blaðið - 17.11.2006, Blaðsíða 38

blaðið - 17.11.2006, Blaðsíða 38
blaðið 38 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 Drogba vill enda ferilinn hjá Chelsea Didier Drogba gaf þaö út í gær að hann vildi spila með Chelsea til loka feriis síns, en hann er nú 28 ára gamall. Litlu munaði að Drogba hefði verið seldur til Lyon siðasta sumar, en hann hefur verið sjóðandi heitur með Chelsea það sem af er tímabili og skorað 14 mörk, þar af tvær þrennur. Þá var Drogba á skot- skónum þegar Fílabeinsströndin lagði Svíþjóð í æfingaleik á miðvikudag, 1-0. 0: <r ^MSUNG roobllo MEIDDIR: var stofnað árið 1891 og dregur nafn sitt af konunglega dýra- og skemmtigarðinum í Stokkhólmi. Félagið.hefur alls ellefu sinnum orðið sænskur meistari en þrír af titlunum hafa komið síðustu fjögur árin. Þegar Djurgárden varð meist- ari árið 2002 var það fyrsti meist- aratitill félagsins síðan 1966. Djurgárden var nálægt því að komast í Meistaradeildina árið 2004 er liðið dróst gegn Juventus í viðureignum sem réðu því hvort liðið kæmist í riðlakeppni Meist- aradeildarinnar. Þeir náðu óvænt jafntefli í fyrri leiknum i Róm, 2-2 en töpuðu heimaleiknum, 1-4. Djurgárden náði aðeins sjötta sæti deildarinnar í haust, sem er slakasti árangur liðsins frá því árið 2000. Agavandamál hafa sett mark sitt á liðið þar sem leikmenn liðsins rægðu meðal annars hver annan í sænskum fjölmiðlum. Kjell Jon- evret, sem stýrt hafði liðinu í tvö ár, sagði af sér sem þjálfari eftir tímabilið og nýtt þjálfarateymi var ráðið, með Sigurð Jónsson sem yfir- þjálfara. Sigurði til halds og trausts eru engir nýliðar í knattspyrnu- stjórnun. Ráðgjafi Sigurðar hjá félaginu er Tord Grip, sem hefur starfað sem aðstoðarmaður Svens- Görans Erikssonar síðustu átta árin, bæði þegar Eriksson þjálfaði enska landsliðið og Lazio á Italíu. Sigurður ætti að vera fljótur að rifja upp sænskuna, en hann lék með sænska liðinu Örebro tíma- bilin 1996 og 1997 og hittir fyrir tvo fyrrum lærisveina sína hjá Víkingi, þá Kára Árnason og Sölva Geir Ottesen. Ljóst er að Sigurðar bíður verð- ugt verkefni að rífa félagið upp að nýju eftir slakt gengi síðasta árið. Endurheimtir gamla þjálfarann Sölvi Geir Ottesen sést hér ibaráttu viö Peter Ijeh, leikmann Gautaborgar. Sölvi lék fyrir Sigurð hjá Víkingum. Þar er ekki síst mikilvægt að ná upp aga í leikmannahópi félags- ins og má telja Sigurði til tekna að hann er þekktur fyrir allt annað en linkind og agaleysi. Meiöslavandræði hjá Barcelona: Deco eini heili miðjumaðurinn Frank Rijkaard, stjóri Barcel- ona, á í mestu vandræðum með að manna liðið hjá sér þessa dagana en sex leikmenn, sem oftar en ekki eru í byrjunarliði Börsunga, eru nú frá vegna meiðsla, þar af fjórir miðjumenn. Þrír leikmenn bættust á meiðsla- lista Börsunga um síðustu helgi þegar liðið mætti Real Zaragoza og var það sami leikmaður Zaragoza sem varð valdur að öllum meiðsl- unum, miðjumaðurinn Alberto Zapater. Zapater slapp með gult spjald frá leiknum en Lionel Messi, Edmilson og Andreas Iniesta hlutu allir meiðsl í leiknum, misalvarleg að vísu. Eins og staðan er hefur Rijkaard aðeins Portúgalann Deco heilan heilsu á miðjunni en reiknað er með að varnarmaðurinn Rafael Marques verði færður upp að hlið hans og reynt verði að koma Xavi í stand þrátt fyrir meiðslin. Lionel Messi: Samuel Eto'o: Javier Saviola: Edmilson: Andreas Iniesta Xavi: 12 vikur 6 vikur 6 vikur 10dagar 5 dagar 3-5 dagar Roman Calderon, forseti Re- al Madrid, segir félagið ætla að verja tæpum þremur millj- örðum til leik- mannakaupa ' \ í janúar. Þá fullyrti Calderon að félagið hefði náð samkomulagi við tvo unga argentínska leik- menn og aðeins eigi eftir að semja um kaupverð milli Real og félagsliða þeirra. Annar leikmannanna heitir Fern- ando Gago og er tvítugur varnarsinnaður miðjumaður sem leikur með Boca Juniors. Hinn heitir Gonzalo Higua- in og er 18 ára sókndjarfur miðjumaður hjá River Plate. Frank Lampard og John Terry voru báðir ánægðir með frammistöðu enska landsliðsins í vináttuleiknum gegn Hollandi á miðviku- dagskvöld og sögðu liðið vera að nálgast sitt besta form að nýju. Leik- urinn fór x-i þar sem Wayne Rooney skor- aði langþráð mark fyrir landsliðið, en hann hefur aðeins skorað þrjú mörk í tutt- ugu landsleikj- ,;g - -#V0 um. Hagstæð úrslit í leiknum voru nauðsynleg fyrir Steve McClaren, þjálfara enska lands- liðsins, sem hefur mátt sitja undir orrahríð fjölmiðla frá því hann tók við liðinu í sumar. Steven Gerrard, fyrir- hði Liverpool, sagði við breska fjölmiðla í gær að Rafael Benitez hafi lofað hon- um að hann yrði færð- ur aftur á miðjuna meðan miðjumaður- inn Moham- ed Sissoko nær sér af axlarmeiðslum. Aftur með Sigurð Kári Árnason fór líkt og Sölvi Geir út íatvinnu- mennsku sumarið 2004. Hér reynir hann að hafa boltann af Magnusi Svensson hjá Halmstad. Nígeríumaðurinn ungi, Mikel John Obi, sem gekk til liðs við Chelsea í sumar frá Lyn fyrir tvo millj- arða króna, hefur beðið Jose Mourinho afsökunar á hegðun sinni. Obi er sagður hafa reitt Mourinho til reiði vegna slæmrar framkomu á æfing- um liðsins. Mo- urinho, Obi og umboðsmað- ur hans, John Shittu, áttu fund í gær þar sem Obi lofaði því að bæta fram- ferði sitt. Obi hefur leikið einn leik með Chelsea á tímabilinu og var þá rekinn út af með tvö gul spjöld. Sigurður Jónsson tekur við stjórn Djurgárden á ólgutímabili eftir einhvern besta árangur liðs- ins frá upphafi. Þetta forna félag hefur notið mikillar velgengni síðustu ár og hefur þrívegis orðið sænskur meistari frá aldamótum og jafnoft hampað sænska bik- arnum. Djurgárden náði þó aðeins sjötta sæti deildarinnar í haust, sem er slakasti árangur liðsins frá árinu 2000. Iþ^óttafélagið Djurgárdens IF Frank Ftijkaard, stjóri Barcelona Ekki öfundsverður af þvíað púsla saman 1 liði Barcelona. Arangur og agaleysi Djurgárden hefur náð góðum árangri á síðustu árum en agaleysi reyndist liðinu dýr- keypt á síðasta keppnistímabili. Sigurður Jónsson þarf aö takast á við agaleysi og lakan árangur: Reynir á hörku Sigurðar Slakasti árangur Djurgárden frá 2000 Hefur reyndan ráögjafa ÞJÁLFARAFERILL SIGURÐAR: 2002: FH. 2003: Víkingur: 2004: Víkingur: 2005: Víkingur: 2006: Grindavík: 2007: Djurgárden: Árangur: 6. sæti 2. sæti í 1-deild. 9. sæti í úrvalsdeild. 2. sæti ii 1. deild. 9. sæti I úrvalsdeild
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.