blaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006
blaöið
The Stooges taka upp
Iggy Pop og félagar í The Stooges eru byrjaðir að taka upp nýja plötu ásamt
upptökustjóranum Steve Albini. 33 ár eru liðin frá síðustu breiðskífu sveit-
arinnar, en Raw Power kom út árið 1973. „Ástríðan og vandamálin eru enn
til staðar," sagði Iggy Pop um samstarf sitt við gítarleikarann Ron Asheton.
„Ég er ennþá sá athyglissjúki, alveg eins og í gamla daga.“
„Eg held aö ég yröi betri forseti en George -
W. Bush. Mann og Dick Cheney hafa oftar
farið í fangelsi en ég og ég notaði her-
óín, hvaö segir þaö þér?“
Dave Mustaine
Kanadíska hljóm-
sveitin Wolf Para-
de er ein magnað-
asta sveit Iceland
Airwaves-hátíðar-
innar í ár. Sveitin
gaf út sína fyrstu
breiðskífu, Apologies to Queen
Mary, í fyrra. Platan sló í gegn hjá
gagnrýnendum og tónlistargrúsk-
urum og rataði inn á ófáa lista yfir
bestu plötur ársins 2005.
Blaðið hafði uppi á w, söngvara og
gítarleikara sveitarinnar, og ræddi
við hann um tónlist, ást sveitarinn-
ar á áfengi og Island.
„Við höfum nýlokið við að setja
upp okkar eigið hljóðver í Montréal
í Kanada og erum að fara að hefja
upptökur á nýrri plötu,“ segir Dan
aðspurður um hvað hljómsveitin
Wolf Parade sé að gera þessa dag-
ana. Sveitin hyggst sjálf stjórna
upptökum á næstu plötu en það var
enginn annar en Isaac Brock, forsp-
rakki Modest Mouse, sem stjórnaði
upptökum síðast. „Við skemmtum
okkur vel við upptökur á síðustu
plötu en í þetta skiptið viljum við
mun frekar gera þetta sjálfir,“ út-
skýrir Dan.
Voruð þið ekki ánægðir með út-
komuna síðast?
„Jú, við vorum ánægðir, en í þetta
skipti finnst okkur við geta gert bet-
ur.“
Dan segir upptökur hefjast í nóv-
ember, fljótlega eftir að þeir koma
heim frá Islandi. Platan verður, eins
og sú síðasta, gefin út af hinni forn-
frægu Sub Pop-útgáfu.
Finnst gaman að drekka
Aðspurður hvort Wolf Parade fari
alla leið í líferninu sem kennt er við
rokk og ról segist Dan vera á báðum
áttum með það.
„Okkur finnst gaman að drekka.“
segir Dan og hlær. „Mér finnst það
allavega gott.“ Ég gauka að honum
að Island sé þekkt fyrir að taka vel
á móti fólki sem finnst sopinn góð-
ur. Hann kveðst hafa heyrt af því og
segist hlakka mikið til íslandsferð-
arinnar. „Ég ætla að vera á Islandi
í viku eftir að hátíðinni lýkur, mig
hefur alltaf langað til að heimsækja
landið.“
Hvað cetlarðu að skoða á
íslandi?
„Ég veit það ekki. Ég ætla að reyna
Iceland Airwaves-hátíðin hefst
næstkomandi miðvikudag með
pomp og prakt á öllum helstu tón-
leikastöðum borgarinnar. Tímaritið
Grapevine sá um útgáfu dagblaðs til-
einkaða hátíðinni í fyrra í samstarfi
við Hr. Örlyg og Icelandair og verð-
ur leikurinn endurtekinn í ár.
„Þetta gekk rosalega vel í fyrra,“
segir JÓn Trausti, Jóndi, hjá Grap-
vine. „Það var náttúrlega brjálað
að gera í þessu, en 50 manns komu
að útgáfunni þegar mest var.“ Jóndi
segir stefnuna vera að fjalla um alla
atburði hátíðarinnar.
Reyndir blaðamenn frá heims-
þekktum tímaritum á borð við
Rolling Stone, New York Magazine,
NME og The Onion munu leggja úg-
áfunni lið með skrifum sínum en
Jóndi segir tiltölulega auðvelt að fá
blaðamennina til starfa. „Það er allt-
af lúmskur áhugi fyrir íslandi. Við
hringjum bara í þá og bjóðum þeim
til íslands í skiptum fyrir að skrifa í
Grapevine um hátíðina.“
Airwaves-útgáfa Grapevine
kemur út helstu daga hátið-
arinnar, föstudag, laugardag
og sunnudag. 1 bland við tón-
leikaumfjallanir verða fróð-
legar greinar og viðtöl við
hljómsveitirnar sem fram
koma. „Þetta er gjörningur
með mikinn metnað. En
þetta kemur sér vel fyrir tón-
leikagesti og ekki síst hljóm-
sveitirnar," segir Jóndi að
lokum.
Gjörningur með
mikinn metnað
Hliómsveitin Wolf Parade kemur fram á Airwaves
drekka
bjór
að sjá allt ísland á einni viku, ég og
kærastan mín ætlum að leigja okk-
ur jeppa og vonandi keyra hringinn.
Við ætlum þó ekki yfir hálendið - ég
las um daginn að það væri bara eyði-
mörk og enginn byggi þar.“
Bjórverðið áhyggjuefni
Ertu spenntur fyrir Iceland Air-
waves?
„Já, mjög svo. Ég hef reyndar verið
svo upptekinn upp á síðkastið að ég
hef ekki haft tíma til að fletta upp
og hlusta á íslensku hljómsveitirnar
eins og ég ætlaði að gera. Ég veit ekki
alveg hvaða tónleika ég á að fara á.
Ég veit reyndar að Einar Örn, gamli
Sykurmolinn, er með hljómsveitina
sína á hátíðinni. Ég ætla að sjá hann
og fleiri íslenskar hljómsveitir.“ Dan
ætlar ekki að eyða allri helginni á
tónleikum og hyggst skoða Reykja-
vík. „Ég heyrði að allt sé mjög dýrt í
Reykjavík," segir Dan áhyggjufullur
og spyr hvað bjórinn kosti. Ég segi
SKILGREINING Á VALKVÍÐA:
ICELAND AIRWAVES. YFIR 180 GIGG.
Farðu á www.icelandair.is/airwaves, halaðu niður podcast og hlustaðu á leiðsögn
þriggja tónlistarmanna um tónlistarhátíðina. Leyfðu Bóasi úr Reykjavíkl, Mr. Silla og
Úlfi úr Apparat Organ Quartet að leiða þig um hátíðina. Þá verður valið kannski auðveldara.
KVl £&f : Farðu á www.icelandair.is/airwaves fyrir auðveldara líf
■ , r lcelandair er aðal styrktaraðíli Airwavei tóhlistarhátíðarinnar.