blaðið - 17.11.2006, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006
blaðið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Er kalt á toppnum?
Nei, það er ekki kalt á toppnum en það er kalt í dag!
* n Á Örn Árnason, leikari
Æ
M m ■' /' . \ Örn og félagar hans í Spaugstofunni eru vinsælasta sjónvarpsefni lands- ins samkvæmt nýrri áhorfskönnun Capacent með 47,3 prósent áhorf. Þeir Spaugstofubræður hafa notið gífurlegra vinsælda frá því að þeir fóru
W * fyrst i loftið árið 1985.
HEYRST HEFUR...
Margir biða spenntir eftir
endurkomutónleikum
Sykurmolanna og blásið var til
blaðamannafundar á Sirkus í
vikunni í tilefni
afþeim. Molarnir
eru kúl sem aldrei
fyrr sem sést á
staðarvali blaða-
mannafundarins
en Sirkus er eins og margir vita
vagga kúlmenningar í Reykja-
vik. Staðurinn hentar ekki vel
til myndatöku enda dimmur og
lágt til lofts þar inni og ljósmynd-
urum reyndist erfitt að mynda
meðlimina þar sem rétt glitti í
glyrnur þeirra. Það varð þó ljós-
myndurum til happs að Einar
Moli bannaði reykingar inni á
staðnum meðan á fundinum
stóð. Ljósmyndurum til óláns
tvístruðu Molarnir sér í allar
áttir í upphafi fundar þar sem
þeir vildu ekki að af þeim næðist
hópmynd, enda stórir karakt-
erar á ferð sem hentar betur að
vera einir og sér á mynd.
T} óbert Marshall tekur upp
Xvumræðuna um kossaflens
sem þeir Guðmundur Stein-
gríms og Sigmar Guðmunds
hafa verið að velta
fyrir sér á Net-
inu. Róbert vill
leiða þessaágætu
herramenn inn
á réttar brautir í
vangaveltum sínum
um kossa og karlmenn. Róbert
fer eftir einföldum reglum í
þessu sambandi en hann kyssir
og faðmar karla á sama hátt og
hann kyssir og faðmar konur
sem hann hittir. Hann segir
ennfremur að þeir Guðmundur
og Sigmar þurfi ekkert að óttast
þar sem þetta komi allt saman
af sjálfu sér. Síðan bendir Róbert
á að nauðsynlegt sé fyrir karl-
menn að kyssa á móti annars
eigi þeir á hættu að verða kysstir
á eyrað sem Róbert telur ömur-
legast af öllu hvort sem er þegar
einhver sér til eða ef eyrnakoss-
inn á sér stað í einrúmi.
„Ég ætla að sofa"
Amal Tamimi, starfsmaður Alþjóða-
hússins, er fljót til svars þegar hún er
spurð hvernig hún ætli að eyða helg-
inni. „Ég ætla að sofa,” svarar Amal,
enda löng vinnuvika að baki og
mikið búið að vera að gera. „Vinnu-
dagurinn er alltaf langur og klárast
yfirleitt ekki fyrr en milli níu og tíu á
kvöldin,” segir Amal.
„Ég varð amma í annað sinn í lok
október en dóttir mín var að eignast
sitt fyrsta barn. Hún og lillan hafa
dvalið hjá mér frá fæðingunni og
ég hef vaknað með þeim á nóttunni,
þannig að ég hef aðeins misst úr
svefn. Mæðgurnar fóru heim til sín í
fyrradag og ég sakna þeirra nú þegar.
En ég fór í heimsókn til þeirra í gær
eftir vinnu og ætli ég fari ekki í langa
heimsókn til þeirra í kvöld,“ segir
Amal sem er í skýjunum yfir komu
nýja barnabarnsins.
Brú á milli fólks
f siðustu viku var opnuð Útvarps-
stöð innflytjenda en útvarpsstöðin
er samstarfsverkefni Alþjóðahúss,
Hafnarfjarðarbæjar og Flensborg-
arskólans. Amal er einn af aðal-
skipuleggjendum stöðvarinnar og
hefur haft i mörgu að snúast við
undirbúninginn. „Útvarpsstöðin
hefur fengið mjög góðar viðtökur
og fólk er ofsalega ánægt með þetta
framtak, jafnt innflytjendur sem
íslendingar. Hugmyndin á bak við
útvarpsstöðina er að upplýsa inn-
flytjendur um íslenskt samfélag
en sömuleiðis erum við að upplýsa
íslendinga um menningu innflytj-
enda. Markmiðið er að byggja brú
á milli fólks sem býr á Islandi.”
Þeir sem vilja leggja við hlustir
geta stillt á fm 96.2 á útvarpstækj-
unum sínum.
Gaman að elda góðan mat
Amal segir að hún ætli nú reyndar
að gera ýmislegt annað um helgina
en að sofa því á laugardaginn situr
hún fund í bæjarráði Hafnarfjarðar
en Amal er varabæjarfulltrúi fyrir
Samfylkinguna og er formaður jafn-
réttisnefndar Hafnarfjarðar.
„Sunnudaginn ætla ég að nota til
að slappa af og líka til að þrífa en ég
er vön að gera það á sunnudögum.
Síðan ætla ég að elda eitthvað gott.
Mér finnst gaman að elda og sérstak-
lega þegar ég hef góðan tíma til þess.
Mér finnst líka gaman að elda fyrir
fólk sem hrósar matnum mínum,“
segir Amal og hlær. Hún er ekki
enn búin að ákveða hvað hún ætlar
að elda en er viss um að hvað sem
það verður muni það hljóta góðar
viðtökur.
loa@bladid.net
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt (reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
7 6 9 4 3
8 2 1
1 8 3
2 7 4
4 3 2
7 2 1 8
9 5 2
3 4 7 9 6
1 8 7
1 3 6 7 9 4 2 5 8
8 7 4 1 5 2 9 3 6
9 2 5 3 6 8 7 1 4
2 5 7 4 3 6 8 9 1
3 6 8 5 1 9 4 2 7
4 9 1 2 8 7 3 6 5
5 8 9 6 4 3 1 7 2
6 4 2 9 7 1 5 8 3
7 1 3 8 2 5 6 4 9
eftir Jim Unger
© Jim Unger/dist. by United Media, 2002
Ertu búinn að bíða lengi?
Á förnum vegi
Ætlarðu á
jólahlaðborð?
Héðinn Ásbjörnsson,
sölumaður
„Já, ég held að ég fari á jólahlað-
borð með vinnunni.“
Hörður Haildórsson,
starfsmaður í prentsmiðju
„Já, sennilega fer ég á jólahlað-
borð.“
Jón Ólafsson, ellilífeyrisþegi
„Já, ég ætla að fara á hlaðborð
hjá Geysi í Haukadal.“
Sigríður Geirsdóttir, fyrrum
leikskólakennari
„Nei, það stendur ekkert svoleiðis
til.“
Salome Tara Guðjónsdóttir,
nemi
„Já, en ég er ekkert búin að skipu-
leggja hvenær eða hvert.“