blaðið - 13.10.2006, Side 17
blaðið
FÖSTUDAGUR 13.OKTÓBER2006 17
Peta:
Mótmæla
kakkalakkaáti
Dýraverndunarsamtökin
Peta krefjast þess að fyrirtækið
Six Flags aflýsi fyrirhugaðri
kakkalakkaátskeppni sem á að
fara fram í skemmtigörðum sem
það rekur víðsvegar í Bandaríkj-
unum. Fyrirtækið ætlar að halda
keppnina í tilefni af hrekkjavöku
síðar í mánuðinum og fær sá
sem tekst að slá heimsmetið í
kakkalakkaáti vegleg verðlaun.
í tengslum við keppnina fá allir
þeir gestir skemmtigarðanna
sem láta ofan í sig einn kakka-
lakka við innganginn frítt inn.
Talsmaður Peta segir að skor-
dýr eigi alls ekki skilið að vera
étin lifandi, sérstaklega ekki í
þágu skrýtinnar markaðsbrellu
stórfyrirtækis sem vill auka að-
sókn að skemmtigörðum.
Sjávarútvegur:
Meiri afli
en í fyrra
Aflinn í septembermánuði var
86.572 tonn sem er um 22 þúsund
tonnum meiri afli en á sama
tíma í fyrra. Samkvæmt tölum
frá Fiskistofu var heildarafli árs-
ins 2006 í lok síðasta mánaðar
kominn í 1,1 milljón tonn, sem er
fjórðungi minni afli en á sama
tíma í fyrra. Samdráttur í afla
milli ára stafar fyrst og fremst af
minni loðnuafla í ár.
Lögregla:
Bjórþjófar
iörast
Lögreglan í Reykjavík hafði
hendur í hári fjögurra ungra
pilta sem reyndu að stela bjór-
kút frá knæpu einni í miðbæ
Reykjavíkur á miðvikudaginn.
Lögreglan stöðvaði för þeirra
aðeins nokkrum mínútum eftir
að stuldurinn var tilkynntur.
Sá yngsti piltanna er fimmtán
ára en sá elsti sautján ára. Pilt-
arnir sáu þó að sér varðandi
stuldinn og heimtuðu að fá að
biðja kráareiganda afsökunar á
framferðinu.
Skoðunarferð Landsvirkjunar:
Opið hús á
Kárahnjúkum
„Um helgina bjóðum við öllum,
háum sem lágum, í skoðunarferð
um Kárahnjúkavirkjun. Venjulega
er þetta lokað vinnusvæði en við
munum leggja niður vinnu til þess
að fólk geti skoðað sig um á svæð-
inu,“ segir Sólveig Dagmar Berg-
steinsdóttir.aðstoðarupplýsingafull-
trúi Kárahnjúkavirkjunar.
Öllum ibúum Jökuldals, neðan
við stífluna, verður boðið í skoðun-
arferð um virkjunarsvæðið þar sem
fram fer ítarleg kynning á starfsem-
inni. Aðspurð segir Sólveig Dagmar
heimsóknum í Végarð hafa fjölgað
gífurlega á þessu ári.
„Þónokkuð margir íbúar svæð-
isins hafa aldrei skoðað virkjunar-
svæðið ofan í kjölinn. Það eru allir
velkomnir um helgina, börn á öllum
aldri,“ segir Sólveig Dagmar.
Nánari upplýsingar fást í Végarði,
upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar
um Kárahnjúkavirkjun.
Opið hús Landsvirkjunar Landsvirkjun býður ibúum Jökuldals í skoöun-
arferð um virkjunarsvæöi Kárahnjúka um helgina. Á meöan veröur vinna á
svæðinu lögö niður.