blaðið - 13.10.2006, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006
blaAió
Rennibrautir i Tate
í vikunni opnaöi myndlistarmaðurinn Carsten Höller merkilega sýningu í túrbínusal
Tate Modern-safnsins í Lundúnum. Hann hefur breytt salnum í leikvöll og byggt þar
nokkrar risastórar rennibrautir. Islendingar á faraldsfæti ættu því aö gera sér ferð í
Tate og fara eina salíbunu í boði Höllers.
^StB>
ÞJÓÐLEIKHÍiSIÐ
Pamuk hlýtur
Nóbelsverðlaunin
1 gær var tilkynnt að tyrkneski
rithöfundurinn Orhan Pamuk
hlyti Nóbelsverðlaunin í bók-
menntum þetta árið. Pamuk hefur
verið töluvert í sviðsljósinu undan-
farin misseri en fyrr á þessu ári
var hann ákærður fyrir að hafa
móðgað tyrkneska þjóðarvitund
með orðum sínum um fjöldamorð
á Armenum á árum fyrri heims-
styrjaldarinnar. í kjölfar öflugra
mótmæla á alþjóðavettvangi voru
ákærurnar á hendur honum felld-
ar niður en hann átti yfir höfði
sér nokkurra ára fangelsi. Bækur
Pamuks hafa vakið mikla athygli
um heim allan en honum þyk-
ir takast einkar vel upp í því að
kryfja tyrkneska sjálfsmynd sam-
timans og þær miklu breytingar
sem landið hefur gengið í gegn-
um á öldinni sem leið. Pamuk er
fimmtíu og fjögurra ára og hefur
gefið út átta skáldsögur.
Anfhony Beevor
Saga
aldar
20.
krufin
Creski sagnfræðing-
urinn Anthony Bee-
vor lagði leið sína
hingað til lands
í vikunni í þeim
tilgangi að kynna íslenska þýð-
ingu á einni þekktustu bók
sinni, Berlin - The Downfall
1945, sem bókaútgáfan Hólar
gefur út. Beevor hélt fyrirlestur
á vegum Sagnfræðingafélags
íslands í hátíðarsal Háskóla Is-
lands undir yfirskriftinni „Sta-
língrad og Berlín. Sagnfræði-
rannsóknir í Rússlandi.“ Þar
var margt um manninn enda
forvitnilegt að hlýða á hvað
Beevor hefur að segja um þessa
atburði, en hann er einn vinsæl-
asti sagnfræðingur samtímans
og hefur selt verk sín um sögu
tuttugustu aldarinnar í millj-
ónum eintaka. Blaðið leitaði til
þeirra Þórhalls Heimssonar og
Einars Kárasonar sem sátu á
rauðbólstruðum stólum hátíð-
arsalarins á þriðjudag og kann-
aði hvernig þeim líkaði það sem
Anthony Beevor hafði fram að
færa.
Eixiar Kárason, rithöfixndur
Með blik í auga
Fyrir nokkrum árum las ég bók Beevors
um Stalíngrad og einnig bókina um fall
Berlínar um leið og hún kom út á ensku.
Ég er mikill áhugamaður um tuttugustu
aldar sögu og varð mjög heillaður af
þessum verkum hans. Mér þótti því mik-
ill hvalreki að fá hann hingað til lands.
Hann var kannski ekki að segja mjög
margt í fyrirlestrinum sem ekki stendur
í bókunum en það var gaman að heyra
hann lýsa því hvernig honum gekk að
komast yfir þessar stórmerkilegu heim-
ildir sínar, ekki síst í gömlu, sovésku
skjalasöfnunum. Það hafa auðvitað mjög margir fengist við
þessa sögu en Beevor hefur verið einstaklega glúrinn við að
komast yfir nýjar heimildir sem opnuðust við lok kalda stríðsins.
Svo er hann frábær sögumaður og setur söguna þannig fram
að hún verður auðlæsileg og skemmtileg. Það háir mörgum
sagnfræðingum hversu erfitt þeir eiga með að koma efninu
frá sér og þó svo lögð hafi verið mikil vinna í rannsóknir þá ná
þeir ekki tökum á lesandanum. Beevor hefur alla kosti sem
prýða góðan höfund og það sást vel á fyrirlestrinum. Hann hélt
athygli áheyrenda allan tímann og hafði þetta eftirsóknarverða
blik í auga sem prýðir góða fyrirlesara.
Pórhallur Heimisson, prestur:
Skeleggur og skemmtilegur
BlaðMrikki
...
Ég hef lengi verið mikill aðdáandi Beevors og hef
lesið öll hans verk. Hann er mjög vinsæll og víð-
lesinn og fyrir þessum vinsældum eru ákveðnar
ástæður. Textinn hans er lipur og hann er góður
sögumaður. Honum tekst líka að setja flókna
atburðarás fram á fremur einfaldan hátt. Maður
skilur vel þegar hann lýsir átökum, víglínum, her-
deildum og pólitíkinni sem liggur þessu öllu að
baki. Með því að vitna í persónulegar heimildir
Ijær hann verkum sínum skemmtilegan blæ og
ég held að það sé stór ástæða fyrir þessum
vinsældum. Hann notar bréf og dagbækur mikið,
og þá ekki bara skjöl valdamanna heldur einnig venjulegs fólks sem
þurfti oft og tíðum að ganga í gegnum hryllilega atburði.
Því var mjög gaman að fá tækifæri til þess að hlýða á fyrirlestur Bee-
vors og sjá hann í eigin persónu. Hann kom sér beint að efninu, var
skeleggur og skemmtilegur án þess þó að missa sjónar á alvöru atburð-
anna sem hann er að fást við. Ég var sérstaklega ánægður með hversu
vel honum tókst í lokin að tengja efnið
samtíma okkar. Áheyrendur sátu ekki
eftir í lausu lofti heldur fengu skýra
mynd af því hvernig löngu liðnir at-
burðir tengjast þeirri heimsmynd sem
við búum við í dag.
pi| 1—1 pur og u vetíl llarjal lisí ckar - Síðbuxur st: 36-52 1 m M nýtt kortatímabil 1 nnn við Laugalæk• sími 553 3755 1