blaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 43
blaöið
Rokktóbeerfest á Gauknum
Hljómsveitirnar Leaves, Ske, Wulfgang, Dikta,
Telepathetics og Múgsefjun koma fram á Gaukn-
um í kvöld. Húsið verður opnað klukkan
20 en tónleikarnir hefjast stundvíslega
klukkan 22.
FÖSTUDAGUR
■ Útgáfuteiti Good Shit by Jack Shit
Útgáfu mixteipsins Good Shit by Jack Shit verður fagnað á
Barnum í kvöld. Jack Shit er betur þekktur sem Dj Margeir.
Jón Atli úr Hairdoctor og Lauren Flax frá New York þeyta
skífum. Mixteipið fæst gefins á meðan birgðir endast. Fjörið
hefst klukkan 22, fritt inn og veigar i boði.
honum að á bar gæti hann lent í að
borga 9 til ío bandaríska dollara fyr-
ir einn stóran. „Andskotinn!“ segir
Dan, augljóslega brugðið. Ég pakka
í vörn fyrir íslensku þjóðina og segi
að hann geti sloppið mun betur ef
hann kaupir bjórinn í þar til gerðum
vínbúðum. „Allt í lagi, það er gott.“
svarar Dan.
Áhugi Dans á áfengi vekur upp
forvitni mína og ég spyr hann hvort
Kanadabúar séu drykkfelld þjóð.
„Já, sérstaklega á veturna. Kuldinn
í Montréal er svakalegur og maður
fer þess vegna ekkert út. Eitthvað
verður maður að gera. Áfengið frýs
ekki svo maður verður að fylla sig af
því svo maður breytist ekki í frostp-
inna.“
Gengur betur og betur
Dan segir síðasta ár hafa verið
virkilega gott fyrir Wolf Parade.
„Tónleikarnir verða sífellt betri. Það
besta við velgengnina er að fá að ferð-
ast eins og við gerum. Enginn af okk-
ur hefur haft mikið af peningum á
milli handanna i gegnum tíðina, við
erum ekki frá ríkum fjölskyldum,
svo að ferðalög með hljómsveit eru
forréttindi. Ég hefði aldrei átt mögu-
leika á að koma til íslands eða ann-
arra landa í Evrópu án hljómsveitar-
innar.“
Eru tónleikarnir ykkar alltaf að
verða betur sóttir?
„Já, tvímælalaust. Við vorum til
dæmis að spila í Vancouver um dag-
inn og vorum komnir með 40 til 50
manns upp á svið í lok tónleikanna.
Við spiluðum og fólkið skemmti sér
þar til staðnum var lokað. Ég hef líka
tekið eftir því að fleiri háskólakrakk-
ar eru farnir að mæta á tónleika með
okkur, áður mættu bara Pitchfork-
krakkar,“ segir Dan. Pitchfork er ein
virtasta vefsíða tónlistargrúskara í
dag en Wolf Parade fékk virkilega
góða dóma á síðunni fyrir plötu sína
i fyrra. „Pitchfork-krakkar eru yfir-
leitt með töff gleraugu og skrifa um
tónleikana á bloggið sitt,“ bætir Dan
hlæjandivið.
Dan segist hlakka til að hitta Is-
lendinga, en þegar ég spyr hann
hverju hann vilji koma á framfæri til
íslensku þjóðarinnar kemur drykk-
felldi Kanadabúinn upp í kauða: „Ég
get lofað því að við munum... drekka
bjór. Við skálum!“
atli@bladid.net
Hljómsveitin Dr. Spock er á
leiðinni í hljóðver um helgina
þar sem sveitin
hyggst taka upp
nýtt efni. Lögunum
munu þeir dreifa
til bransafólks á
lceland Airwaves-
hátíðinni en þeir stefna einnig
á að láta lögin fylgja breiðskífu
sinni, Dr. Phil, yfir jólin. Alls mun
sveitin taka upp 5 lög og góður
möguleiki er að flest þeirra rati
með jólaútgáfu Dr. Phil. Þá er Dr.
Spock á leiðinni til Danmerkur
þar sem sveitin hyggst spila fyrir
brottflutta Islendinga og Dani
sem kunna að meta brjálaðan
rokkbræðing Spocksins.
Gaukur á Stöng hefur verið
opnaður tímabundið. Pessa
dagana fer þar fram Rokktó-
beer-hátíð XFM. í næstu viku
tekur svo Airwaves-hátíðin við
en eftir hana er framtíð Gauks-
ins óráðin, tónlistaráhuga-
mönnum til mikillar mæðu.
H
Ameríka númer eitt!
Sam’s Town er önnur plata Las
Vegas-popprokkaranna í The Killers.
Breski hljómurinn, með tilheyrandi
hljóðgervlalátum sem einkenndu
fyrr plötu sveitarinnar, Hot Fuss,
hefur að mestu fengið að víkja fyrir
amerískum Bruce Springsteen-
áhrifum.
í staðinn fyrir að syngja um
stelpur og brostin hjörtu syngur
Brandon Flowers um þjóðveginn,
guð og djöfullinn. Ameríka númer
eitt! The Killers hafa ekki glatað
hæfileikanum til að semja gott
popp. Platan er stútfull af fínustu
smellum eins og titillaginu Sam’s
Town, smáskífulaginu When You
Were Young, Read My Mind og
For Reasons Unknown, sem minnir
óneitanlega á gamla stíl sveitarinnar.
Ending plötunnar mætti þó vera
meiri, lögin eru fæst nógu sterk til
að þola ítrekaða hlustun. Frágangur
plötunnar er virkilega skemmtilegur.
Hönnun umslags og útlit er til að
mynda virkilega vel heppnað og að
láta plötuna byrja og enda á píanó-
stefi og samsöng sveitarinnar styrkir
heildina enn frekar. Að losa sig við
breska hljóminn var skref í rétta átt
fyrir sveitina, ekkert er leiðinlegra
en stöðnuð popphljómsveit.
atli@bladid.net
The Killers
Sam's Town
Stútfull af
smellum
wmm
Endist illa
★★★★