinsson
fyrrverandi
starfsmaöur Alcan
Hrannar ítrekar að nefndin sé
skipuð starfsmönnum af öllum
stigum. „Nefndin tekur til með-
ferðar þau mál sem til hennar berast
og vinnur úr þeim eftir formlegum
farvegi. Hvert og eitt mál er skoðað
og stundum þykir ástæða til að bregð-
ast sérstaklega við.“ Hann segir því
ekkert til í því að nefndin sé notuð til
að klekkja á starfsfólki.
Rithöfundar og bókaútgefendur:
Fagna lækkun virðisaukaskatts
„Rithöfundar og útgefendur hafa
lengi barist fyrir því að fá virðisauka-
skatt á bækur felldan niður,“ segir
Pétur Gunnarsson, rithöfundur og for-
maður Rithöfundasambands Islands.
,Það tókst eftir langa og mikla baráttu
árið 1990. Skatturinn brast svo aftur
á þremur árum síðar sem voru mikil
vonbrigði. Við fögnum því þessari
ákvörðun ríkisstjórnarinnar."
Hluti af tillögum ríkisstjórnar-
innar til lækkunar vöruverðs í land-
inu er að lækka virðisaukaskatt af
vörum sem hafa verið í fjórtán pró-
senta þrepi niður í sjö prósent. Lækk-
Myndi helst
vilja sjá skattinn
fara alveg
Pétur Gunnarsson
formaður
Rithöfundasambandsins
unin tekur meðal annars til bóka,
blaða og timarita. Breytingin tekur
gildi 1. mars á næsta ári.
Pétur segir að hann myndi helst
vilja sjá skattinn fara alveg. „í
flestum samanburðarlöndum er
hann kringum fimm prósent, sums
staðar enginn. Og það er að sjálf-
sögðu takmarkið. Menn mega ekki
gleyma að við erum að skrifa á ein-
hverri fámennustu þjóðtungu í víðri
veröld. Islenski bókamarkaðurinn er
með þeim minnstu i heimi. Úr því að
þjóðir á borð við Þjóðverja og Frakka
telja sig þurfa að standa sérstakan
vörð um sína bókmenningu, hvað þá
um okkur íslendinga? Minni skattur
þýðir ódýrari bækur og að því ber að
stefna."
Félag íslenskra bókaútgefenda
hefur einnig lýst yfir ánægju með
þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar.