blaðið - 17.11.2006, Blaðsíða 21
Jodi Picoult hefur á síðustu árum slegið í
gegn með hverri metsölubókinni á fætur annarri og er nú einn
umtalaðasti rithöfundur í Bandaríkjunum. Bækur hennar sitja mánuðum
saman á metsölulistum í Bandaríkjunum, Bretlandi, Norðurlöndum og víðar.
í þessari bók tekst henni að fjalla um fjölskylduharmleik af nærgætni og
visku, varpa fram ótal siðferðilegum spurningum sem snúa að læknisfræði,
lögfræði og mannlegum samskiptum en jafnframt skrifa æsispennandi sögu.
Anna er ekki veik, en hún
gæti allt eins verið það.
Aðeins þrettán ára að aldri
hefur hún gengist undir ótal
skurðaðgerðir, blóðtökur og
sprautur svo að eldri systir
hennar, Kate, geti tekist á við
hvítblæði sem hefur herjað á
hana frá barnæsku. Hún hefur
aldrei sett spurningarmerki við
þetta hlutverk sitt... þar til nú
að hún tekur ákvörðun sem mun
splundra fjölskyldu hennar og
líklega verða systurinni sem hún
elskar að íjörtjóni.
Frábær spennutryllir um
áleitin siðferðileg málefni.
Á metsölulistum um allan heim
frá því hún kom út 2004.
Á ég að gceta systur minnar? er falleg,
hjartnæm, áleitin og heiðarleg saga.
- Booklist
Picoult hefur náð meistaralegum tökum
- næstum yfirnáttúrlegum - á því að íjalla
um áleitin málefni jafnframt því að skrifa
ákaflega læsilega og spennandi sögu ...
- Washington Post
Persónur Picoult eru svo áhrifamiklar að
lesandinn vonar að hann eigi eftir að hitta
þær aftur síðar.
- USA Today
Ein besta bók ársins!
Eyjarslóð 9 -101 Reykjavík
skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is