blaðið - 13.10.2006, Síða 33
blaðið
FðSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2006 33
Ferskar fíkjur
Fátt er Ijúffengara en ferskar fikjur en
nu er besti timinn til aö nálgast þær í
verslunum. Þær eru fullkomnar í sæta
eftirrétti, dúnmjúkar tertur eða bara
einar og sér.
Saðsamar súpur
Haustið er tími súpunnar og fátt
yndislegra á svölu kvöldi en sjóð-
andi heit og saðsöm súpa, stút-
full af vítamínum. Hér á eftir fara
þrjár uppskriftir að prýðilegum
súpum sem allar eru sérlega
bragðgóðar þó ólíkar séu.
Egypsk grænmetissúpa
Á vefsíðunni www.madurlifandi.is
má finna margar prýðilegar upp-
skriftir að matarmiklum súpum
sem flestar eru
ættaðar frá Helgu
Mogensen. Þessi
egypsk-ættaða
súpa er tilvalin
þegar elda skal
bragðgóða súpu
fyrir alla fjöskyld-
una.
1 bolli smátt skorinn laukur
2 hvítlauksgeirar, marðir
1/4 bolli ólífuolía
1 tsk broddkúmen
1 1/2 tsk paprika
1/4 tsk cayennapipar
2 meðalstórar gulrætur skornar
í munnbita
1 bolli smátt skornir tómatar
3 1/2 bolli grænmetissoð
2 bollar kjúklingabaunir, útvatn-
aðar og soðnar, eða 1 dós af
baunum
1/4 bolli söxuð steinselja
3 msk sítrónusafi
geo-salt (lífrænt) og grófur pipar
eftir smekk
skreytt með mintulaufum
Steikið laukinn og hvítlauk
þar til laukurinn er mjúkur,
bætið saman
við kryddunum,
steikið í 5 mínútur.
Bætið við tóm-
ötum, grænmet-
issoði og öðru
grænmeti og sjóðið
í 15 mínútur. Berið
fram með góðu brauði og heima-
löguðu hummus.
Tómatsúpa með pasta
ólífuolía
1 laukur, saxaður
6 hvítlauksrif, söxuð
1 kg tómatar, þroskaðir en þó
fremur þéttir, skornir [ fjórðunga
3 msk mintulauf, söxuð
1 tsk sykur
pipar, nýmalaður
salt
700 ml grænmetissoð, kjúklinga-
soð eða vatn
150 g pasta
Hitið ofninn í 200 gráður.
Helmingurinn af olíunni hit-
aður á pönnu og laukurinn
látinn krauma á meðalhita
(smástund. Þá er hvítlauk-
urinn settur á pönnuna
og síðan tómatar,
mintulauf, sykur, pipar
og salt. Hitað í
gegn, hellt í eldfast
fat, sett í ofninn og
bakað í um 40 mín-
útur. Ef tómatarnir
ætla að dökkna
um of er álpappír
breiddur yfir. Fatið
er svo tekið út og
tómatarnir látnir kólna
í litla stund en síðan
maukaðir í matvinnslu-
vél. Maukið sett í pott
ásamt afganginum af
olíunni og síðan er soðinu
hrært saman við og hitað
að suðu. Pastað sett út í
og súpan látin sjóða þar til
það er rétt meyrt. Þá er hún
smökkuð til og hellt í skál.
Gagnlegar vefsíður í eldhúsið
Internetið gagnast vel
þegar finna skal góðar upp-
skriftir og ráð í eldhúsið.
Hér á eftir fylgja nokkrar
slóðir sem gott getur verið
að kíkja á þegar eldhúsgyðj-
an blossar upp i okkur.
http://www.italianfoodforever.com
Ítalía er mörgum ofarlega í huga þegar
mat ber á góma og hér má finna margar
prýðilegar uppskriftir að öllum mögu-
legum réttum. Hérfinna bæði faglærðir
kokkar og áhugamenn um matargerð
ýmislegt við sitt hæfi.
http://www.marthastewart.com
Marta kerlingin hefur marga fjöruna
sopið í gegnum tíðina og þó fjármálin
séu ekki á hreinu þá kann hún ýmislegt
fyrir sér í eldhúsinu. Á vefsíðu hennar
má finna ótal margt forvitinilegt fyrir
þá sem hafa áhuga á matargerð og
heimilishaldi.
http://food.sify.com
Fyrir þá sem eru hrifnir af indverskum
mat er þessi síða tilvalin. Þarna úir og
grúir af einföldum uppskriftum sem rífa
í bragðlaukana.
/\nsae\u
ársh^ðarpak^
fundi *. faðst* ^
ekki missa af okkar landsfræga og margrómaða jólahlaðborði.
Pantið tímanlega til að tryggja ykkur borð. Síðast komust færri að en vildu.
/tfeins
noWcurkvo\d
laus
Veislur 5
oc
Árshátíðir '<
Jólahlaðborð Zj
<
Brúðkaup cc.
3
Fermingar ©
Vinnustaðafundir lo
Á föstudags- og laugardagskvöldum er innifalið í verði;
Jólahlaðborð, dansleikur, hljómsveit leikur fyrir dansi,
rútuferðir fram og til baka.
Sunnudagskvöldin eru fjölskyldukvöldin okkar, þá kemur
jólasveinninn í heimsókn með glaðning handa börnunum,
frítt fyrir 12 ára og yngri í fylgd með foreldrum.
4 glæsilegir saiir - allt að 350 manns
Tilvalið fyrir starfsmannahópa, vinahópa, klúbba,
félagasamtök og alla hópa sem vilja hafa gaman og láta
dekra við sig f mat og drykk .
Hópefli i£i
Ráðstefnur o.fl.
LU
>
Uppl og bokanir I srma SÍUðasflÓÍUUl í Hva CufÖfum
567 2020 www. skidaskali.is - Netf. skidaskali@skidaskali.is