blaðið - 17.11.2006, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006
blaöið
Umdeild sala Reykjavíkur og Akureyrar á hlut sínum í Landsvirkjun:
Fengu sjö milljörðum minna
HÆSTi MISMUNUR RÚMIR ÞRJÁTÍU MILLJARÐAR DEILT UM FORSENDUR
Deilur standa yfir um hvort rétt
verð hafi fengist fyrir helmings-
hlut Reykjavíkurborgar og Akur-
eyrarbæjar í Landsvirkjun sem
ríkið keypti fyrsta nóvember. Að-
eins níu mánuðum áður en salan
var undirrituð höfðu samnings-
aðilar lýst því yfir að ekki væri
ástæða til að halda viðræðunum
áfram þar sem ekki næðist sátt
um verðið. Áður en þeim var slitið
höfðu þær staðið yfir í rúmt ár án
nokkurs samkomulags. í ágúst
tók Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri upp viðræðurnar á
nýjan leik og kláraði þær á innan
við þremur mánuðum. Hann er nú
gagnrýndur fyrir að flýta sölunni,
hafa ekki kynnt fyrirliggjandi
verðmat fyrir borgarráði, gefið
eftir allar kröfur, fengið ófullnægj-
andi greiðsluform og síðast en
ekki síst, fengið of lágt verð fyrir
hlutinn. Borgarstjóri segir gagn-
rýnina byggða á misskilningi og
að í raun hafi fengist hærra verð
en verðmat sagði til um.
Fallið frá kröfum
Ráðgjafafyrirtækið ParX var
fengið til að verðmeta Lands-
virkjun. Það skilaði inn fyrsta
mati í september 2005 og sveitar-
TIMALINA:
■ 17.febrúar2005
Undirrituð viljayfirlýsing um að ríkið
keypti hluta Reykjavíkurborgar og
Akureyrarbæjar.
- ■ 6. september 2005
Fyrra verðmat ParX þar sem Landsvirkj-
un er metin á 56,4 milljarða. Gerðar
voru athugasemdir við verðmatið.
- ■ 9. nóvember 2005
ParX skilaði inn þremur tillögum að
verðmati að beiðni sveitarfélaganna.
Miðað var við breyttar forsendur og
þær tillögur sýndu fram á verðmat á
bilinu 65 til 91 milljarða króna.
■ 20. januar 2006
Samningsaðilar gefa út sameiginlega
fréttatilkynningu um að ekki væru
forsendur fyrir frekari viöræðum að
svo stöddu.
- ■ Ágúst 2006
Viðræður hefjast á nýjan leik.
-■18. september 2006
Síðara verðmat ParX þar sem Lands-
virkjun er metin á 59 milljarða.
■ 1. nóvember2006
Undirritaður samningur um sölu
hlutarins.
Deilt um söluverðið Minnihluti borgar-
stjórnar hefur gagnrýnt það verð sem
fékkst fyrir Landsvirkjun. Borgarstjóri. er
gagnrýndur fyrir að falla frá kröfum borgar
innar um breyttar forsendur við verðmat.
félögin gerðu strax athugasemdir
við þær forsendur sem stuðst var
við. Þau gerðu því kröfu um end-
urmetið verðmat út frá breyttum
forsendum og skilaði ParX inn
þremur tillögum. Allar þær til-
lögur gera ráð fyrir töluvert hærra
verðmati en það verðmat sem
stuðst var við á endanum. Meg-
ingagnrýni á söluna snýst um
hvers vegna fallið var frá þeim
kröfum sem gerðar voru um
breyttar forsendur til grundvallar
í verðmatinu.
Skammtaðar forsendur
Þröstur Sigurðsson ráðgjafi sá
um verðmatið fyrir hönd ParX.
Hann segir verðmatið byggt á þeim
forsendum sem samningsaðilar
hafi lagt til grundvallar. „í sjálfu
sér er hægt að biðja um útreikn-
inga miðað við hvaða forsendur
sem er og fá þá tölu sem hver vill.
Beðið var um útreikninga miðað
við ákveðnar forsendur," segir
Þröstur. Hann ítrekar að fyrir-
tækið hafi engra hagsmuna að
;æta við útreikninga verðmatsins.
raun breyttust forsendurnar
VERÐMAT PARX:
September 2005
56.4 milljarðar
September 2006
59 milljarðar
Hlutur seldur í nóvember 2006:
60.5 milljarðar
Fagleg ræsting
fyrirtækja
oUnoAi ko+»*i oo órlwi'oi'i
Auðbrekku 8, 200 Kópavogi, sími 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is
lítið á milli verðmata. Eigendahóp-
urinn lagði fram hvaða forsendur
ættu að liggja fyrir.“
Ekki gætt hagsmuna
borgarinnar
Sérfræðingur á fjármálamark-
aði telur það verð sem fékkst und-
arlega lágt. Það blasi við að notað
hafi verið óhagstæðasta raforku-
verð sem til er sem forsenda og
minna virði greiðslunnar vegna
greiðsluformsins. „Það er alveg
ljóst að þetta er ekki hátt verð
sem fékkst. Innra virðið er
alltof lágt miðað við það
sem ég þekki. Miðað
við hve miklar fram-
kvæmdir hafa verið
og eru framundan
hjá fyrirtækinu
hefði ég gert y
ráð fyrir mun
hærri marg-
faldara. ,
S í ð a n
k e m u r
í ljós að
greiðslan er
minna virði
hún
fram að verðmæti Landsvirkjunar
hefði orðið meira ef stuðst hefði
verið aðra raforkusamninga en við
Alcoa, sem gagnrýndir hafa verið
sem nauðasamningar, en þeir voru
gerðir eftir að Norsk Hydro hætti
við byggingu álvers á Reyðarfirði
og samningsstaða Landsvirkunar
var erfið þess vegna. Ef til dæmis
Trausti
Hafsteinsson
skrífar um sölu
á hlut Reykjavíkur
ogAkureyrarí
Landsvirkjun.
ATHUGASEMDIR
VIÐ FORSENDUR:
■ Ekki stuðst við nýjasta raforkusamning
við stóriðju
■ Smæðarálag ekki lækkað í 0,5 prósent
■ Ekki gert ráð fyrir framtíðarmöguleikum
■ Miðað við áhættu í áliðnaði í stað raforku-
iðnaðar
■ Of há ávöxtunarkrafa
Fréttaúttekt
trausti@bladid.net .
sem
er
þar
í formi
skuldabréfa. Miðað við þær
forsendur sem lágu til grund-
vallar sölunni lítur út fyrir að
hagsmunir borgarinnar hafi ekki
virtir."
Milljarða skekkja
í svörum borgarstjórnar kemur
SKEKKJA VIÐ SÖLUNA:
Varfærnisregla Lífeyrissjóðs starfsmanna
Reykjavíkurborgar
3,5 milljarðar
Byggt á óhagstæðu raforkuverði
3,2 milljarðar
Samtals 6,7 milljarðar
Verðmat á Landsvirkjun
Endaniegt verðmat ParX var 59
milljarðar. Ráðgjafi fyrirtæksins
segist hafa reiknað verðmatið út
frá þeim forsendum sem honum
voru skammtaðar.
væri miðað við samninga við Norð-
urál þá munar rúmum þremur
milljörðum á söluvirði Landsvirkj-
unar. Lífeyrissjóður starfsmanna
Reykjavíkurborgar hefur síðan
tilkynnt að samkvæmt varfærnis-
reglu sjóðsins þurfi að fella niður
3,5 milljarða af heildarverðmæti
skuldabréfanna sem fást fyrir
meginhluta kaupverðsins. Saman-
lagt blasir þarna við skekkja upp á
tæpa sjö milljarða.
Þrjátíu milljarða munur
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbank-
ans gerði einnig athuga-
semdir við for-
s e n d u r
verðmats-
insoglagði
upp með
ákveðnar
breytingar.
Athugasemd-
irnar snerust
aðallega um
rangt áhættu-
mat, of hátt álag
vegna smæðar
íslenska markað-
arins og óhagstætt
raforkuverð. Síðar
ry / hefur komið fram
/ gagnrýni á óhagstætt
/greiðsluform og að
framtíðarmöguleikar
fyrirtæksins væru ekki
teknir með í reikninginn.
Samkvæmt aðferð bankans hefði
verðmæti Landsvirkjunar verið
metið á rúma níutíu milljarða.
Mismunurinn á söluverði og verð-
mati byggt á athugasemdum bank-
ans er því rúmir þrátíu milljarðar.
í framhaldinu mun Blaðið fara
yfir einstaka hluta þeirra athuga-
semda sem fyrir lágu og hverju
þær hefðu breytt í verðmati á
Landsvirkjun.