blaðið - 17.11.2006, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006
blaðið
Miðnæturopnui
Það verður mikið um dýrðir í Eymundsson í Smáralind í kvöld því þegar klukkan slær 12
hefst miðnætursala á annarri bók Christophers Paolini, Öldungurinn. Hún erframhaid
bókarinnar Eragon sem hefur slegið í gegn um allan heim og hefur meðal annars verið
kvikmynduð. Óþreyjufullir kaupendur fá góðan afslátt af bókinni og boðið verður upp á
Nýbökuð móðir á tímamótum „Þetta gengur
allt saman mjög vel. Drengurinn er vær og
góður og ég kann prýðilega v/ð mig iþessu nýja
hlutverki.''
Nú fer hver að verða síðastur að sjá spunaverkið Þjóðarsálina sem sýnt er í Reiðhöll Gusts í Kópavogi.
[ sýningunni gefst gestum kostur á að kynnast fimm ólíkum birtingarmyndum íslenskrar þjóðarsálar
og ýmsar kynjaverur á borð við kraftajötna og fimleikafólk birtast áhorfendum. Leikstjóri er Sigrún
Sól Ólafsdóttir. Næsta sýning er í kvöld klukkan 20 og einnig er sýning á sunnudag á sama tíma.
nn Lárusdóttir og Friðrik Karlsson senda frá sér plötu
■ ntgifflliT.
Vatnslitamyndir
Nikulás Sigfússon opnar sýn-
ingu á vatnslitamyndum sínum í
Galleríi Smíðar og Skart, Skóla-
vörðustíg 16A á morgun klukkan
14. Nikulás hefur í gegnum tíð-
ina haldið um tuttugu einkasýn-
ingar og tekið þátt í nokkrum
samsýningum. Á sýningunni
sem verður opnuð á morgun er
viðfangsefni Nikulásar aðallega
íslenskt landslag. Sýningin
stendur til 1. desember og er op-
in á verslunartíma gallerísins.
/V
KUnfitBu^
BlaðiÖ/Frikki
Nýtt í Kling
og Bang
Á morgun veráur hulunni svipt
af tveimur nýjum sýningum í
Kling og Bang galleríi við Lauga-
veg. Á jarðhæð opnar Helga
Óskarsdóttir sýningu sem ber
heitið Myndlistardreifing og
í kjallara opnar Kristinn Már
Pálmason sýninguna Krimp og
Kling og Bang og Slang - Fé-
lagslega málverkið. Opnunin
hefst klukkan 17 og eru allir
velkomnir.
Kristinn í
Salnum
Kristinn Sigmundsson og Jónas
Ingimundarson halda Ijóðatón-
leika í Salnum í Kópavogi á
morgun. Á tónleikunum flytja
þeir tvo Ijóðaflokka, Vier ernste
Gesánge op. 121 eftir Johannes
Brahms og Songs of Travel eftir
Ralph Vaughan Williams, auk
sönglaga eftir Francesco Paolo
Tosti. Kristinn hefur haft í nógu
að snúast úti um allan heim að
undanförnu en á þessu ári hefur
hann meðal annars sungið í
Pómeó og Júllu eftir Gounod
og Fidelio eftir Beethoven í
Metrópólitan-óperunni í New
York, í Valkyrjunni eftir Wagner
í Feneyjum, Rósariddaranum
eftir Richard Strauss (Munchen,
Tristan und Isolde eftir Wagner
og Rigoletto eftir Verdi í San
Francisco-óperunni. Þetta er
því kærkomið tækifæri fyrir
íslenska aðdáendur hans. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 16 og er
aðgangseyrir 3000 krónur.
Ljúf og notaleg stemning
I órunni Lárusdóttur
er margt til lista lagt
en hún hefur á undan-
: ;í förnum árum fengist
jöfnum höndum við
söng og leiklist. Hún útskrifaðist
frá The Webber Douglas Academy
of Dramatic Art í Lundúnum árið
1998 og hefur haft nóg að gera í
sínu fagi hér á landi og reglulega
birst leikhúsgestum í hinum ýmsu
hlutverkum. Þórunn er auk þess
liðtækur trompetleikari og tekur
reglulega lagið með systrum sín-
um, þeim Hjördísi Elínu og Ingi-
björgu. Hún er að venju með mörg
járn í eldinum og sendi nýlega frá
sér plötuna Álfar og fjöll í sam-
starfi við gítarleikarann góðkunna,
Friðrik Karlsson, sem hefur búið
og starfað í Lundúnum undanfar-
in ár „Þetta er afskaplega róleg og
ljúf plata, svona ekta þegar mann
langar í rólega stemningu og nota-
lega stund,“ segir Þórunn, ánægð
með afraksturinn.
Perlur íslenskrar tónlistar
Lögin á plötunni hafa flest fyrir
löngu öðlast sess í hugum í slendinga
en þar er meðal annars að finna þjóð-
lagið Sofðu unga ástin mín, Hvert ör-
stutt spor eftir Jón Nordal og Dagný
eftir Sigfús Halldórsson. Auk þess-
ara gömlu laga sem svo mörgum eru
kær eru einnig þrjú frumsamin lög
eftir Friðrik á plötunni en Þórunn
gerði tvo af textunum. „Ég hef að-
eins fengist við textagerð í gegnum
tíðina. Ég byrjaði að skrifa ljóð þegar
ég var sjö ára og hef alltaf haft gam-
an af því að setja saman orð. Ég þarf
svolítið langan tíma til að semja og
finnst gott að leyfa hlutunum að gerj-
ast í höfðinu á mér. Ég syndi mikið
og finnst frábært að semja í sundi.
Þar næ ég að slaka vel á og ná góðri
einbeitingu. Svo set ég eitthvað á
blað þegar heim er komið og oftar
en ekki hjálpar Snorri, maðurinn
minn, mér að pússa textana," útskýr-
ir Þórunn. Þetta er í fyrsta skipti sem
hún og Friðrik starfa saman en þau
þekktust lítillega áður. „Samstarfið
gekk ákaflega vel enda er Friðrik
svo ljúfur og yndislegur drengur,"
segir Þórunn brosandi. „Þetta
kom þannig til að Sena hafði sam-
band við mig og bað mig að taka
þátt í verkefninu. Hugmyndin er
upphaflega Friðriks og hann sér
að mestu leyti um tónlistina. Ég
ljæ plötunni rödd mína og er af-
skaplega þakklát fyrir að hafa feng-
ið að taka þátt í þessu.“
Stendur á tímamótum
Þórunn segir lögin á plötunni
flest vera sér mjög kær. „Við ákváð-
um að leita að mestu í þessi gömlu,
góðu lög sem allir þekkja. Svo eru
líka tvö karlakóralög á plötunni
en pabbi minn, Lárus Sveinsson,
stjórnaði karlakórnum Stefni til
fjölda ára og ég hef margoft hlust-
að á Nú sefur jörðin og Sefur sól
hjá Ægi í flutningi kórsins. Mér
þykir ákaflega vænt um þessi lög
og veit ekki til að neinn hafi sung-
ið þessi karlakóralög einsamall
inn á plötu fyrr.“
Þórunn stendur á ákveðnum
tímamótum um þessar mundir
en hún eignaðist lítinn dreng fyrir
þremur mánuðum sem hlotið hef-
ur nafnið Kolbeinn Lárus. „Þetta
gengur allt saman mjög vel. Dreng-
urinn er vær og góður og ég kann
prýðilega við mig í þessu nýja hlut-
verki. Eg er líka orðin lausráðin í
Þjóðleikhúsinu og hef þess vegna
meira rými en áður til þess að
búa mér til ný og skemmtileg verk-
efni. Það eru allskyns hugmyndir
að gerjast með mér og mig langar
að halda áfram bæði að syngja og
leika.“
Þórunn segir ekki loku fyrir
það skotið að hún taki lagið opin-
berlega á aðventunni en að mestu
verði tíminn notaður til að vera
með fjölskyldunni. „Ég gæti þess
þó að loka mig ekki af enda á ég
duglegan mann sem tekur þátt í
uppeldinu til jafns við mig þannig
að ég hef tíma til að sinna mínum
hugðarefnum," segir Þórunn að
lokum.
Að deyja
Sögur af mönnum sem bíða
þess eins að deyja geta verið
hin ágætasta skemmtun. Sú er
alla vega raunin með Bresti í Brook-
lyn eftir Paul Auster.
Nathan Glass snýr aftur á æsku-
slóðirnar á fyrstu síðu bókarinnar
til að bíða þögulla endaloka dap-
urlegs og fáránlegs lífs síns eins
og hann segir sjálfur frá. Á næstu
síðu reitir hann einkadóttur sína
svo til reiði að hún ákveður að tala
ekki meira við hann. Auster gefur
tóninn strax í upphafi, kynnir til
sögunnar erfiða en jafnframt nokk-
uð skemmtilega aðalsögupersónu,
og fylgir því eftir með þrusugóðri
í Brooklyn
sögu og skemmtilegum persónum.
Brestir í Brooklyn er fyrst og
fremst saga af fólki og hvernig það
bregst við aðstæðum, en er líka stút-
full af skemmtilegum sögum. Fyrst
og síðast er þetta þó sagan af því
"hvernig Nathan tekst á við sjálfan
sig og það líf sem hann hefur lifað.
Ekki síst því sem hann lærir af því
að fylgjast með samferðafólki sínu.
Þetta er bók sem býður upp á
svo margar sterkar hliðar. Auster
skapar persónur sem lesandanum
þykir vænt um (svo sem efnilega
frændann Tom Wood sem hefur
misst sjónar á hvert hann stefnir
og barnungu frænkuna Lucy sem
þegir þunnu hljóði langtímum sam-
an og reynist hin mesta ráðgáta)
og persónur sem lesandinn hefur
mjög gaman af (eins og bókasalann
Harry Brightman sem leynir hressi-
lega á sér). Sögurnar sem mynda
heildina eru líka margar og góðar,
sumar eru fyndnar, aðrar dramat-
ískar og nokkrar spennandi. Brest-
ir í Brooklyn er líkust lagköku þar
sem hverju nýju laginu er bætt ofan
á það sem fyrir er, hver sagan tek-
ur við af annarri og fléttast inn í
myndarlega, bragðgóða og vel ilm-
andi heild.
brynjolfur@bladid.net
Brestir í Brooklyn
Eftir Paul Auster
Bækur ★★★★★