blaðið - 17.11.2006, Síða 6

blaðið - 17.11.2006, Síða 6
Opnunartími: Virka daga 16-22 Um helgar 12 - 22 Hækkaðu þig upp um einn PfiPINOS Reykjavíkurvegi 62 Hafnarfirði Núpalind 1 Kópavogi Hverafold 1-5 Grafarvogi Eikarrúm Stærð: 142 sm x 203 s með springdýnu Kr. 10.000 stgr. 0PIÐ 6 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 blaðið Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. [ 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18 Fjármálaumhverfi stjórnmálaflokka til endurskoðunar: Sveigja framhjá reglum Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „I mínum huga eru það sjálfsögð mannréttindi að mega styrkja stjórnmálaflokk með eins miklu fé og hver vill. Ég er algjörlega mótfallinn því að setja einhverjar takmarkanir á framlög," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Islands. Nefnd vinnur að tillögum um fjármálaumhverfi stjórnmála þar sem meðal annars er gert ráð fyrir þrjú hundruð þús- und króna takmörkunum á fjár- framlögum og reglum um uppgjör stjórnmálaflokka. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla ís- Ég er algjörlega mótfallinn þvi að setja takmark- anirá framlög. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræöi lands, telur að opna þurfi fjármál flokkanna. Hann segir Island eitt af fáum lýðræðisríkjum sem fari ekki fram á opin fjármál. „Það er orðið löngu timabært að bókhald flokkanna sé opið. Allt annað getur vakið upp grunsemdir um óeðlileg tengsl,“ segir Baldur. Hannes Hólmsteinn er þeirrar skoðunar að litlu máli skipti hvort settar verði takmarkanir, þeir sem á annað borð vilji styrkja sinn flokk Löngu tíma- bært að bók- hald flokkanna sé opið. Baldur Þórhallsson Prófessor í stjórnmálafræði geti gert það með ýmsum öðrum leiðum. „Ég tel þetta vera óeðli- legar samkeppnishömlur í stjórn- málum. Þeir sem vilja styrkja flokk- ana frekar gera það i staðinn með óbeinum hætti.“ Baldur er sammála. „Það verður alltaf umdeilt hvar eigi að draga línurnar í þeim efnum. Flokkarnir finna sér líklega aðrar leiðir og fara í kringum þær reglur sem settar eru,“ segir Baldur. og gerið góð kaup Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40 INNLENT Rannsókn enn í gangi Kynferðisbrotadeild lögreglunnar í Reykjavík rannsakar enn kynferðisárásir á tvær stúlkur með tveggja vikna millibili. Nauðganirnar voru sláandi líkar og áttu sér stað fyrir utan Menntaskólann í Reykjavík og Þjóðleikhúsið. Rannsókn gengur hægt. K0LLAFJ0RÐUR Tengivagn fauk Tengivagn hófst á loft, slitnaði frá flutningabíl sem dró hann og hafnaði utan vegar í Kollafirði á miðviku- daginn var. Mikil mildi þykir að engin umferð hafi verið á vegarkaflanum en mjög hvasst var þegar slysiö varð. STJÓRNMÁL Marshall fyrirgefur Johnsen í grein sem Róbert Marshall skrifar á heimasíðu sína segist hann fyrirgefa Árna Johnsen afbrotin sem hann var dæmdur fyrir. Árni er á leið á þing. Samband ungra sjálfstæðismanna hefur gefið frá sér ályktun þar sem þeir kröfðust þess að Árni sýndi auðmýkt vegna afbrota sinna. SIGURJON MAGNUSSON ^DAVIR AHRIFAMIKIL SKALDSAGA SEM HELDUR LESANDANUM í HEUARGREIPUM „Gaddavír er látlaus, hefðbundin, vel skrífuð skáldsaga sem gefur tilefni til þess að velta fyrir sér manniegu eðli... I stærra samhengi og táknsögulega fjallar Gaddavír um j erfðasyndina, þjáningu, jafnvel píslarvættí." -GeirSvansson, Morgunblaðið, 3. nóv. 2006 T BJARTUR S\outj°n Slökkviliðiö hefur ekki réttar upplýsingar um íbúa við Laugaveg: Styðjast við þriggja ára upplýsingar ■ Kröfum um úrbætur ekki sinnt ■ Margt sem betur má gera Eftir Viggó Ingimar Jónsson viggo@bladid.net Við Laugaveg eru hús sem slökkvi- lið hefur áhyggjur af sökum aldurs þeirra, ástands og skorts á bruna- vörnum. Þetta segja Bjarni Kjartans- son, sviðsstjóri forvarnarsviðs, og Baldur S. Baldursson verkefnastjóri, hjá slökkviliði höfuðborgarsvæð- isins. „Laugavegurinn er gamalt hverfi. Það þýðir að þar er, þrátt fyrir miklar endurbætur, fullt af einstökum atriðum sem betur mega fara. Sambrunahætta er á einstaka lóðamörkum vegna samliggjandi bygginga.“ Áður hefur komið fram að óttast er að illa kunni að fara verði stór- bruni við Laugaveg, þar sem ekki er vitað í hvaða húsum, sem eru skráð sem atvinnuhús, eru heimili og því óvíst um hvar fólk býr og hversu margir búa í þannig húsum. Bruna- vörnum kann að vera ábótavant sem og flóttaleiðum. Snemma árs 2003 var gerð úttekt á brunavörnum við Laugaveg og aðliggjandi götum. Þá voru send út 135 bréf þar sem krafist var úrbóta og 286 bréf með ábendingum um úrbætur. Baldur segir að margir hafi farið að tilmælum slökkviliðs- ins, en þó ekki allir. Kannað var hvar fólk byggi í atvinnuhúsum og í ljós kom að búið var í sjötíu án til- skilinna leyfa. Upplýsingar slökkvi- liðsins hafa ekki verið uppfærðar í þrjú ár. Bjarni segir vissulega vera af hinu góða að hafa haldbærar tölur um fjölda þessara húsnæða nú og íbúa þeirra. „En til þess þyrftum við að fara í heilmikla vinnu. Við höfum eins og aðrir nóg að gera við tíma okkar og sinnum mörgum þörfum verkefnum, svo sem eftirliti við skóla og sjúkrahús.“ Baldur bætir því við að nánast ómögulegt sé að fylgjast með fjölda ósamþykkts íbúðarhúsnæðis því á meðan á könn- uninni stóð hafi mörgum íbúðum verið lokað og aðrar opnaðar í staðinn. „Við skráumþað semviðhnjótum um, en erum ekki með fjölda þess- ara íbúða á reiðum höndum eins og stendur,“ segir Bjarni. Slökkviliðinu ber að fylgjast með brunavörnum í atvinnuhúsum en ekki í íbúðarhúsum. Þar sem er blönduð byggð, eins og til dæmis á Laugaveginum þar sem íbúðir eru oft á hæðum fyrir ofan verslanir, getur slökkvilið hinsvegar komið með ábendingar um úrbætur á brunavörnum til íbúa. Slökkviliðið hefur hins vegar enga lagalega heim- ild til að fylgja úrbótunum eftir.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.