blaðið - 13.10.2006, Page 10
GOTT FÓIK McCANN
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006
blaðiö
l:lilJI.M:INU—= SÞ Æ ■ SÚDAN Z 1
Tortímandi á ekki samleið með Bush Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, segist eiga álíka mikla samleið með flokksbróður sínum Ge- orge Bush Bandaríkjaforseta og með Óskarsverðlaun- unum fyrir besta leik í aðalhlutverki. Fjöldi repúblikana reynir að fjarlægjast forsetann í aðdraganda kosninga. Þvingunaraðgerðir yfirvofandi Fulltrúar stórveldanna fimm sem hafa neit- unarvald í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hafa ákveðið að hefja í næstu viku útfærslu þvingunaraðgerða gegn klerkastjórninni í Iran vegna kjarnorkuáætlunar hennar. Aðgerðir nauðsynlegar Alþjóðasamtökin International Crisis Group segja máttlausar tilraunir alþjóðasamfélagsins til að senda friðargæslulið til Darfúr hafi styrkt súdönsk stjórnvöld og að pólitísk lausn hafi mistekist. Samtökin segja nauðsynlegt að alþjóðasamfélagið grípi til þvingana gegn súdönskum stjórnvöldum til að komast hjá harmleik af mannavöldum í héraðinu.
Einkaþotur á Reykjavíkur-
flugvelli Bróðurpartur þeirra
flugvéla sem Flugþjónustan
afgreiðir er einkaþotur. Kröfur
viðskiptavinanna hafa breyst og
vilja þeir nú fá gæðaþjónustu.
Mynd/Sverrir
Símhleranir í ráðuneytum:
Lögreglan sér
um hleranir
„Lögregluyfirvölderuframkvæmd-
araðili allra símhlerana sem viður-
kenndar eru með dómsúrskurði.
Starfsmenn Símans sjá ekki um að
hlera síma heldur er það lögreglan,“
segir Eva Magnúsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans.
{gær lýsti Jón Baldvin Hannibals-
son, fyrrverandi utanríkisráðherra,
því yfir að sími hans hefði verið
hleraður úr húsakynnum Lands-
símans. Háttsettur yfirmaður hjá
lögreglunni í Reykjavík staðfesti
í samtali við Blaðið að lögreglan
hefði á umræddu tímabili aðstoðað
ráðuneyti við að leita eftir hlerun-
arbúnaði. Hann gat ekki staðfest
hvort sími Jóns Baldvins hafi verið
hleraður.
Eva vísar málinu alfarið til lög-
reglunnar. „Síminn hefur ekkert
um símhleranir að segja. Við höfum
engin gögn í okkar fórum sem stað-
festa þessa frásögn," segir Eva.
Launavernd tryggir áframhaldandi tekjur fjölskyldunnar komi til
launamissis vegna fráfalls, sjúkdóma eöa örorku. Auk þess byggir
þú upp viöbótarlífeyrissparnaö sem eykur fjárhagslegt sjálfstæöi
þitt við starfslok. Uppfæröu launareikninginn þinn meö Launavernd.
Komdu viö í næsta útibúi, haföu samband í síma 410 4000 eöa
farðu á landsbanki.is og fáöu nánari upplýsingar.
Lögreglan hlerar Síminn vísar frá sér framkvæmdum símhierana og segir
lögregluna vera framkvæmdaraðila.
Fasteignamarkaðurinn:
Færri íbúðir
seljast
Velta á fasteignamarkaði á
höfuðborgarsvæðinu dróst saman
um sjö milljarða eða 35 prósent
í september miðað við sama
mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í
samantekt Fasteignamats ríkisins.
Þá fækkaði þinglýstum kaup-
samningum vegna fasteigna-
kaupa um 413 milli ára eða um
46 prósent. í fyrra voru þeir 899
talsins en í ár 486.
Ingibjörg Þórðardóttir, varafor-
maður Félags fasteignasala, telur
samdrátt á fasteignamarkaði
vera afleiðingu minnkandi lána-
framboðs. „Þetta er tímabund-
inn samdráttur og ég tel að upp
úr áramótum muni hjólin fara
að snúast á ný.“
Aukin umferð um Reykjavíkurflugvöll:
Sífellt fleiri einkaþotur
■ Allt aö 25 flugvélar á dag Mikið ferjuflug og herflug ■ Vilja meiri þjónustu
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Umsvif Flugþjónustunnar á Reykja-
víkurflugvelli fara sívaxandi. I fyrra
lentu hér tæplega 2000 flugvélar og
gert er ráð fyrir að fjöldinn verði jafn-
vel 2200 í ár. Um er að ræða menn í
ævintýraleit og viðskiptaerindum,
ferjuflug og herflugvélar.
.
u launa
reikninginn þinn
meö Launavernd
„Það lenda hér allt frá þremur og
upp í 25 flugvélar á dag og bróðurpart-
urinn er einkaþotur,” segir Frank
Sands, framkvæmdastjóri Flugþjón-
ustunnar. í mörgum tilfellum er um
að ræða ferjuflug og flug tengt her-
æfingum og hernaðinum í Irak. Hér
er stoppað til að taka eldsneyti og fá
viðhaldsskoðun og hvíld.
„Það er mjög hættulegt að fljúga
yfir Atlantshafið, ekki bara vegna
veðurs heldur einnig vegna þess
hversu vegalengdirnar eru miklar.
Þessa vegna er það mikið öryggis-
atriði að stoppa hér,” leggur Frank
áherslu á.
Einkaþoturnar eru oft á vegum
fyrirtækja en hingað koma einnig
ævintýramenn á eigin flugvélum.
„Svo koma einnig þjóðarleiðtogar og
fyrrverandi leiðtogar í heimsókn og
lenda á Reykjavíkurflugvelli. Menn
hafa komið hingað á eigin þotum
til að skoða Kárahnjúka og gista þá
ekki bara í Reykjavík, heldur einnig
á Egilsstöðum og sumir fljúga einnig
til Akureyrar.”
Frank segir þjónustuna hafa breyst
töluvert frá því sem áður var. „Áður
var fólk að spara og vildi bara lág-
marksþjónustu en nú vilja mörg fyr-
irtæki fá bestu þjónustu sem völ er á.
Þess vegna höfum við aðlagað þjón-
ustuna að óskum viðskiptavinanna.”
—— Landsbankinn I Banki allra landsmanna
Launavernd Landsbankans