blaðið - 13.10.2006, Qupperneq 19
blaðið
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 19
Lagt við hlustir í
ráðuneyti dómsmála
Uppljóstranir um símhleranir yf-
irvalda hér á landi hafa vakið miklu
fleiri spurningar en tekist hefur að
svara. Reyndar telur Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra enga sér-
staka þörf á því að fara ofan í saum-
ana á kerfisbundnum pólitískum
hlerunum sem stundaðar voru
um árabil. Það er „sagnfræðilegt
úrlausnarefni“ að mati yfirmanns
dóms- og lögreglumála á Islandi. En
um leið og ráðherrann réttir sagn-
fræðingum keflið ver hann með
öllum tiltækum ráðum framgöngu
ráðherra Sjálfstæðisflokksins í
þessum efnum á síðustu öld.
Er enn verið að hlusta?
Uppi á íslandi þarf ekki að opna
neina skjalaskápa að því er virð-
ist. Fyrrverandi alþingismaður og
ritstjóri Þjóðviljans fær ekki að sjá
gögnin sem annar sagnfræðingur
fékk að rýna í. Nú síðast upplýsir
fyrrverandi utanríkisráðherra lands-
ins, Jón Baldvin Hannibalsson, að
hann hafi fengið staðfest að sími
hans í ráðuneytinu hafi verið hler-
aður í upphafi tíunda áratugarins.
Allt er þetta með miklum ólíkindum
og í raun óskiljanlegt að núverandi
dómsmálaráðherra skuli leyfa sér
að tala um „sagnfræðilegt úrlausn-
arefni“ þegar spurningunni um það
hvort hlerunum hafi einhvern tíma
verið hætt er enn ósvarað.
Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnár í
Suðvesturkjördæmi.
Björn segir
að aldrei hafi
verið hlerað án
heimildar.
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
Hið„saknæma athæfi"
Björn segir að aldrei hafi verið
hlerað án heimildar. Hvernig getur
ráðherrann fullyrt það? Hann segir
að hópar í þjóðfélaginu hafi viljað
bylta stjórnkerfinu og hrifsa til sín
völd með ofbeldi. Hvaða hópar voru
það? Voru það róttækir námsmenn
að mótmæla ráðherrafundi NATO
árið 1968? 1 umræðum á Alþingi líkti
dómsmálaráðherra símhlerunum
á fyrri tíð við það þegar nú til dags
er hlerað til þess að hafa hendur í
hári grunaðra fíkniefnasmyglara.
Ég verð að viðurkenna að þá hætti
ég að skilja ráðherrann. Var það svo
að menn með pólitískar skoðanir til
vinstri, oft róttækar, sem leyfðu sér
að gagnrýna ríkjandi valdhafa opin-
berlega voru grunaðir um saknæmt
athæfi? Hvert var hið saknæma at-
hæfi þeirra? Er það svona sem „for-
virkar rannsóknaraðferðir“ virka í
raun? Ég fæ ekki betur séð en að hér
sé hugsanalöggan komin í öllu sínu
veldi.
Pólitískt eftirlit
Ekki virðist það hafa nægt mönn-
unum sem skáru úr um það hvort
hlera ætti síma tiltekinna einstak-
linga að nýta upplýsingarnar sem
þannig fengust til þess að klekkja
á pólitískum andstæðingum hér
heima. Nei, menn komu upplýs-
ingum í hendur leyniþjónustu ann-
ars ríkis, Bandaríkjanna. Þar var
og er haldinn ítarlegur fæll um pól-
itískar skoðanir manna. Hið pólit-
íska eftirlit var líka notað til þess að
flæma menn frá störfum. í Vestur-
Þýskalandi viðgekkst hið illræmda
„Berufsverbot“ á tímum kalda stríðs-
ins. Það þýddi að hver sá sem ein-
hver tengsl hafði við Austur-Þýska-
land, jafnvel fjölskyldutengsl, gat átt
það á hættu að vera vikið úr starfi.
Sameining Þýskalands hefur knúið
Þjóðverja til þess að horfast í augu
við fortíðina bæði austan og vestan
megin járntjaldsins gamla. Þar var
fólki til dæmis leyft að sjá skjölin
um sig í tröllauknu safni STASE
1 kr. aðra leiðina
(flugvallarskattur og tryggingargjald)
Þetta einstaka tilboðsfargjald
gildirtil allra áfangastaða
Flugfélags (slands innanlands
er fyrir börn 2-11 ára í fylgd
með fullorðnum og í sömu bókun
-> gildir 16. okt. - 6. nóv.
-> býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu www.flugfelag.is
bókanlegt frá 13. október
www.flugfelag.is 570 3030
FLUGFELAG ISLANDS