blaðið - 13.10.2006, Side 16
blaðið
16 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006
HVAÐ MANSTU?
1. Hver er gítarleikari The Who?
2. Hver var Maria Sktodowska?
3. Hver er hofuðborg Kaliforníu?
4. Til hvers orti Egill Skallagrímsson sína Höfuðlausn?
5. Hvar gat Winston S. Churchill sér fyrst frægð í hernaði?
GENGI GJALDMIÐLA
Svör:
s -P
- O dJ m
• E ^
ffl “ c
c
c= -o ~
3 ca
£§
E -D
o C/5
£ « <
, IV OJ — LJ_I —-1
! “J— M
I i2 o cö iri co
Bandarikjadalur
Sterlingspund
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Evra
KAUP
68,67
127,41
11,54
10,17
9,31
86,05
SALA
68,99
128,03
11,61
10,23
9,36
86,53
Sameinuðu þjóðirnar og Norður-Kórea:
Vaxandi spenna Suöurkor-
eskir hermenn viö einskis-
mannslandið á landamærun
um á Kóreuskaga
Bandaríkjamenn
vilja þvinganir
Norður-Kóreumenn hótuðu í
gær að grípa til harðra aðgerða
gegn Japönum taki fyrirhugaðar
viðskiptaþvinganir þeirra gegn
Norður-Kóreu gildi. Þvinganirnar
eiga að taka gildi í dag og einnig
er búist við að öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna greiði atkvæði
um tillögur Bandaríkjamanna
um þvingunaraðgerðir gegn
stjórnvöldum Pjongjang vegna
tilraunanna.
Þrátt fyrir að búist sé við að
öryggisráðið greiði atkvæði um
tillögur Bandaríkjamanna benti
margt til þess í gær að Kínverjar,
sem hafa neitunarvald, væru tví-
stígandi í afstöðu sinni til þeirra.
Tillögur Bandaríkjamanna eru
meðal annars byggðar á sjöunda
kafla stofnsáttmála Sameinuðu
þjóðanna sem veitir hernaðarað-
gerðum lögmæti grípi Norður-Kór-
eumenn til aðgerða sem ógna friði
og stöðugleika í heiminum. Kín-
verjar hafa nú þegar útilokað allar
hernaðaraðgerðir og vilja forðast
allar aðgerðir sem gætu leitt til
hruns stjórnvalda í Pjongjang og
meiri óstöðugleika á Kóreuskaga.
f Atvinna
í nettó Salavegi
VERSLUNARSTJÓRI
Laust er til umsóknar starf verslunarstjóra í nettó Salavegi
Ábyrgðarsvið er s^órnun og ábyrgð á daglegum rekstri.
Menntun og hæfniskröfur:
• Diplomanám í verslunarstjórn, stúdentspróf eða
verslunarmenntun æskileg eða sambærileg menntun.
• Leitað er að traustum og ábyrgum einstaklingi.
Umsóknir skulu sendast á skuli@samkaup.is
fyrir 24. október næstkomandi.
nettö
******
mriniwtaswtW*
Gúmmívinnustofan
SP dekk
POlAff
VETRARDEKK
JEPPLINGADEKK
POLAR RAFGEYMAR
CÚM
Skipholti 35
Simi: 553 10
www.gummivi
Opið: Mán - fös
■ Hermönnum ískalt ■ Upplifir sig ekki eins og hermann í stríði
Finnst ekki eins og hún sé í stríði Hermaðurinn Sara Sanches á tvö börn
heima og upplifir sig ekki eins og hún sé í stríði við hryöjuverkamenn
Hermönnum ískalt Sumir hermenn voru byrjaðirað skjálfa afkulda en héidu
heiðursvörð allan tímann.
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
,Nei, Gorbatsjov verður ekki boðið
um borð,“ segir George Seagle, skip-
herra á herskipinu USS Wasp, sem
lagði að Skarfabakka síðdegis í gær.
Flogið var með blaðamenn á skipið
með herþyrlu og síðar var þar hald-
inn blaðamannafundur.
Skipið er að koma frá Gíbralt-
arsundi þar sem skipverjar veittu
hjálparaðstoð í Líbanon. Það
verður hér í fjóra daga en á þeim
tíma verða haldnar æfingar með
Landhelgisgæslunni og lögreglu.
Mikhail Gorbatsjov er einnig
á landinu vegna 20 ára afmælis
Höfðafundarins en Seagle segir
hlæjandi að það sé tilviljun að þeir
séu á sama tíma á íslandi.
„Fáið ykkur kökur, þær eru góm-
sætar,“ segir Seagle ítrekað á blaða-
mannafundinum en þar var boðið
upp á Starbucks-kaffi að hætti
Bandaríkjamanna og „sjóbakaðar“
muffins-kökur en ekki heimabak-
aðar eins og Mike Conran aðstoðar-
maður Seagle orðar það.
Skipið er gríðarlega stórt að innan.
1300 manns búa þar en hægt er að
koma 1600 manns fyrir í því. 250
konur eru um borð og samkvæmt
Söru Sanches, hermanni um borð,
mega þær vera með strákunum ef
þær vilja. Sjálf á hún mann heima.
„Þegar við erum ekki að vinna þá
förum við í blak í flugskýlinu,“ segir
Sara Sanches sem er 27 ára móðir
frá Indiana. Hún segist sakna fjöl-
skyldu sinnar en hún hefur verið
úti á hafi í 50 daga samfleytt. Hún
segir að áhöfnin verði að annarri
fjölskyldu á sjónum enda um lítið
samfélag að ræða.
„Mér finnst ekki eins og ég sé
í stríði,“ segir Sara og bendir á að
átökin virðist alltaf fjarri þó hún
sé rétt hjá átakasvæðum. Hún seg-
ist ekki hugsa mikið um það, lífið
gengur bara sinn vanagang um
borð.
Þegar skipið nálgast Reykjavík
fara allir hermennirnir upp á dekk.
Þeir taka sér stöðu við bríkina allt í
kringum skipið.
„Við stöndum alltaf heiðursvörð
þegar við komum til nýrra landa,“
segir Seagle. Hermennirnir eru
greinilega ekki vanir íslenskri
veðráttu því eftir nokkrar mínútur
skjálfa nokkrir af kulda en þeir
standa samt kyrrir eins og styttur
við bríkina.
Sumir hafa dregið ermarnar yfir
hendurnar til þess að hlífa þeim
fyrir kuldanum, aðrir voru forsjálir
og eru í vettlingum.