blaðið - 17.11.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 17.11.2006, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 blaðið Trúnaðarskýrsla um störf rektors Háskólans á Bifröst: Sakaður um hylmingar og hótanir ■ Rektor sagður hafa misnotað peninga skólans ■ Sagði af sér í gær ■ Nafnlausar ávirðingar Sagður hafa sýnt gerræðislega tilburði og misnotað aðstöðu sína Runólfur Ágústsson, rektor Háskólans á Bifröst Eftir Höskuld Kára Schram hoskuldur@bladid.net ars í veðmál og með því að bjóða út- völdum nemendum til útlanda. Guðjón segir stjórn skólans ekki geta tekið mark á nafnlausri kæru. „Það er ekki hægt fyrir stjórn Háskól- ans á Bifröst eða nokkurn annan að taka nafnlausar ávirðingar og kærur á hendur nokkrum manni alvarlega. Það hefði verið allt annað ef á bak við þetta hefðu verið andlit og nöfn sem hefðu þorað að staðfesta sínar frásagnir." Ófriður sem skaðar skólann 1 gær sendi Runólfur svo frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir starfi sínu lausu og vill hann með því stilla til friðar. I yfirlýsingunni segist Run- ólfur hafa gefið skólanum allt sitt líf, tíma og orku en hann sé ekki tilbú- inn til að fórna einkalífi sínu. Sú per- sónulega aðför sem að honum hafi verið gerð hafi bitnað á fjölskyldu hans og nánustu vinum og samstarfs- mönnum. Ófriðurinn hafi skaðað allan skólann og truflað bæði nem- Alvarlegar ásakanir á hendur Run- ólfi Ágústssyni, rektor Háskólans á Bifröst, eru lagðar fram í trúnaðar- skýrslu sem nemendur sendu stjórn háskólans. Er Runólfur sakaður um að hafa margítrekað brotið siða- reglur skólans og jafnframt sínar eigin umgengnisreglur. Höfundar skýrslunnar vildu ekki koma fram undir nafni af ótta við skólayfirvöld og vissan hóp nemenda. Er talað um hræðsluáróður og ítrekaðar hótanir. Runólfur sagði af sér sem rektor skól- ans í gær en í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér kemur fram að hann vilji með uppsögn sinni stilla til friðar innan háskólasamfélagsins. Naut stuðnings stjórnar „Þetta er algerlega að frumkvæði Runólfs og ég harma það að þetta skuli vera niðurstaðan," segir Guð- jón Auðunsson, stjórnarformaður há- skólastjórnar. Hann segir stjórnina hafa staðið heilshugar að baki Runólfi og að hans hafi ekki til komin vegna þrýstings af hálfu háskólayfirvalda. Skólafélagið vonast til þess að afsögn rektors verði til þess að friður og ró komist á skólastarfið Háskólinn á Bifröst. Nemendur kærðu rektorinn. „Runólfur naut stuðnings stjórnar en við virðum ákvörðun hans.“ Kæra á hendur Runólfi fyrir meint brot á siðareglum skólans barst stjórninni á mánudaginn. Með kær- unni fylgdi trúnaðarskýrsla til stjórn- arinnar þar sem ásakanirnar eru útlistaðar nákvæmlega með tilvitn- unum í einstaka atburði. Skýrslan líkt og kæran sjálf er nafnlaus en í formála hennar kemur fram að að henni standa nemendur við skólann. Þar segir einnig að af ótta við skólayfirvöld og vissan hóp nemenda í kjölfar ítrekaðra hótana og hræðsluáróðurs hafi skýrsluhöf- undar kosið að halda nafnleynd. Sagður hafa misnotað peninga skýrslunni er samgangur Run- ólfs við nemendur sagður hafa farið margsinnis út fyrir velsæmismörk meðal annars í tengslum við drykkju Harmar niðurstöðuna Guöjón Auðunsson, stjórnarformaður Há- skólans á Bifröst og stanslausan gleðskap í bústað rektors. Er Runólfur sakaður um að hafa stungið alvarlegum ásökunum um upplýsingaleka um lokapróf undir stól vegna ástarsambands sem hann á að hafa átt við þann nemanda sem lekanum olli. Þá er hann gagnrýndur fyrir ein- hliða hækkun skólagjalda án fulls samráðs við fulltrúa nemenda og að hafa sýnt gerræðislega tilburði í því ferli. Einnig er hann sagður hafa sagt upp kennara án haldbærra eða trú- legra skýringa. í skýrslunni er það ennfremur gefið í skyn að Runólfur hafi mis- notað peninga skólans meðal ann- SIÐAREGLUR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST: ■ 1. grein. Öllum meðlimum háskólasam- félagsins ber að standa vörð um heiöur skólans og aðhafast ekkert það sem kynni að verða til þess að rýra álit samfélagsins á honum. Öllum ber að leggja sig fram um aö skólinn sinni hlutverki sínu og siðareglur þessar séu haldnar. ■ 2. grein Starfsfólki og nemendum er frjálst að gagnrýna stefnu og starfshætti skólans á málefnalegan hátt ■ 3. grein Kennarar, annað starfsfólk og nemendur leggja sig fram um að efla frjáls málefnaleg skoöanaskipti innan skólans og i samfélaginu ■ 4. grein Einstaklingar innan háskóla- samfélagsins skulu á ábyrgan hátt huga að afleiðingum starfa sinna og gjörða fyrir samfélagi, umhverfi og náttúru. * 8. grein Starfsfólk og nemendur sýna hvert öðru virðingu í framkomu, ræðu og riti. Þau vinna saman af heilindum og forðast að láta persónuleg tengsl eöa hags- munl hafa þar áhrlf á. endur sem og starfsfólk. Þegar blaða- maður náði tali af Runólfi i gær vildi hann ekki tjá sig um málið og vísaði í yfirlýsingu sína. Uppsögn Runólfs tekur gildi frá og með næstu mánaðamótum og mun Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoð- arrektor skólans, taka tímabundið við rektorsstöðunni þangað til eftir- maður frnnst. nininol IKEA minimal • miðhraun 14 • garðabær • sími 517 4008 • (við hliðina á sappos) opnunartími: virka daga 14.00-19.00 laugardaga 12.00-16.00 Hringstól! kr. 59.900 Ekta ítalskt leður - hátískuhúsgögn á miklu betra verði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.